Vísindi

Sigurður Yngvi segist aldrei hafa áreitt Sigrúnu
Sigurður Ingvi segir þessu öfugt farið, að Sigrún hafi ráðist á sig.

Bráðnun íss á Suðurskautslandinu hraðari en talið var
Jöklar á austanverðu Suðurskautslandinu hafa fram að þessu verið taldir stöðugri en vestanmegin. Greining á gervihnattagögnum bendir til þess að þeir hreyfist nú hratt.

Fulltrúi mannkynsins kominn út fyrir áhrifasvæði sólarinnar í annað sinn
Voyager 2 fetaði í fótspor systufarsins Voyager 1 og komst út fyrir sólvindshvolfið í byrjun nóvember.

Hraðar loftslagsbreytingar taldar hafa valdið mesta aldauða jarðsögunnar
Allt að tíu gráðu hlýnun olli súrefnisþurrð í heimshöfunum sem leiddi til einhvers mesta aldauða í sögu lífs á jörðinni.

Nýjung boðar byltingu í greiningu krabbameina
Vísindamenn við Queensland-háskóla í Ástralíu hafa kynnt tækni sem opnar dyrnar fyrir ódýra og hraðvirka greiningu fyrir 90 prósent krabbameina. Aðeins þarf blóð- eða vefjasýni. "Þetta er mögnuð uppgötvun,“ segir einn rannsakenda.

Fjærhlið tunglsins heimsótt í fyrsta skipti
Chang'e 4 á að rannsaka yfirborð tunglsins og innra byrði þess. Gangi allt að óskum verður farið það fyrsta til að lenda á fjærhlið tunglsins.

Fallið frá niðurskurði til Rannsóknasjóðs
Ríkisstjórnin og meirihluti fjárlaganefndar ákváðu í gær að falla frá 144 milljóna króna niðurskurði á framlögum til Rannsóknasjóðs Vísinda- og tækniráðs.

Fjárfesting til framtíðar
Fyrirhugaður niðurskurður á fjárframlögum til Rannsóknasjóðs Rannís, sem Fréttablaðið greinir frá í dag, er köld kveðja til þeirra vísindamanna sem starfa hér á landi.

Forviða á hugmyndum um niðurskurð til Rannsóknasjóðs
Forseti Vísindafélags Íslendinga er hissa á fyrirhuguðum niðurskurði á framlögum til Rannsóknasjóðs. Prófessor við læknadeild HÍ og stofnandi lyfjaþróunarfyrirtækis segir að án styrkja hefði ekkert orðið af fyrirtæki sínu.

Osiris-Rex kemur að smástirninu Bennu
Geimfarið mun hringsóla um smástirnið þar til það snertir yfirborðið og safnar sýnum árið 2020. Þremur árum síðar á það að skila sýnunum til jarðar.

Bein útsending: Reyna aftur að flytja þrjá geimfara til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar
Soyuz-geimflaug verður skotið á loft frá Kasakstan klukkan 11:30 þegar önnur tilraun verður gerð til að koma þremur geimförum og birgðum til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar.

Klár í slaginn þrátt fyrir mistök við síðasta geimskot
Geimfarar sem skjóta á til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar á morgun eru klárir í slaginn og hafa litlar áhyggjur af öryggi sínu.

Eldri spár vanmátu áhrif loftslagsbreytinga
Þvert á fullyrðingar afneitara loftslagsvísinda hafa fyrri spár vísindamanna vanmetið áhrif loftslagsbreytinga sem nú eru komin fram.

Íslenskur vísindamaður mældi allt ljós alheimsins með hjálp risasvarthola
Kári Helgason, vísindamaður við Háskóla Íslands, er einn aðalhöfunda greinar sem birtist í vísindaritinu Science þar sem fjöldi ljóseinda í heiminum var mældur í fyrsta skipti með hjálp geislunar frá risasvartholum.

InSight baðar sig í sólinni á Mars
Geimfarið InSight hefur sent skilaboð til Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna, NASA, um að sólarrafhlöður farsins séu virkar.

