Helga Vala hættir á þingi Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, ætlar að hætta á þingi og snúa sér að lögmennsku. Hún segist ekki ætla að hætta í Samfylkingunni. 2.9.2023 08:23
Skaut ólétta konu sem sökuð var um búðahnupl til bana Yfirvöld í Ohio í Bandaríkjunum birtu í gær myndband sem sýnir þegar lögregluþjónn skaut ólétta unga konu til bana, eftir að hún hafði verið sökuð um þjófnað í verslun. Fjölskylda konunnar kallar eftir því að umræddur lögregluþjónn verði rekinn og ákærður fyrir banaskotið. 2.9.2023 08:17
Var rændur og þurfti á slysadeild Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í nótt tilkynning um rán í Austurbæ. Gerendur höfðu ekkert upp úr krafsinu flytja þurfti þolanda ránsins á slysadeild. Að öðru leyti mun hafa verið rólegt í miðborginni í nótt en þó voru rúmlega sextíu mál skráð í bækur lögreglu. 2.9.2023 07:24
Leggja til leiðir til að auka samkeppni Samkeppniseftirlit Íslands leggur til að stjórnvöld grípi til aðgerða til að efla samkeppni á flutningamarkaði með ýmsum aðgerðum. Er það sagt vera mikilvægt og þá meðal annars vegna hækkana á vöruverði síðustu mánuði. 1.9.2023 15:50
Skutu ferðamenn sem villtust á sæþotum Menn í strandgæslu Alsír eru sagðir hafa skotið tvo ferðamenn til bana á þriðjudaginn. Það gerðu þeir þegar ferðamennirnir fóru inn á yfirráðasvæði Alsír á sæþotum en þeir voru í fríi í Marokkó. Þriðji ferðamaðurinn var handtekinn en þeim fjórða tókst að synda á brott. 1.9.2023 14:22
Íbúar Hong Kong búa sig undir það versta Talið er að fellibylurinn Saola geti valdið miklum skaða á Hong Kong þegar hann fer þar yfir í dag. Íbúum hefur verið gert að búa sig undir það versta. 1.9.2023 11:57
Ástandinu í Afríku líkt við „faraldur alræðis“ Gabon hefur verið vikið úr Afríkubandalaginu eftir að herinn handsamaði Ali Bongo, forseta landsins, og tók þar völd. Nefnd sambandsins um frið og öryggi fordæmir valdaránið en þetta er áttunda valdaránið á svæðinu á þremur árum. 1.9.2023 10:42
Birtir bréf frá lækni eftir að hann fraus Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikana í öldungadeild Bandaríkjaþings, hefur sent út bréf frá lækni þingsins þar sem fram kemur að heilsa hans komi ekki í veg fyrir áframhaldandi störf. Það er í kjölfar þess að McConnell fraus á blaðamannafundi í Kentucky í vikunni og var það í annað sinn sem það gerðist á tiltölulega skömmum tíma. 1.9.2023 09:09
Kenndu öðrum að tæla konur í „Stríðsherbergi“ Samskipti milli Andrew Tate og samstarfsmanna hans benda til þess að þeir og menn þeim tengdir hafi tælt tugi kvenna til þess að taka upp klámefni sem þeir birtu á netinu. Afrit af samskiptum þeirra var lekið til BBC en miðillinn segist hafa fundið minnst 45 möguleg fórnarlömb Tate og félaga hans. 31.8.2023 16:19
„Þessi yfirlýsing er virðislaus“ Letitia James, ríkissaksóknari New York-ríkis, hefur beðið dómara um að kanna hvort Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hafi ofmetið háhýsi sín, golfvelli og aðra eignir í ríkinu um meira en tvo milljarða dala. James hefur sakað Trump og börn hans um umfangsmikil fjársvik. 31.8.2023 15:13