Flug

Fréttamynd

Ó­lík­legt að eignir dugi fyrir launa­kröfum

Skiptastjóri þrotabús Play segir ólíklegt að eignir þrotabúsins dugi til að mæta öllum forgangskröfum á hendur því. Þá er ágreiningur milli starfsfólks og þrotabúsins um hvort starfsfólk eigi rétt á uppsagnarfresti upp á þrjá eða fjóra mánuði.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Öllu flugi dagsins af­lýst

Icelandair hefur aflýst öllu flugi sem var á áætlun dagsins, bæði innanlandsflugi og millilandaflugi. Öllu flugi annarra flugfélaga til og frá Keflavíkurflugvelli hefur sömuleiðis verið aflýst.

Innlent
Fréttamynd

Gular við­varanir um allt vestan­vert landið til morguns

Gular veðurviðvaranir eru nú í gildi um allt vestanvert landið og einu svæðin sem eru undanskilin eru Norðurland eystra, Austurland og Austfirðir. Á höfuðborgarsvæðinu verður viðvörun í gangi í allan dag og fram á morgundaginn en spáð er suðvestan hvassviðri og dimmum éljum. Annars staðar er einnig spáð hvassviðri eða jafnvel stormi og er varasamt að vera á ferðinni.

Veður
Fréttamynd

Sex­tíu flug­ferðum af­lýst vegna veðurs

Vegna veðurs hefur Icelandair aflýst öllum brottförum sínum fyrir hádegi á morgun og öllum komuflugum nema tveimur. Fleiri flugfélög hafa þurft að aflýsa flugferðum en gul viðvörun tekur gildi víða um land. 

Innlent
Fréttamynd

Reyna að rjúfa hljóðmúrinn án láta

Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) undirbúa aðra flugferð tilraunaflugvélarinnar X-59. Vonast er til þess að flugvél þessi eigi að geta rofið hljóðmúrinn án þess að því fylgi hinar hefðbundnu drunur og læti.

Erlent
Fréttamynd

Kjara­viðræður í dvala og þarf að „hreinsa borðið“ áður en gerður er nýr samningur

„Snúin mál“ sem lúta að réttindum um starfslok flugmanna Icelandair „þarf að leiða í jörð“ áður en hægt er að halda áfram eiginlegum viðræðum um nýjan kjarasamning, að sögn formanns Félags íslenskra atvinnuflugmanna, en þær hafa legið í dvala um nokkurt skeið. Náist þar saman geti „hlutirnir gerst hratt“ en síðasti formlegi samningafundur fór fram undir lok síðasta árs.

Innherji
Fréttamynd

Vildu helst Asíu­búa í flug til Græn­lands

Íslensk flugfélög hófu snemma flug til Grænlands. Fyrir 1950 voru bæði Flugfélag Íslands og Loftleiðir farin að sinna þar ýmsum verkefnum. Flugfélag Íslands, síðar Flugleiðir og nú Icelandair, hefur lengst af verið umvifamest íslenskra félaga í Grænlandsflugi.

Innlent
Fréttamynd

Allir sex látnir eftir að her­flug­vél brot­lenti í Írak

Allir sex í áhöfn bandarískrar eldsneytisflutningaflugvélar sem brotlenti í Írak í gær eru látnir. Ástæður slyssins eru enn til rannsóknar en svo virðist sem tvær flugvélar af gerðinni KC-135 hafi skollið saman við dælingu eldsneytis í háloftunum yfir Írak í gær. Önnur hafi þá hrapað til jarðar en flugmönnum hinnar tókst að lenda í Ísrael.

Erlent
Fréttamynd

Sam­tal hafið um Ísafjarðarflug

Viðræður eru hafnar milli Icelandair og Vegagerðarinnar um framhald áætlunarflugs til Ísafjarðar. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir of snemmt að segja til um hvernig þeim vindur fram.

