
KSÍ

Las það í fjölmiðlum að hann myndi ekki lengur fylgja landsliðinu
Þorgrímur Þráinsson verður ekki lengur hluti af starfsliði A-landsliðs karla í fótbolta. Ástæðan er niðurskurður hjá landsliðum KSÍ en Þorgrímur fór ekki út í janúarferð A-landsliðsins.

Arnar lét Þorgrím víkja
Þorgrímur Þráinsson er hættur hjá íslenska karlalandsliðinu í fótbolta en hann hefur starfað í kringum liðið um árabil.

Opið bréf til Sævars Péturssonar vegna framboðs
Það þarf ekki að rifja upp langt aftur í tímann hvers vegna það er verið að kjósa nýjan formann innan Knattspyrnusambands Íslands, KSÍ.

Ingi býður sig ekki aftur fram og er ósáttur við gagnrýnina sem stjórn KSÍ fékk
Ingi Sigurðsson gefur ekki áfram kost á sér í stjórn KSÍ. Ástæða ákvörðunar hans er atburðarrásin síðsumars í fyrra sem leiddi til þess að stjórn sambandsins sagði af sér.

Er eitt stig af karlrembu í lagi?
„Já það má segja það, við erum ekki að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur, við erum að mæta karlrembu á hæsta stigi.“ Á þessum orðum Kristrúnar Heimisdóttur hefst greinin „Konur í knattspyrnu þurfa að berjast fyrir lífi sínu“ sem birtist í 2. tölublaði Skinfaxa árið 1991.

Styrkjum íþróttafélögin í landinu
Íþróttafélög, héraðssambönd og sérsambönd í landinu hafa tapað miklum fjármunum í Covid, tapið hleypur á milljörðum, ekki síst vegna fækkunar áhorfenda og niðurfellingar á viðburðum. Til viðbótar er það reynsla margra félaga að erfiðara sé að fá styrki frá fyrirtækjum en áður var.

Ívar býður sig fram í stjórn KSÍ: „Skiptir máli að fjölbreyttar raddir alls staðar af landinu heyrist“
Ívar Ingimarsson, fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu og atvinnumaður til fjölda ára, hefur tilkynnt að hann muni bjóða sig fram til stjórnar Knattspyrnusambands Íslands á ársþingi sambandsins sem fram fer undir lok mánaðarins.

Meirihluti stjórnar KSÍ vill sitja áfram en Borghildur ein eftir úr þeirri sem féll
Sex af þeim átta sem setið hafa í bráðabirgðastjórn Knattspyrnusambands Íslands síðan í október sækjast eftir endurkjöri á ársþingi sambandsins eftir hálfan mánuð.

„Knattspyrnusambandið þarf að vera meira til staðar fyrir félögin“
„Þetta kom upp fyrir rúmri viku síðan. Þá voru nokkrir aðilar sem höfðu samband við mig og ýttu mér af stað, var ekki beint með þetta efst í huga,“ sagði Sævar Pétursson í viðtali við Ríkharð Óskar Guðnason fyrr í dag.

Með „breiðari þekkingu úr hreyfingunni“ en Vanda „toppmanneskja“
„Mig langar að taka slaginn og held að það sé nauðsynlegt að fá inn aðila sem þekkir vel til innan úr starfi félaganna í hreyfingunni,“ segir Sævar Pétursson sem í dag lýsti yfir framboði til Knattspyrnusambands Íslands.

Sævar býður sig fram til formanns KSÍ
Sævar Pétursson hefur ákveðið að gefa kost á sér til formanns Knattspyrnusambands Íslands.

Vanda segir ekki rétt að KSÍ eigi nóg af pening og skorar á ríkið að koma með veglegt framlag
Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður Knattspyrnusambands Íslands, furðar sig á að enn eitt árið fái KSÍ ekki krónu úr afrekssjóði Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Sambandið hefur sótt um styrki síðustu ár en ekkert fengið.

„Ég hef brennandi áhuga og ástríðu fyrir því að taka þátt í þessari uppbyggingu“
Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður knattspyrnusambands Íslands, ætlar að bjóða sig fram til áframhaldandi setu sem formaður KSÍ.

Vanda vill leiða KSÍ áfram
Vanda Sigurgeirsdóttir ætlar að bjóða sig fram til áframhaldandi setu sem formaður KSÍ. Hún hefur gegnt starfinu frá því í byrjun október á síðasta ári.

Segir að Sævar fari gegn Vöndu í formannsslag hjá KSÍ
Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, ætlar að bjóða sig fram sem formaður Knattspyrnusambands Íslands á komandi ársþingi í næsta mánuði.

„Við þurfum að vinna fleiri fótboltaleiki“
Jóhannes Karl Guðjónsson tók í vikunni við stöðu aðstoðarþjálfara íslenska karlalandsliðsins í fótbolta. Hann er bjartsýnn á framhaldið hjá landsliðinu, en segir að liðið þurfi að fara að vinna fleiri fótboltaleiki.

Jóhannes Karl nýr aðstoðarþjálfari A-landsliðs karla | ÍA í þjálfaraleit
Jóhannes Karl Guðjónsson hefur verið ráðinn sem aðstoðarþjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta. Hann hefur störf nú þegar og hefur sagt starfi sínu hjá ÍA lausu.

Félögin hvött til að senda fleiri konur
Stjórn Knattspyrnusamband Íslands hefur sent knattspyrnufélögum landsins hvatningu um að huga að kynjaskiptingu á komandi ársþingi KSÍ.

Árgangur sendur í húsnæði KSÍ: Enn meiri mygla í Laugalækjarskóla
Mygla hefur greinst í fimm stofum Laugalækjarskóla til viðbótar við þrjár stofur sem þegar voru til viðgerðar. Nemendur í níunda bekk eru á leið í skrifstofuhúsnæði í stúkunni í Laugardalshöll þar sem þeim verður kennt á næstu fimm til sex vikum.

Sáttastur við að hafa fengið jákvæð svör frá leikmönnum
„Leikurinn spilaðist eins og við bjuggumst við, mjög lokaður og ekki mikið af færum,“ sagði Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari Íslands, eftir 1-1 jafntefli við Úganda fyrr í dag.

Stefnir á að finna sér nýtt lið í janúar
Jón Daði Böðvarsson hefur ekki átt sjö dagana sæla undanfarið. Hann fær ekkert að spila með liði sínu Millwall og missti í kjölfarið sæti sitt í íslenska landsliðinu. Jón Daði var valinn fyrir komandi verkefni landsliðsins í Tyrklandi og fór yfir stöðu mála á samfélagsmiðlum sambandsins í dag.

Grétar Rafn ráðinn til KSÍ
Knattspyrnusamband Íslands hefur ráðið Grétar Rafn Steinsson sem tæknilegan ráðgjafa knattspyrnusviðs. Ráðningin er til sex mánaða.

Þrír efstu á óskalista Arnars Þórs eru Íslendingar
Þrír efstu á óskalista Arnars Þórs Viðarssonar yfir næsta aðstoðarþjálfara íslenska karlalandsliðsins í fótbolta eru Íslendingar. Þeir eru allir í starfi sem stendur.

Ísland á sterkt mót í Bandaríkjunum í febrúar
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu verður meðal þátttökuliða á SheBelieves Cup (í. HúnTrúir mótinu) sem fram fer í Bandaríkjunum í febrúar á þessu ári.

Ekki búið að ráða nýjan aðstoðarþjálfara en Davíð Snorri og Ólafur Ingi hjálpa til í Tyrklandi
Nýr aðstoðarþjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta verður ráðinn seinna í þessum mánuði, eftir vináttulandsleikina í næstu viku.

Jón Daði og átta úr Víkingi og Breiðabliki í landsliðshópnum sem fer til Tyrklands
Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari karla í fótbolta, hefur valið 23 leikmenn í fyrstu tvo landsleiki ársins sem fram fara í Tyrklandi í næstu viku.

Eiður Smári segist ekki hafa orðið KSÍ að falli
Eiður Smári Guðjohnson, einn besti knattspyrnumaður Íslands frá upphafi og fyrrum aðstoðarlandsliðsþjálfari, lét í sér heyra á twitter. Tilefni færslunnar er fyrirsögn sem birtist í gærmorgun.

Íslandsmótið í fótbolta hefst um páskana
Knattspyrnusamband Íslands hefur birt drög að leikjadagskrá komandi keppnistímabils á Íslandi. Íslandsmótið hefur aldrei byrjað fyrr.

Ísland mætir Spáni í mars
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta mætir einu besta landsliði heims þegar liðið sækir Spánverja heim í lok mars.

Mæta tveimur þjóðum sem þeir hafa aldrei mætt áður í janúar
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta mætir tveimur þjóðum sem það hefur aldrei mætt áður í næsta mánuði.