„Eins og að horfa á bíómynd“ Andri Broddason skrifar 16. september 2026 22:17 Ollie Millroy er enn á spítala eftir áreksturinn en hann er að jafna sig. Fern Millroy/BBC Sport Kappakstursökumaðurinn Ollie Millroy segist vera heppinn að vera á lífi eftir að hann lenti í hörðum árekstri í miðjum GT-kappakstri í Kína. Annar ökumaður, Loek Hartog, stoppaði bílinn sinn í miðri keppni og kom Millroy til aðstoðar.
Þegar Millroy lenti í árekstrinum varð mikill eldur í bíl hans og var hann fastur inni í bílnum í meira en mínútu áður en náð var að hjálpa honum úr bílnum. Loek Hartog stoppaði bílinn sinn um leið og hann sá eldinn og byrjaði að reyna að slökkva hann. Þegar tækifæri gafst náði hann að draga Millroy úr brakinu og koma honum í hendur lækna. Í viðtali við BBC Sport sagðist Millroy vera þakklátur Hartog þar sem hann hefði getað dáið ef hann hefði ekki fengið hjálp. „Hann brást strax við og gerði allt rétt. Þegar ég horfi til baka á myndbandið af atvikinu er eins og ég sé að horfa á bíómynd þar sem búið er að æfa þetta allt. Hann sá að eldurinn var of mikill til að ná mér úr bílnum svo hann sótti slökkvitæki til að minnka eldinn. Á endanum opnaðist glufa þar sem hann gat lyft mér úr bílnum sem hann nýtti.“ Ollie Millroy kveðst vera þakklátur fyrir að bruninn sem hann fékk hafi ekki verið slæmur og að hann sé á lífi yfirhöfuð hafi verið kraftaverk. „Ég er ekki trúaður á nokkurn hátt, en það var eins og hann væri forritaður til þess að draga mig úr þessum bíl. Atvikið hefur myndað ákveðin tengsl milli okkar. Ég mundi ekkert eftir árekstrinum en Loek kom á spítalann og sagði mér frá því sem gerðist. Við fórum báðir að hágráta því útkoman hefði getað verið allt önnur.“ Áreksturinn var harður og við hann brákuðust nokkur bein og fékk hann gat á lunga. Hann er búinn að vera á spítala í Kína síðan áreksturinn varð en hann man ekki hvað gerðist allt að klukkutíma eftir áreksturinn. „Að horfa á myndband af atvikinu er eins og að ég sé að horfa á einhvern annan. Ég talaði við Loek og tók af mér hjálminn vegna þess að mig skorti súrefni, en þetta var ekki ég. Líkaminn var ákveðinn í að lifa af og gerði það sem hann þurfti að gera.“
Akstursíþróttir Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Enski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Leik lokið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Heimir farinn frá Fylki Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Tré felld vegna Þjóðarhallar Slagur um starfið hjá Blikum og verður enginn í vörn hjá KR? Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira