Kóngafólk

Fréttamynd

Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti

Heilsu krónprinsessu Noregs hefur hrakað verulega undanfarna mánuði vegna lungnasjúkdóms og í gær var greint frá því að hún væri á biðlista fyrir ígrætt lunga. Lungnalæknir segir þó ekki hlaupið að því að fá grætt í sig lunga.

Erlent
Fréttamynd

Hafði leigu­tekjur af hús­næði krúnunnar

Andrew Mountbatten-Windsor hafði þrjá bústaði í eigu bresku krúnunnar í útleigu þar til í apríl síðastliðnum og hafði af þeim leigutekjur sem runnu til hans en ekki krúnunnar. Þetta leiðir skýrsla bresku ríkisendurskoðunarinnar í ljós, sem ráðist var í vegna hneykslismálsins sem tengist vináttu Andrew við milljarðamæringinn og barnaníðinginn Jeffrey Epstein.

Erlent
Fréttamynd

Krónprinsessan inn og út af sjúkra­húsi

Mette-Marit krónprinsessa af Noregi heimsótti sjúkrahús í dag ásamt Hákoni krónprinsi sem mætti fyrr til Noregs í morgun úr heimsókn sinni til Japan vegna veikinda prinsessunnar. Mette-Marit er með alvarlegan lungnasjúkdóm og hefur áður verið greint frá því að heilsu hennar hafi hrakað hratt.

Lífið
Fréttamynd

Styttir ferðina vegna veikinda krónprinsessunnar

Hákon, krónprins Noregs, snýr fyrr heim úr opinberri ferð sinni til Japans vegna veikinda Mette-Marit krónprinsessu. Dóttir hjónanna gerir einnig hlé á námi sínu í Ástralíu til að verja tíma með móður sinni.

Erlent
Fréttamynd

Margrét Þór­hildur aftur inn á sjúkra­hús

Margrét Þórhildur II Danadrottning hefur verið lögð inn á Ríkissjúkrahúsið í Kaupmannahöfn eftir að sneiðmyndataka leiddi í ljós mikla blóðsöfnun á mjaðmasvæði hennar. Um er að ræða afleiðingu falls, að því er fram kemur í tilkynningu frá konungshirðinni. Þetta er í annað sinn í mánuðinum sem Margrét er lögð inn á sjúkrahús.

Erlent
Fréttamynd

Til­kynntu ó­vart dauða konungsins

Breska útvarpsstöðin Radio Caroline, sem útvarpar til Miðhéraðanna og Suður-Englands, rauf spilun „What's Up“ með 4 Non Blondes til að greina ranglega frá dauða Karls III Bretakonungs, spila „God Save the King“ og minnast hans með fimmtán mínútna þögn

Lífið
Fréttamynd

Halla fagnaði átt­ræðum Karli Gústafi

Mikið er um dýrðir í Svíþjóð í dag þegar Karl Gústaf XVI Svíakonungur fagnar áttræðisafmæli. Halla Tómasdóttir forseti Íslands er í Stokkhólmi ásamt forsetamakanum Birni Skúlasyni en þjóðhöfðingjar allra Norðurlanda eru viðstaddir afmælishátíðina auk fjölda annarra þjóðarleiðtoga og gesta.

Innlent
Fréttamynd

Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor

Heimsókn Karls III Bretakonungs til Bandaríkjanna virðist hafa gengið með ágætum en hann sló bæði í gegn með þrumuræðu á þinginu og þegar hann gaf gestgjafa sínum, Donald Trump forseta, forláta bjöllu úr breska kafbátnum HMS Trump.

Erlent
Fréttamynd

Þing­menn klöppuðu ó­spart fyrir konunginum

Karl þriðji, konungur Bretlands, ávarpaði í gær sameinaðar deildir bandaríska þingsins. Það gerði hann fyrstur breskra kónga en móðir hans var fyrsta drottningin til að ávarpa þingmenn með þessum hætti, árið 1991.Bandaríkjamenn fagna um þessar mundir því að 250 ár eru liðin frá því að þeir lýstu yfir sjálfstæði frá Bretlandi. Í ræðu sinni ítrekaði konungurinn menningarleg tengsl Bretlands og Bandaríkjanna, þó samskipti ríkjanna hafi beðið hnekki að undanförnu.

