Akstursíþróttir

Schumacher orðinn afi
Sjöfaldi heimsmeistarinn í Formúlu 1, Michael Schumacher, varð á dögunum afi í fyrsta sinn.

Verstappen fagnaði sigri í Japan: „Þetta er ansi dýr sláttuvél“
Red Bull maðurinn Max Verstappen vann Japanskappaksturinn í formúlu 1 í nótt en þetta var fyrsti sigur hollenska heimsmeistarans á tímabilinu.

Sjáðu magnaðan lokahring Verstappen: „Jafnvel sá besti á ferli Max"
Formúlu 1 heimsmeistarinn Max Verstappen minnti heldur betur á sig í tímatökunni fyrir Japanskappaksturinn í nótt.

Verstappen á ráspólnum í Japan
Max Verstappen, ríkjandi heimsmeistari í formúlu 1, verður á ráspól í Japanskappakstrinum sem er fram í nótt.

„Það er algjört kjaftæði“
Sjöfaldi Formúlu 1 heimsmeistarinn Lewis Hamilton segir það algjört kjaftæði að hann sé búinn að missa trúnna á liði Ferrari á yfirstandandi tímabili eftir brösótta byrjun.

Pérez rætt við nokkur lið um endurkomu
Sergio Pérez segist hafa rætt við nokkur lið síðustu mánuði um möguleikann á að snúa aftur í Formúlu 1.

Verstappen óánægður með Red Bull fyrir að reka liðsfélagann
Helmut Marko, helsti ráðgjafi forstjóra Red Bull í Formúlu 1, segir að heimsmeistarinn Max Verstappen sé ósattur með meðferðina sem liðsfélagi hans fékk. Liam Lawson var sendur aftur niður í ungmennaliðið eftir að hafa ekki fengið stig í fyrstu tveimur keppnunum.

Segir að Schumacher sé ófær um að tala: „Staðan er mjög sorgleg“
Fréttamaður sem hefur góð tengsl við Michael Schumacher og fjölskyldu hans segir að Þjóðverjinn geti ekki talað og sé algjörlega upp á aðstoðarfólk sitt kominn.

Ballið búið hjá Hamilton og Vergara
Svo virðist sem glóðin hafi slokknað hjá ökuþórnum Lewis Hamilton og leikkonunni Sofíu Vergara.

Red Bull búið að gefast upp á Lawson
Þrátt fyrir að aðeins tveimur keppnum sé lokið á tímabilinu í Formúlu 1 bendir allt til þess að Red Bull ætli að skipta öðrum ökumanni sínum út.

Hamilton dæmdur úr leik í Kína
Sjöfaldi heimsmeistarinn Lewis Hamilton hefur verið dæmdur úr leik í kínverska kappakstrinum ásamt tveimur öðrum.

Piastri vann Kínakappaksturinn
McLaren byrjar tímabilið í Formúlu 1 vel en liðið hefur unnið fyrstu tvær keppnirnar. Í dag hrósaði Oscar Piastri sigri í kínverska kappakstrinum.

Hamilton vann sprettkeppnina en Piastri á ráspól
Lewis Hamilton á Ferrari fagnaði sigri í sprettkeppni næturinnar í Formúlu 1 í Sjanghæ í Kína. Oscar Piastri á McLaren varð annar en hann verður jafnframt á ráspól í keppni morgundagsins eftir góða tímatöku í morgun.

Fyrsti ráspóll Hamiltons í rauðu
Sjöfaldi heimsmeistarinn Lewis Hamilton verður á ráspól í sprettkeppni helgarinnar í Formúlu 1 kappakstrinum sem fram fer í Kína. Hann hefur því náð sínum fyrsta ráspól hjá nýju liði.

Eddie Jordan látinn
Eddie Jordan, sem var eigandi Jordan í Formúlu 1, lést í morgun, 76 ára að aldri. Banamein hans var krabbamein.

Formúlan gæti farið til Bangkok
Svo gæti farið að Formúlu 1 keppni færi fram í Bangkok, höfuðborg Taílands, á næstu árum.

„Þetta tímabil verður ekki fyrir hjartveika“
Christian Horner, liðsstjóri Red Bull liðsins í Formúlu 1, segir að komandi tímabil verði stærsta áskorun liðsins til þessa.

