Landspítalinn

Á erfitt með að hafa samúð með þreyttum læknum Landspítala
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir að eitt stærsta vandamál Landspítalans sé hve illa gangi að halda þar uppi góðri stemmningu. Vandamál spítalans séu mörg þannig vaxin að ekki sé hægt að laga þau með auknu fjármagni einu saman.

Landspítalinn hættir að nota hraðpróf
Farsóttanefnd Landspítalans hefur ákveðið að hætta að nota hraðgreiningarpróf til að prófa starfsmenn sína, sem eru með væg einkenni, fyrir Covid-19 og taka PCR-próf alfarið í notkun í staðinn. Í tilkynningu nefndarinnar segir að hraðprófin séu verri kostur en PCR-próf.

Tóku skóflustungu að rannsóknahúsi Nýs Landspítala
Fyrstu skóflustungurnar að nýju rannsóknahúsi Landspítala við Hringbraut voru teknar um klukkan 14 í dag. Stefnt er að því að nýtt rannsóknahús verði tekið í notkun 2026.

Ráðherra kannast ekki við vandamál hjá Brjóstamiðstöðinni
Svandís Svavarsdóttir segist ekki hafa haft upplýsingar um að 1.400 konur bíði nú niðurstaða eftir brjóstamyndatöku í ágústmánuði. Eins og fram kom á Vísi fyrr í dag mættu 280 af þeim konum í myndatöku vegna einkenna.

Enginn á gjörgæslu vegna Covid-19
Af þeim tíu sjúklingum sem nú liggja inni á Landspítalanum vegna Covid-19 er enginn á gjörgæslu.

Ekkert lesið úr brjóstamyndum í ágúst: Íslensku læknarnir hættir og búið að semja við danskt fyrirtæki um úrlestur
Landspítalinn hefur samið við danska fyrirtækið Senologia ApS um heildarþjónustu í brjóstamyndgreiningu. Báðir íslensku læknarnir sem sinntu starfinu hættu í sumar vegna gæðamála og engin úrlestur fór fram í ágústmánuði.

Afgreiðsla alvarlegra atvika í heilbrigðisþjónustu
Þrátt ítarlegar tillögur starfshóps frá 2015 um úrvinnslu hafa engar skýrar úrbætur orðið.

Hjúkrunarfræðingurinn laus úr haldi lögreglu
Hjúkrunarfræðingur sem sakaður er um að hafa orðið sjúklingi á geðdeild að bana er laus úr haldi lögreglu. Landsréttur felldi í dag úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur.

Útiloka hvorki ásetning né gáleysi
Lögreglan útilokar ekki að ásetningur hafi legið að baki þegar kona, sem lögð hafði verið inn á geðdeild Landspítalans, lést fyrr í mánuðinum. Hjúkrunarfræðingur á geðdeildinni er grunuð um að hafa orðið valdur að dauða konunnar.

Segir Landspítalann notast við hugmyndafræði sem leyfi þvinganir
Málfríður Hrund Einarsdóttir, formaður Hugarafls, harmar andlát sem talið er hafa borið að með saknæmum hætti á geðdeild Landspítalans fyrr í mánuðinum en segir atvikið ekki koma sér á óvart.

Hjúkrunarfræðingur á Landspítala grunaður um manndráp
Hjúkrunarfræðingur á geðdeild Landspítalans hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna gruns um manndráp. Heimildir fréttastofu herma að hjúkrunarfræðingurinn hafi reynt að þvinga mat ofan í sjúkling með þeim afleiðingum að hann kafnaði. Sjúklingurinn var kona á sextugsaldri en hún lést fyrr í þessum mánuði.

Andlát vegna Covid-19
Karlmaður á áttræðisaldri lést eftir baráttu við Covid-19 á Landspítalanum í gær.

Lögregla telur lát konu á Landspítala hafa borið að með saknæmum hætti
Andlát konu á sextugsaldri sem lést á Landspítalanum fyrr í þessum mánuði er talið hafa borið að með saknæmum hætti. Rannsókn lögreglu er sögð miða vel og var kona á sextugsaldri úrskurðuð í gæsluvarðhald í síðustu viku.

Fjölgaði um einn á gjörgæslu
Tólf sjúklingar liggja á Landspítala vegna Covid-19. Þar af eru þrír á gjörgæsludeild þar sem fjölgað hefur um einn frá því í gær. Einn þeirra er í öndunarvél.

Þeir sem þurfi á gjörgæslu ýmist óbólusettir eða bólusettir með undirliggjandi sjúkdóma
Tveir hafa látist á Landspítala vegna Covid-19 frá því á miðvikudag. Yfirmaður Covid-göngudeildar segir að þeir sem fari á gjörgæslu væru ýmist óbólusettir eða bólusettir með undirliggjandi sjúkdóma.

Heilbrigðisráðuneytið treysti ekki rannsóknarstofu Krabbameinsfélagsins
Það er mat heilbrigðisráðuneytisins að rannsóknarstofa Krabbameinsfélagsins hafi ekki uppfyllt gæðaskilyrði til að sinna rannsóknum á leghálssýnum. Þetta kemur fram í svari ráðuneytisins við fyrirspurn sem send var fyrir hönd Facebook-hópsins „Aðför að heilsu kvenna“.

