
WOW Air

Þrotabú WOW Air stefnir Icelandair fyrir brot á samkeppnislögum
Þrotabú WOW Air hefur stefnt Icelandair fyrir meint brot gegn EES-samningnum og brot á samkeppnislögum.

WOW Air leigir húsnæði fyrir væntanlega söluskrifstofu í Washington
WOW Air hefur tekið húsnæði á leigu í Washingtonborg í Bandaríkjunum og merkt það félaginu. Til stendur að opna þar söluskrifstofu þegar félagið mun hefja flug á milli Washington og Keflavíkur. Þetta staðfestir Gunnar Steinn Pálsson, almannatengill félagsins.

Michelle Ballarin fór af landi brott í morgun
Bandaríska athafnakonan Michelle Ballarin fór af landi brott í morgun en hún hefur verið hér síðustu daga og unnið að endurreisn WOW Air.

Saka skiptastjóra WOW air um að hafa tvíselt eignir
Fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá WOW air hefur sakað skiptastjóra þrotabús flugfélagsins um að hafa tvíselt eignir úr búinu.

Takist ekki að leysa úr ágreiningi við flugfreyjur þarf að fara með málið fyrir héraðsdóm
Skiptastjórar hins fallna WOW Air hafa afgreitt kröfur allra launþegahópa flugfélagsins til Ábyrgðasjóðs launa að flugfreyjum undanskyldum. Takist ekki að leysa úr ágreiningi þeirra á milli þarf að fara með málið til héraðsdóms að sögn Sveins Andra Sveinssonar, skiptastjóra og hæstaréttarlögmanns.

Vikur frekar en mánuðir í fyrsta flug Ballarin
Undirbúningsferlið hefur verið tímafrekara en búist var við, bæði vegna hindrana sem orðið hafa á vegi skipuleggjenda, og nýrra tækifæra.

Krefst frávísunar málsins vegna aðildarskorts Skúla
Í gær fór fram fyrirtaka í máli Skúla Mogensen gegn Sveini Andra Sveinssyni, skiptastjóra þrotabús WOW air.

3,7 milljarða forgangskröfur samþykktar í þrotabú WOW air
Búið er að samþykkja níu hundruð forgangskröfur er nema alls 3,7 milljörðum króna í þrotabú WOW air. Boðað var til skiptafundar í þrotabúinu á Nordica hótel í dag og að sögn Þorsteins Einarssonar skiptastjóra voru flestar forgangskröfur samþykktar.

„Einfaldlega ekki rétt“ að rekstur Wow air hefði aldrei gengið
Skúli Mogensen ítrekar að stefnubreyting í átt frá lággjaldamódelinu hafi að endingu orðið flugfélaginu að falli og reksturinn hafi hreinlega gengið mjög vel fyrstu árin.

Vill skiptastjóra WOW úr starfi
Skúli Mogensen, fyrrverandi forstjóri WOW air, hefur gert kröfu til Héraðsdóms Reykjavíkur um að Sveini Andra Sveinssyni verði vikið frá störfum sem skiptastjóra þrotabús flugfélagsins.

„Markmiðið er skýrt - að halda kostnaði í lágmarki“
Flugfélagið Play hyggst spara allt að sjö milljarða króna með minni yfirbyggingu og einfaldari kjarasamningum á næstu þremur árum, ef marka má fjárfestakynningu félagsins.

Landvernd leitar réttar síns vegna farþegastyrkja WOW
Umhverfisverndarsamtökin Landvernd ætla að leita réttar síns vegna styrkja sem safnað var fyrir samtökin í flugferðum WOW air og skiluðu sér ekki eftir fall flugfélagsins.

Segir að ríkið hefði átt að fara að fordæmi Þjóðverja
Skúli Mogensen, fyrrverandi forstjóri og eigandi hins fallna WOW Air, fullyrðir að það hafi verið hagkvæmara fyrir íslenska ríkið að koma að björgun flugfélagsins en að leyfa því að falla.

Grínaðist með að Skúli hefði getað frestað hruninu til 2010
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri fékk gesti á Peningamálafundi Viðskiptaráðs til að skella upp úr á Hilton Nordica í morgun. Fundurinn bar yfirskriftina Ótroðnar lágvaxtaslóðir

Play hefur sig til flugs til sex áfangastaða í vetur
Forstjóri Play, nýs lággjaldaflugfélags, segir eigið fé ríkulegt og að hugað hafi verið að loftlagsmálum við val á flugvélum. Play hefur sig til flugs í vetur, fyrst um sinn með tvær flugvélar.

Skúli hlakkar til að fara út í heim að leika
Skúli Mogensen, stofnandi og fyrrverandi forstjóri WOW air, dáist að þrautsegju fyrrverandi samstarfsfólks hjá WOW air sem kynnti flugfélagið Play til leiks á blaðamannafundi í Perlunni í dag.

Boðað til blaðamannafundar hjá WAB
Boðað hefur verið til blaðamannafundar í fyrramálið af forsvarsmönnum flugfélagsins sem kallast WAB, eða We Are Back, og byggir á grunni WOW air.

Má reikna með fleiri uppsögnum
Gjaldþrot WOW air er helsta ástæða þess að gert er ráð fyrir samdrætti í hagkerfinu á þessu ári að mati hagfræðideildar Landsbankans. Forstöðumaður segir von er á fleiri uppsögnum á næstu misserum og auknu atvinnuleysi.

WOW enn á flugi í Tælandi
Þrátt fyrir að starfsemi WOW air hafi verið stöðvuð þann 28. mars síðastliðinn má enn sjá vél flugfélagsins bregða fyrir í háloftunum.

Skúli og Gríma eiga von á sínu fyrsta barni
Skúli Mogensen, fyrrverandi forstjóri Wow air, og Gríma Björg Thorarensen eig von á sínu fyrsta barni saman.

Fær ekki milljónirnar eftir uppsögn hjá Wow í aðdraganda gjaldþrotsins
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað þrotabú flugfélagsins Wow air af kröfum flugvirkja sem sagt var upp störfum hjá flugfélaginu í desember síðastliðnum, skömmu áður en félagið var tekið til gjaldþrotaskipta eins og frægt er orðið.

Fiskur frekar en farþegar til að byrja með
Áherslur hins nýja WOW air sem bandaríska athafnakonan Michelle Ballarin hyggst endurreisa verða á fraktflutninga fremur en farþegaflug til að byrja með. Ballarin kom til Íslands um helgina.

Isavia stefnir íslenska ríkinu og ALC
Isavia hyggst á næstu dögum stefna íslenska ríkinu og flugvélaleigufélaginu Air Lease Corporation (ALC) fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Greiðslur úr ábyrgðasjóði launa til fyrrverandi WOW starfsmanna hafnar
Greiðslur úr ábyrgðasjóði launa til fyrrverandi starfsmanna WOW-air eru þegar hafnar. Búið er að greiða starfsmönnum BHM og er unnið að því að greiða flugstjórum og flugmönnum. Gert er ráð fyrir að greiðslur úr sjóðnum nemi 2,3 milljörðum í ár.

Glæsihýsi Skúla Mogensen á Seltjarnarnesi auglýst til sölu
Húsið er auglýst til sölu á vefsíðunni Oceanvillaiceland.com.

Tryggingin dugði fyrir 190 milljóna kröfum
Byrjað verður að greiða samþykktar kröfur á næstu dögum, að því er fram kemur í tilkynningu frá Ferðamálastofu.

WOW air frestar fyrstu ferðum til desember
Michele Ballarin, stjórnarformaður USAerospace Associates LLC, segir fyrirhugað að hefja sölu á flugmiðum hjá endurreistu WOW air í nóvember.

Dulles-flugvöllur segist ekkert hafa heyrt í Ballarin síðan í ágúst
Hópurinn sem vinnur að endurreisn WOW air hafa ekki verið í neinum samskiptum við Dulles-flugvöll í Washington frá því í ágúst síðastliðnum.

Óbreytt áform um jómfrúarflug í október
Enn stendur til að fyrsta flugferð endurreists WOW air verði í október.

Þriggja milljarða WOW-högg fyrir Isavia
Rekstrarafkoma af samstæðu Isavia fyrir fjármagnsliði og skatta á fyrri helmingi ársins 2019 var neikvæð um 942 milljónir króna, samanborið við jákvæða rekstrarafkomu upp á 2.186 milljónir árið á undan.