F1 2025: Guð gefðu okkur besta tímabil sögunnar
Tuttugu og fjórar keppnishelgar, tíu lið, tuttugu framúrskarandi ökumenn en aðeins einn þeirra stendur uppi sem heimsmeistari. Þetta er krúnudjásn akstursíþróttanna, Formúla 1.

Lofaði Hamilton að ræða ekki við Verstappen
Toto Wolff, liðsstjóri Formúlu 1 liðs Mercedes, gaf sjöfalda heimsmeistaranum Lewis Hamilton loforð þess efnis að hann myndi ekki reyna að fá Max Verstappen til liðs við Mercedes frá Red Bull Racing á meðan að Bretinn væri ökumaður liðsins.

Sár Verstappen hótar sniðgöngu
Ríkjandi Formúlu 1 heimsmeistarinn Max Verstappen er allt annað en sáttur með móttökurnar sem hann fékk í O2 höllinni í Lundúnum á eins konar frumsýningarkvöldi mótaraðarinnar á dögunum. Baulað var hressilega á Hollendinginn er hann var kynntur til leiks á umræddu kvöldi.

Dómur fallinn: „Þetta var viðbjóðslegt af mér og ég tek fulla ábyrgð“
Þrír menn hafa verið dæmdir í Þýskalandi fyrir að hafa reynt að kúga fé frá fjölskyldu Formúlu 1 goðsagnarinnar Michael Schumacher með því að hóta því að birta viðkvæmar upplýsingar úr sjúkraskrám hans sem og myndir af honum.

Hamilton klessti Ferrari-inn á fyrsta degi
Lewis Hamilton, einn þekktasti og sigursælasti ökumaður Formúlu 1 frá upphafi, gekk í raðir Ferrari fyrir komandi tímabil í F1. Hann vonar að fall sé fararheill eftir að klessa á þegar hann keyrði Ferrari-bíl sinn í fyrsta skipti.

Arftaki Hamiltons fékk bílprófið sex vikum fyrir fyrstu keppni tímabilsins
Andrea Kimi Antonelli, sem tekur við af Lewis Hamilton hjá Mercedes, er kominn með bílpróf, sex vikum fyrir fyrstu keppni hans í Formúlu 1.

Skælbrosandi Sofia snæddi með Lewis
Vel fór á með leikkonunni Sofiu Vergara og ökuþórnum Lewis Hamilton á stefnumóti í New York á þriðjudag.

Hamilton gæti ekki verið spenntari fyrir komandi tímabili
Lewis Hamilton, einn besti ökumaður Formúlu 1 frá upphafi, gæti ekki verið spenntari fyrir nýju upphafi en á næsta keppnistímabili mun hann keppa fyrir hönd Ferrari.

Meistarinn með nýjan félaga eftir að Perez var sparkað
Nú er orðið ljóst hver mun aka fyrir Red Bull liðið ásamt heimsmeistaranum Max Verstappen, eftir að ákveðið var að reka Sergio Perez.

Norris vann og tryggði McLaren fyrsta titilinn í 26 ár
Lando Norris hrósaði sigri í Abú Dabí kappakstrinum, síðustu keppni tímabilsins í Formúlu 1. Með sigrinum tryggði hann McLaren heimsmeistaratitil bílasmiða.

McLaren langt komið með að tryggja sér heimsmeistaratitil bílasmiða
Lando Norris verður fyrstur af stað og liðsfélagi hans, Oscar Piastri, annar í síðasta kappakstsri tímabilsins í Formúlu 1 sem fer fram í Abú Dabí á morgun. McLaren er langt komið með að tryggja sér heimsmeistaratitil bílasmiða.

Russell segir að Verstappen hafi hótað að klessa á hann
George Russell, ökumaður Mercedes, hefur svarað Max Verstappen. Hann segir að heimsmeistarinn hafi hótað að klessa á hann í kappakstrinum í Katar og meiða hann.

Heimavöllur heimsmeistarans tekinn af dagskrá
Hollenski kappaksturinn í Formúlu á Zandvoort brautinni verður tekinn af keppnisdagatali mótaraðarinnar eftir tímabilið 2026.