Nasa boðar ítarlega rannsókn á Space X vegna hegðunar Musk
Nasa, Geimferðastofnun Bandaríkjanna, hefur ákveðið að hefja umfangsmikla rannsókn á öryggismenningu innan SpaceX og Boeing, fyrirtækjanna sem hafa samið við Nasa um að fljúga mönnuðum geimförum á vegum stofnunarinnar út í geim.

Þeir sem búa við kulda og myrkur líklegri til að drekka meira
Fólk sem býr í köldu loftslagi og við minna sólarljós er líklegra til að drekka meira að því er ný rannsókn leiðir í ljós.

Fundu nýlegan og risavaxinn loftsteinagíg undir Grænlandsjökli
Loftsteinninn sem skall á norðvesturodda Grænlands var líklega um kílómetri að breidd. Áreksturinn gæti hafa átt sér stað á síðustu ísöld.

Áætla má að skertur svefn kosti íslenskt samfélag 55 milljarða á ári
Ef kostnaður íslensks samfélags af skertum svefni landsmanna er svipaður og í Bandaríkjunum má áætla að hann sé um fimmtíu og fimm milljarðar króna árlega. Þetta segir forstjóri svefnrannsóknarfyrirtækisins Nox Medical sem í dag var valið framúrskarandi fyrirtæki í nýsköpun af Creditinfo.

Heiðraður vestan hafs fyrir framúrskarandi framlag til vísinda
Kristján Sæmundsson, jarðfræðingur hjá Íslenskum orkurannsóknum (ÍSOR), veitti í síðustu viku viðtöku verðlaunum samtakanna fyrir framlag sitt til jarðfræðikortalagningar og jarðhitarannsókna.

Hótelbókanir farnar að berast vegna almyrkva árið 2026 en ekki seinna vænna að hefja undirbúning
Birna Mjöll Atladóttir, hótelstýra á Hótel Breiðavík, vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið þegar henni tóku að berast beiðnir um bókanir fyrir nokkra daga í ágúst árið 2026 eða eftir um átta ár.

Ósonlagið byrjað að gróa en tekur áratugi að ná bata
Þó að merki séu um að ósongötin séu byrjuð að lokast verður ekki hægt að hrósa sigri fyrr en eftir miðja öldina.

Opna nýjan norðurljósavef og reikna strax með norðurljósum
Norðurljósavefurinn Auroraforecast fór í loftið í gær. Á vefnum eru ítarlegar upplýsingar um allt sem viðkemur norðurljósum yfir Íslandi.

Stórt skref í meðhöndlun mænuskaða
Tvíþætt meðferð sem byggir á markvissri raförvun og sjúkraþjálfun hefur skilað einstökum árangri í Sviss. Þrír einstaklingar, sem allir eru lamaðir fyrir neðan mitti, geta nú gengið, með og án örvunar.

Kepler-geimsjónaukinn loks allur
Einum árangursríkasta geimkönnunarleiðangri sögunnar lýkur á næstu vikum eftir að Kepler-geimsjónaukinn kláraði eldsneyti sitt. Athuganir hans hafa leitt til fundar þúsunda fjarreikistjarna.

Mannkyn valdið 60 prósent fækkunar dýra frá 1970
Mannskepnan hefur þurrkað út sextíu prósent af öllum spendýrum, fuglum, fiskum og skriðdýrum frá árinu 1970.

Ferkantaður ísjaki á Suðurskautslandinu vekur athygli
Í flug NASA náðust myndir af ísjaka með svo beinum köntum að það lítur út fyrir að hann hafi verið skorinn með hníf og með aðstoð vinkils.

Mögulega nægjanlegt súrefni á Mars fyrir örverur og svampa
Vísindamenn segja að saltvatn sem fundist hefur undir yfirborði Mars gæti innihaldið nægjanlegt súrefni fyrir örverur, álíka þeim og þekktust hér á jörðinni fyrir milljörðum ára.

Geimfar sent af stað í sjö ára ferðalag
Geimvísindastofnun Evrópu, ESA, í samvinnu með Geimvísindastofnun Japan, mun í nótt senda geimfar í langt ferðalag til Merkúr.

Krefjast þess að greinar þekkts hjartalæknis verði dregnar til baka
Athugun Harvard-háskóla leiddi í ljós að rúmlega þrjátíu greinar þekkts hjartalæknis hafi byggt á fölsuðum gögnum.