Erlent
Fréttamynd

„Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, tók í dag á móti Karli Bretakonungi og Kamillu drottningu í Hvíta húsinu í Washington DC. Konungshjónin hófu í dag fjögurra daga opinbera heimsókn til Bandaríkjanna og ávarpaði Trump þau fyrir utan Hvíta húsið. Þar sagði Trump meðal annars frá því að móðir hans hefði verið skotin í Karli konungi á árum áður.

Erlent
Fréttamynd

Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra

Elísabet II hefði orðið hundrað ára í dag. Karl Bretakonungur minntist móður sinnar, af þessu tilefni, með ávarpi til bresku þjóðarinnar í dag. Hann segir að móðir sín hefði haft miklar áhyggjur af stöðu heimsmála en hún hafi haft óbilandi trú á því að gæskan myndi alltaf sigra að lokum.

Lífið
Fréttamynd

Leið­togar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni

Forsætisráðherra Kanada kallar eftir því að Andrew Mountbatten-Windsor verði tekinn af erfðaröðinni að bresku krúnunni. Fyrrverandi prinsinn var handtekinn fyrir nokkrum vikum, grunaður um brot í opinberu starfi.

Erlent
Fréttamynd

Er Jón Gnarr búinn að horfa að­eins of oft á Pretty Woman?

Árið 2002 heyrði Andrew Norfolk, blaðamaður málefna Norður-Englands hjá The Times, orðróm um skipulagða misnotkun á ungum hvítum stúlkum af hálfu karlmanna af pakistönskum uppruna. Kvað þingkona í Yorkshire sjö mæður af svæðinu hafa sagt menn sitja um dætur þeirra, misnota þær kynferðislega og láta þær ganga á milli manna sem þeim var sagt að sofa hjá.

Lífið
Fréttamynd

„Kalli“ setti Höllu í ó­þægi­lega stöðu með ó­væntri gjöf

Karl Bretakonungur setti Höllu Tómasdóttur forseta í nokkuð óþægilega stöðu þegar hún heimsótti Buckingham-höll í nóvember síðastliðnum. Ákveðið hafði verið að engin gjafaskipti færu fram en „Kalli“ eins og hún kallaði hann kom henni á óvart með rauðri gjafaöskju en Halla kom tómhent til Bretlands.

Lífið
Fréttamynd

Noregs­konungur á sjúkra­hús á Tenerife

Haraldur Noregskonungur hefur verið lagður inn á sjúkrahús þar sem hann er nú staddur á Tenerife. Ástæðan er sýking og vökvaskortur en að öðru leyti er ástand konungsins gott.

Erlent
Fréttamynd

Andrew á Louvre

Breskir aðgerðarsinnar hengdu upp innrammaða ljósmynd af Andrew Mountbatten-Windsor, fyrrverandi Bretaprinsi, á vegg í Louvre-safninu í gær. Á myndinni er flóttalegur Andrew í aftursæti bíls nýkominn úr gæsluvarðhaldi.

Menning
Fréttamynd

Stuðningur við norsku konungsfjölskylduna í frjálsu falli

Stuðningur Norðmanna við konungsfjölskylduna sína er í frjálsu falli þessa dagana. Samkvæmt nýrri skoðanakönnun á vegum norska ríkisútvarpsins styður 60 prósent Norðmanna konungsfjölskylduna og hlutfallið minnkar um tíu prósentustig á milli mánaða.

Erlent
Fréttamynd

Til skoðunar að taka Andrew úr erfðaröðinni

Breska ríkisstjórnin íhugar að leggja fram frumvarp sem felur í sér að Andrew Mountbatten-Windsor, fyrrverandi Bretaprins, verði sviptur erfðarétti sínum að bresku krúnunni þegar yfirstandandi lögreglurannsókn á máli hans er lokið.

Erlent
Fréttamynd

Andrew látinn laus

Andrew fyrrverandi Bretaprins hefur verið látinn laus úr haldi lögreglu á sjöunda tímanum í dag. Hann var handtekinn á heimili sínu í Wolferton í morgun vegna rannsókna á meintum leka á trúnaðargögnum, meðal annars til milljarðamæringsins og barnaníðingsins Jeffrey Epstein.

Erlent
Fréttamynd

Andrew hand­tekinn á heimili sínu

Breska lögreglan mætti í morgun heim til Andrew fyrrverandi Bretaprins við Sandringham höll og handtók hann. Vísir fylgist með málinu í vakt sem finna má neðst í fréttinni. Andrew á afmæli í dag og er 66 ára gamall.

Erlent