Andlát vegna Covid-19
Sjúklingur á sextugsaldri lést á Landspítala í gær vegna Covid-19.

Covid-sjúklingum fækkar um sex milli daga
Nú liggja sextán sjúklingar á Landspítala vegna Covid-19 en þar af eru fjórir á gjörgæsludeild. Hefur sjúklingum fækkað um sex síðastliðinn sólarhring og var einn fluttur af gjörgæslu.

Birtir til á Landspítalanum hvað varðar Covid-19
Yfirmaður Covid-göngudeildar á Landspítala segir að ástandið á spítalanum með tilliti til veirunnar hafi skánað síðustu daga. Óhætt sé að aflétta nokkuð af sóttvarnatakmörkunum.

Andri Ólafsson ráðinn til Landspítala
Andri Ólafsson hefur verið ráðinn til að annast fjölmiðlasamskipti Landspítalans. Þetta staðfestir Andri í samtali við fréttastofu.

Maríanna fyllir í skarðið eftir alvarlegt slys
Maríanna Garðarsdóttir hefur tekið tímabundið við starfi framkvæmdastjóra þjónustusviðs á Landspítala af Jóni Hilmari Friðrikssyni, sem er kominn í leyfi vegna alvarlegs slyss. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landspítalanum.

Húseigandinn dró tilboð um fyrirhuguð hjúkrunarrými til baka
Fyrirtækið Heilsuvernd var búið að komast að samkomulagi við Sjúkratryggingar Íslands um rekstur tímabundinna hjúkrunarrýma í Urðarhvarfi 8. Samningstíminn var fjögur ár með möguleika á framlengingu.

57 prósent þjóðarinnar vilja að ríkið veiti miklu meira fé til Landspítalans
Um 57 prósent þjóðarinnar vilja að ríki veiti miklu meira fé til Landspítalans en nú er gert, ef marka má niðurstöður skoðanakönnunar sem Fréttablaðið lét gera og birti í morgun.

Prófa mótefnalyf sem gæti fækkað spítalainnlögnum
Mótefnalyf sem Landspítalinn notar við meðferð á Covid-19 hefur gefið góða raun hingað til. Lyfið er gefið fólki í sérstökum áhættuhópi og hefur það allt sloppið við spítalainnlögn.

Fækkar á gjörgæslu og engin ný tilfelli á Landakoti
Nú liggja 22 sjúklingar inni á Landspítalanum vegna Covid-19. Þar af eru fimm á gjörgæsludeild og fækkar um einn milli daga. Allir fimm sjúklingarnir eru í öndunarvél. Engin ný tilfelli hafa komið upp á Landakoti eftir að starfsmaður greindist með Covid-19 á föstudag.

Spítalinn gerir athugasemdir við málflutning formanns félags sjúkrahúslækna
Framkvæmdastjórn Landspítalans gerir efnislegar athugasemdir við málflutning Theodórs Skúla Sigurðssonar, formanns félags sjúkrahúslækna, sem hefur að undanförnu komið fram í fjölmiðlum og gert vanda spítalans að umfjöllunarefni sínu.

Enn ekki gengið frá samningum þrátt fyrir að fjármögnun hafi verið tryggð
Enn hefur ekki verið gengið frá samningum um rekstur 90 hjúkrunarrýma á höfuðborgarsvæðinu, þrátt fyrir að fjármögnun þeirra hafi verið tryggð fyrir áramót. Vonir stóðu til að hægt yrði að taka hjúkrunarrýmin í notkun í sumar, sem hefði létt verulega á hinum margumrædda „fráflæðisvanda“ á Landspítalanum.

Sidekick-appið ekki lengur notað til að fylgjast með Covid-sjúklingum
Í fyrstu bylgju kórónuveirufaraldursins notaðist Landspítalinn við forritið Sidekick til að fylgjast með þeim Covid-sjúklingum sem ekki þurftu að leggjast inn á spítala. Forritið virkar þannig að sjúklingar haka við valmöguleika um líðan sína og geta læknar þá yfirfarið niðurstöðuna og metið hvort þörf sé á inngripi.

Starfsmaður Landakots greindist með kórónuveiruna
Starfsmaður á öldrunarlækningadeild K1 á Landakoti hefur greinst smitaður af Covid-19. Þetta hefur fréttastofa fengið staðfest frá forsvarsmönnum Landspítala.

Heilbrigðismál eru kosningamál
Þegar litið er um öxl má sannarlega sjá þess stað að heilbrigðismál eru kosningamál, nú jafnt sem fyrr. Á liðnu kjörtímabili hefur markvisst verið unnið að því að draga úr hlut frjálsra félagasamtaka og sjálfstætt starfandi lækna í heilbrigðisþjónustu þjónustu en þess í stað eru verkefnin færð til ríkisstofnana í vaxandi mæli.