Frakkland

Tvöfalt fleiri hermenn munu gæta öryggis Frakka
Þjóðaröryggisráðstafanir voru færðar á hæsta stig í Frakklandi eftir að 21 árs karlmaður frá Túnis stakk þrennt til bana í Nice.

Lögregla skaut árásarmann til bana í Avignon
Maður vopnaður hnífi var skotinn til bana af lögreglu í frönsku borginni Avignon um klukkan 11:15 í morgun að staðartíma eftir að sá hafði reynt að stinga lögreglumenn á götu úti.

Þrír látnir eftir árás við kirkju í Nice
Að minnsta kosti þrír eru látnir og nokkrir eru særðir eftir hnífstunguárás við Notre Dame í miðborg frönsku borgarinnar Nice í morgun. Borgarstjóri segir að um mögulega hryðjuverkaárás sé að ræða.

Stór jólaboð mögulega bönnuð í Bretlandi
Breski dómsmálaráðherrann, Robert Buckland, hefur varað við því að stór jólaboð verði hugsanlega bönnuð í Bretlandi vegna útbreiðslu kórónuveirunnar.

Frakkar skella í lás í annað sinn
Hertar aðgerðir vegna kórónuveirufaraldursins í Frakklandi munu gilda út nóvember. Þá hafa þýsk stjórnvöld jafnframt ákveðið að grípa til frekari aðgerða.

Smituðum fjölgar á Skáni og Frakkar bíða eftir Macron
Skánn slapp nokkuð vel út úr fyrstu bylgju kórónuveirufaraldursins í vor.

Heathrow missir fyrsta sætið
Heathrow-flugvöllur í London hefur misst efsta sætið á listanum yfir umferðarþyngstu flugvelli Evrópu.

Tyrkir í hart vegna skopmyndar af Erdogan
Tyrklandsstjórn ætlar að grípa til bæði lagalegra og diplómatískra aðgerða vegna nýrrar skopmyndar franska blaðsins Charlie Hebdo af Recep Tayyip Erdogan forseta.

Tæplega fimmtán þúsund Þjóðverjar greindust með kórónuveiruna í gær
Rétt tæplega fimmtán þúsund manns greindust með kórónuveiruna í gær í Þýskalandi og hefur fjöldinn aldrei verið meiri frá upphafi faraldursins þar í landi.

Börn meðal þeirra sem létust þegar bátur sökk á Ermarsundi
Fjórir flóttamenn, þar af tvö börn, átta og fimm ára, eru látnir eftir að bátur sem átti að fyltja þá til Bretlands sökk.

Hríðversnandi staða í Evrópu
Neyðarástandi hefur verið lýst yfir á Spáni og hertar takmarkanir voru kynntar á Ítalíu vegna kórónuveirufaraldursins.

Erdogan hvetur til sniðgöngu og kallar Macron fasista
Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti hvatti landa sína í dag til þess að sniðganga franskar vörur.

Múslimar víða reiðir Macron
Yfirvöld í Frakklandi hafa kallað sendiherra sinn í Tyrklandi heim vegna ummæla Recep Tayyip Erdogan, forseta Tyrklands, sagði Emmanuel Macron, forseta Frakklands, vera veikan á geði.

Dauðsföll í Evrópu komin yfir 250.000
Fjöldi látinna í kórónuveirufaraldrinum fór yfir 250.000 manns í Evrópu í dag og varð álfan þar með annar heimshlutinn til að fara yfir þann þröskuld. Metfjöldi nýrra smita hefur greinst í Evrópu undanfarnar tvær vikur.

Franskir kennarar vilja leiðbeiningar og vernd
Franskir kennarar segjast ritskoða sjálfa sig til að forðast deilur við nemendur og kennara vegna trúarbragða og málfrelsis. Hrottalegt morð kennara, sem var myrtur vegna skopmynda af Múhammeð spámanni sem hann sýndi nemendum, hefur vakið mikla reiði í Frakklandi og komið af stað umræðu um frönsk gildi.