Innlent
Fréttamynd

„Öryggi okkar fólks það eina sem skiptir máli“

Hartnær sexhundruð manns, þar af um eitthundrað og fimmtíu Íslendingar, eru að störfum fyrir Atlanta-flugfélagið á áhrifasvæði stríðsátakanna í Miðausturlöndum. Forstjóri Air Atlanta segir félagið fara að öllu með gát og allt sé gert til að tryggja öryggi starfsfólksins.

Innlent
Fréttamynd

Icelandair flaug Liverpool til Istanbúl

Vél Icelandair flutti leikmenn karlaliðs Liverpool í fótbolta til Istanbúl í dag. Liðið mætir Galatasaray í Tyrklandi í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu annað kvöld.

Fótbolti
Fréttamynd

Hundruð þúsunda far­þega stranda­glópar vegna stríðs í Íran

Hundruðum flugferða hefur verið aflýst í Miðausturlöndum og hundruð þúsunda farþega eru strandaglópar og helstu flugstöðvar í Mið-Austurlöndum eru lokaðar vegna stríðs Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran. Íslendingar eru víða í vandræðum í Asíu og Miðausturlöndum vegna lokana.

Erlent
Fréttamynd

Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upp­lýsingum

Hafsteinn Karlsson var á leið til Íslands frá Kaupmannahöfn með konu sinni á fimmtudaginn þegar stefnan var óvænt tekin á Akureyri vegna veðuraðstæðna á Keflavíkurflugvelli. Við tóku um átta klukkustundir af óvissu í komusalnum á Akureyrarflugvelli þar sem mörghundruð manns var gert að bíða í fleiri klukkutíma. 

Innlent
Fréttamynd

Flug­far­þegar í hrakningum

Sextán farþegavélar með tvö þúsund farþega um borð gátu ekki lent í Keflavík fimmtudaginn 26. febrúar vegna veðurs. Þeim var því vísað á varaflugvelli á Akureyri, Egilsstöðum og í Reykjavík. Ég var farþegi í einni vélinni sem lenti á Akureyri, ásamt á þriðja hundrað annarra farþega.

Skoðun
Fréttamynd

„Ég er ekki að úti­loka neitt, það er allt uppi á borðinu“

Innviðaráðherra útilokar ekki að tilboð Icelandair í áætlunarflug milli Ísafjarðar og Reykjavíkur verði samþykkt þrátt fyrir að vera langt yfir áætlun. Tilboðið er það eina sem barst og hljóðar upp á þrjá og hálfan milljarð króna, það er ríflega tveimur milljörðum yfir áætlun Vegagerðarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Gjald­þrot Play nemur 21 milljarði króna

Heildarkröfur í þrotabú flugfélagsins Play sem varð gjaldþrota í september nema um 21 milljarði króna. Ólíklegt er að nokkuð fáist upp í almennar kröfur í búið en meðal þeirra er sekt frá Umhverfisstofnun upp á 2,2 milljarða króna. Skiptastjóri segir að skipti Play muni taka nokkur ár enda ljóst að einhverjir angar skiptanna munu rata til dómstóla.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Síðustu strandaglóparnir komust til Kefla­víkur í nótt

Síðustu farþegar Icelandair sem lentu í töfum vegna hríðarbyls við Keflavíkurflugvöll síðdegis í gær og var því lent á varaflugvöllum voru komnir til Keflavíkur um tvöleytið í nótt. Forstjóri segir leiðakerfi Icelandair hafa verið komið á réttan snúning í morgun og segir starfsfólk hafa unnið þrekvirki.

Innlent
Fréttamynd

Hreyflaskipti á flug­vél dýrari en ein­býlis­hús

„Það er allt dýrt í flugi. Það er bara svoleiðis,“ svarar Magnús Sigurjónsson, flugrekstrarstjóri innanlandsflugs Icelandair, þegar spurt er hversvegna fargjöldin séu svona dýr. Hann nefnir sem dæmi hreyflaskipti á Dash 8-vélunum.

Innlent