Reykjavíkurmaraþon

Bjóða upp á persónuleg hlaupanúmer í Reykjavíkurmaraþoninu
Hlauparar og aðstandendur geta í fyrsta sinn búið til persónuleg hlaupanúmer fyrir komandi Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka sem fram fer þann 24. ágúst næstkomandi.

„Hann var of klár fyrir lífið“
Þann 15. desember síðastliðinn fannst Hjalti Þór Ísleifsson látinn á heimili sínu í Zürich í Sviss. Þrátt fyrir að vera einungis 27 ára gamall hafði Hjalti afrekað ótrúlegustu hluti og þá ekki síst innan stærðfræðiheimsins þar sem hann vann til verðlauna í alþjóðlegum keppnum og vakti mikla eftirtekt. Hann var við það að ljúka doktorsnámi í stærðfræði og stefndi hátt í lífinu. Andlát hans kom eins og þruma úr heiðskíru lofti.

„Hann er fullkominn eins og hann er“
„Það hefur reynst mér best að vera bara í núinu og ekki hugsa fram í tímann, heldur einblína bara á daginn í dag,“ segir Elísabet Green Guðmundsdóttir. Sonur hennar Huginn Ragnar er einn af örfáum einstaklingum hér á landi sem greinst hafa með Cornelia de Lange, sjaldgæft heilkenni og eru einkenni hans helst vaxtarskerðing og seinkun í þroska.

„Þú gleymir fólki sem þú hefur elskað allt þitt líf“
„Alzheimer er sjúkdómur sem tekur ekki bara yfir líf þess sem greinist með hann heldur allrar fjölskyldunnar. Hægt og rólega mun sjúkdómurinn láta aðilann gleyma öllu, fyrst smáum hlutum og svo minningum. Loks mun hann gleyma þér og öllum sem hann hefur elskað,“ segir Andrés Garðar Andrésson.

Frábær skráning í Reykjavíkurmaraþon
Reykjavíkurmaraþonið fagnar 40 ára afmæli í ár og allt útlit er fyrir að þátttaka verði frábær í ár.

Kurr í hlaupaheiminum vegna óvissu með Reykjavíkurmaraþonið
Óvíst er hvort keppendur í Reykjavíkurmaraþoninu í sumar fái tíma sína staðfesta af Frjálsíþróttasambandi Íslands. Deilur standa yfir milli skipuleggjenda og þeirra sem hafa séð um dómgæslu hlaupsins. Engin lausn virðist í sjónmáli og aðilar málsins eru meira að segja ósammála um hvar ágreiningurinn liggur.

Ósáttir karlar flautuðu á Fríðu
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fagnar 40 ára afmæli í ár og í tilefni þess verður öllu til tjaldað til að gera hlaupið sem glæsilegast. Þá verður því einnig fagnað að 40 ár eru liðin frá því að Fríða Bjarnadóttir hljóp fyrst íslenskra kvenna maraþon á Íslandi. Ári fyrr hafði henni verið meinuð þátttaka, því hún var kona.

Afhenti gjörgæslu 1,4 milljónir sem söfnuðust í Reykjavíkurmaraþoninu
Anna Gunnlaugsdóttir, sem hljóp hálfmaraþon í Reykjavíkurmaraþoninu í ágúst til styrktar gjörgæslu Landspítalans, hefur afhent deildinni 1,4 milljónir króna sem hún safnaði. Féð verður nýtt til að efla tækjakost.

Var á sínum besta tíma en rankaði við sér í sjúkratjaldi
Kristján Hafþórsson, stjórnandi Jákastsins, var í góðum gír í Reykjavíkurmaraþoninu í gær og í þann mund að setja sinn besta tíma í hálfmaraþoni þegar hann rankaði skyndilega við sér í sjúkratjaldi. Ástæðan reyndist ofreynsla og ofþornun og flytja þurfti Kristján á Landspítalann.

„Það hvarflaði ekki að neinum sem sá mig að eitthvað væri að hrjá mig”
„Parkinson læðist að manni eins og draugur um nótt. Þú áttar þig ekki á truflunum af hans völdum fyrr en þær eru farnar að íþyngja þér verulega,“ segir Sigrún Jónsdóttir en hún greindist með Parkinson sjúkdóminn fyrir átta árum, þá rétt rúmlega fimmtug.

Myndir og myndbönd: Stuð og stemning í 39. Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fór fram í 39. sinn í frábæru hlaupaveðri í dag. Margir lögðu leið sína í miðbæ Reykjavíkur til að styðja við hlaupara og stemningin var hreint útsagt frábær.

Styðja við Hjördísi sem missti fæturna í kjölfar sýklasóttarlosts: „Hjördís er okkar besta kona“
Hjördís Árnadóttir veiktist skyndilega árið 2011 og var lögð inn á spítala eftir sólarhrings veikindi. Í ljós kom að hún var með svæsna sýklasótt sem leiddi til sýklasóttarlosts og þess vegna varð að taka af henni báða fæturna fyrir neðan hné. Hún var þá einstæð, þriggja barna móðir og var veik í langan tíma. Veikindi leiddu til örorku og heilsutjóns sem hún er enn að berjast hetjulegri baráttu við.

Vondu minningarnar styrkja sigurvegarann
Andrea Kolbeinsdóttir er sigurvegari Reykjavíkurmaraþonsins í ár. Hún segir erfiðar minningar hafa keyrt sig áfram til sigurs.

Sumarið geggjað hjá Íslandsmeistaranum
Sigurjón Ernir Sturluson kom fyrstur Íslendinga í mark í Reykjavíkurmaraþoninu í dag. Hann segist hafa þurft að hafa mikið fyrir hlutunum.

Finnst stundum eins og Almar lifi og sé á leiðinni heim
Veröld Ástu Steinu Skúladóttur hrundi í desember 2021 þegar andleg veikindi drógu Almar Yngva Garðarsson, unnusta hennar, til dauða. Henni líður eins og hún hafi týnt sjálfri sér og finnst sem líf hennar hafi staðið í stað síðan Almar lést. Hún segir minningu hans ekki síst lifa í Eiríki Skúla, fjögurra ára syni þeirra, og þau ætla að hlaupa saman til minningar um hann í Reykjavíkurmaraþoninu á morgun.

Hefur safnað rúmri hálfri milljón fyrir félag sem greip fjölskylduna
Katrín Sunna Erlingsdóttir, níu ára stúlka sem greindist ung með krabbamein, ætlar að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu ásamt fjölskyldu sinni til styrktar Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna. Hún hefur þegar safnað rúmri hálfri milljón króna.

Hafa safnað 2,8 milljónum eftir að keppni fór af stað
Félagarnir Elías Guðmundsson og Lárus Welding, framkvæmdastjóri og stjórnarformaður meðferðarúrræðisins Krýsuvíkursamtakanna hafa samtals safnað rúmlega 2,8 milljónum króna fyrir Krýsuvíkursamtökin.

Útlit fyrir þokkalega bjarta menningarnótt
Það er útlit fyrir þokkalega bjarta menningarnótt, að sögn veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands. Lægðin sem liggur suður af suðvesturhorni landsins mun láta að sér kveða í næstu viku.

„Við hugsuðum til hennar á meðan við fórum í hér í gegn“
Vinir Rúnars Marínó Ragnarssonar ætla sér að hlaupa sex maraþon á sex dögum til að heiðra minningu Ingu Hrundar Kjartansdóttur, eiginkonu Rúnars. Þeir kalla sig HHHC hópinn og lögðu af stað frá Akureyri í gær.

Uppselt í hálfmaraþon og landsmenn í áheitahug
Skráning í Reykjavíkurmaraþonið sem fer fram á laugardaginn kemur, hefur farið fram úr björtustu vonum mótshaldara. Uppselt er í hálfmaraþonið og örfáir miðar eftir í heilmaraþonið, 10 kílómetra hlaupið og Skemmtiskokkið.

Hleypur berbrjósta með kúrekahatt
Leikkonan og grínistinn Birna Rún Eiríksdóttir stefnir á að hlaupa tíu kílómetra til styrktar Sorgarmiðstöðinni. Sjálf er hún stödd á Tenerife en verður í beinni útsendingu frá hlaupinu þann 19. ágúst næstkomandi.