Greiddi nemendum til að benda á kennarann
Saksóknarar í Frakklandi halda því fram að tveir nemendur í skólanum þar sem Samuel Paty kenndi hafi fengið greitt fyrir að bera kennsl á hann fyrir morðingjans hans.

Fyrrverandi landsliðsmarkmaður Frakklands er látinn
Bruno Martini, fyrrverandi landsliðsmarkmaður franska knattspyrnulandsliðsins, er látinn, 58 ára að aldri.

Fimmtán í haldi lögreglu vegna hrottalegs morðs í Frakklandi
Fimmtán manns eru í haldi lögreglu eftir hrottalegt morð kennara í úthverfi Parísar á föstudag.

Húsleit hjá meintum íslömskum öfgamönnum eftir hrottalegt morð
Franska lögreglan gerði húsleit á heimilum tuga grunaðra íslamskra öfgamanna í morgun í kjölfar hrottalegs morðs á kennara í úthverfi Parísar á föstudag. Tugir samtaka múslima eru einnig sagðir til rannsóknar.

Réttað yfir síðasta leiðtoga hryðjuverkasamtakanna ETA
Síðasti þekkti leiðtogi basknesku hryðjuverkasamtakanna ETA kemur fyrir dómara í Frakklandi í dag þar sem hann er ákærður fyrir aðild að hryðjuverkum. Hann segist breyttur maður og biðst afsökunar á mannsdrápum, með fyrirvara.

Mannlausar götur í París
Umdeilt útgöngubann tók gildi í gærkvöldi í París svo og átta öðru borgum Frakklands. Götur borganna voru nær mannlausar en lögregla fylgdi því eftir að bannið væri virt.

Birti myndir af afhöfðuðu líkinu á Twitter
Maðurinn sem myrti kennara í úthverfi Parísar í gær beið fyrir utan skólann og bað nemendur að benda á skotmark sitt að sögn frönsku hryðjuverkalögreglunnar.

Níu hafa verið handtekin vegna morðsins
Kennarinn sem myrtur var í Conflans-Sainte-Honorine, úthverfi Parísar í gær hét Samuel Paty og var hann 47 ára að aldri.

Rannsaka hrottalegt morð á kennara sem hryðjuverk
Franska lögreglan rannsakar nú hrottalegt morð á kennara sem sýndi skopmyndir af Múhammeð spámanni í kennslustund sem hryðjuverk. Kennarinn var hálshöggvinn og skutu lögreglumenn árásarmanninn til bana.

Koma á útgöngubanni í Frakklandi
Útgöngubann til að hefta hraða útbreiðslu kórónuveirunnar tekur gildi í París og átta öðrum borgum í Frakklandi á laugardag. Emmanuel Macron, forseti, segir bannið verða í gildi í að minnsta kosti fjórar vikur. Neyðarástandi hefur verið lýst yfir vegna uppgangs veirunnar.

Hert á takmörkunum víða um Evrópu
Tékkar ætla að loka stórum hluta samfélagsins næstu þrjár vikurnar til að reyna að stemma stigu við útbreiðslu kórónuveirunnar. Fleiri þjóðir boða hertar reglur.

Evrópuríki hyggja á hertari aðgerðir
Hertar samkomutakmarkanir verða kynntar víða um Evrópu á næstu dögum en kórónuveirufaraldurinn er í miklum uppgangi víðast hvar í álfunni.

Nadal ekki enn tapað úrslitum á leir | Jafnar met Federer | Myndbönd
Rafael Nadal jafnaði í dag met Roger Federer er hann vann sinn 20. risatitil í einliðaleik karla í tennis. Konungur leirsins lagði Novak Djokovic í úrslitum Opna franska meistaramótsins í dag.

Fimm létust í árekstri fisflugvélar og útsýnisflugvélar
Fimm eru látnir eftir að árekstur varð á milli fisflugvélar og lítillar flugvélar í vesturhluta Frakklands síðdegis í dag.

Skráði sig í sögubækurnar með sigri á Opna franska | Myndband
Hin pólska Iga Świątek skráði sig í sögubækurnar er hún varð fyrst allra Pólverja til að vinna risamót í tennis.