„Þú þarft endurhæfingu eftir svona upplifun“
„Fyrir mér voru þetta mikilvæg fyrstu skref. Það sem skipti mig máli var að þarna fékk ég staðfestingu á minni upplifun. Það var svo gott að koma þarna og læra inn á þessi skref og öll þessi hugtök,“ segir Steinunn Þórðardóttir. Hún nýtti sér þjónustu Kvennaathvarfsins fyrir nokkrum árum og ber því vel söguna.

Vinnur hvert afrekið á fætur öðru fjörutíu kílóum léttari
Jóna Björk Sigurjónsdóttir 42 ára hjúkrunarfræðingur hefur undanfarin ár hlaupið Laugaveginn, orðið Landvættur og skráð sig í krefjandi nám. Allt eftir að hún ákvað að fara í magaermisaðgerð og byrja að hreyfa sig. Hún segir fitufordóma víða í samfélaginu þótt ljóst sé að það sé ekki hollt að vera í ofþyngd.

Völdu að sleppa því að gúgla og njóta tímans sem hún átti eftir
Í fyrra missti Rúnar Marínó Ragnarsson eiginkonu sína Ingu Hrund Kjartansdóttur úr brjóstakrabbameini. Inga var 37 ára gömul og hafði fram að því alltaf verið heilsuhraust og aldrei kennt sér meins.

„Það tók mig rosalega langan tíma að meðtaka það að hann hefði ákveðið sjálfur að deyja“
„Ég veit í dag að þetta er ekki mín ábyrgð og að það er ekkert sem ég hefði getað gert eða sagt til að koma í veg fyrir þetta,“ segir Hrafnhildur Rósa Guðmundsdóttir en hún missti stjúpföður sinn árið 2021. Hann féll fyrir eigin hendi.

„Þegar ég hætti að beita sjálfan mig ofbeldi og sýndi mér skilning fóru hjólin að snúast“
„Þegar mér leið illa, leiddist, var stressaður og þurfti að einbeita mér þá borðaði ég þar til að líkaminn sagði stopp. Og þá þyngdist á tilfinningunum enn þá meira. Þetta er vítahringur sem ég var fastur í,“ segir Jón Bergur Helgason.

„Það var alltaf einlægur vilji hans að vera edrú“
„Ég á rosalega margar staðsetningarlausar minningar tengdar pabba. Svona minningarbrot þar sem ég er með honum en ég veit ekkert hvar ég er. Í sumum þessum minningum er ég kannski einhvers staðar að borða með honum og það eru fullt af ókunnugu fólki, mest karlmönnum í kringum okkur,“ segir Hrefna Daðadóttir.

„Bróðir minn eyddi allt of mörgum árum bak við lás og slá í flestum fangelsum landsins“
„Hann langaði svo mikið að öðlast eðlilegt líf. Hann sagði að hann ætlaði aldrei að fara í fangelsi aftur. Hann var búinn að ganga í gegnum svakalega hluti í gegnum ævina og var löngu búinn að fá nóg af þessu öllu,“ segir Haraldur Freyr Helgason sem í tæp tuttugu ár horfði upp á eldri bróður sinn, fara inn og út úr fangelsi. Bróðir hans náði aldrei almennilegri fótfestu í lífinu og lést af völdum ofskömmtunar árið 2020.

Komu tómhent heim af fæðingardeildinni
„Eitt af því sem yfirlæknirinn á vökudeildinni sagði við okkur á sínum tíma var að það væri bara tvennt í stöðunni hjá okkur: annað hvort myndi þetta verða of erfitt fyrir okkur og við myndum hætta saman eða við ættum eftir að koma sterkari saman út úr þessu,“ segir Friðrik Svavarsson en hann og sambýliskona hans Steinunn Erla Davíðsdóttir hafa undanfarið ár gengið í gegnum langt og erfitt sorgarferli.

Fór frá því að vera heimilislaus fíkill yfir í að vera háskólanemi og móðir
Fyrir sjö árum síðan var Ásdís Birna Bjarkadóttir í harði neyslu fíkniefna og bjó á götunni. Í dag hefur hún lokið fyrsta ári í sálfræði, starfar hjá Velferðferðarsviði og Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar og er orðin móðir. Hún er ein af þeim sem nýtt hafa skaðaminnkandi úrræði á vegum Frú Ragnheiðar og segir þjónustuna hafa skipt sköpum.