Ásgeir Örn valdi bestu örvhentu leikmenn Olís deildar karla: Óvæntur leikmaður á toppnum Ásgeir Örn Hallgrímsson – fyrrum landsliðsmaður Íslands og sérfræðingur Seinni bylgjunnar – sem valdi bestu fimm örvhentu leikmenn Olís deildar karla. 27.10.2020 23:30
Heimsmeistarinn dæmdur í tveggja ára bann | Missir af Ólympíuleikunum Christian Coleman hefur verið dæmdur í tveggja ára keppnisbann eftir að hafa misst af þremur lyfjaprófum í röð. Hann mun þar af leiðandi missa af Ólympíuleikunum í Tókýó á næsta ári. 27.10.2020 23:01
Martin með góða innkomu í naumum sigri Martin Hermansson kom inn af bekk Valencia er liðið marði eins stigs sigur á Monbus Obradoiro í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld, lokatölur 79-78 Valencia í vil. 27.10.2020 22:45
Liverpool marði Midtjylland | Mikael kom af bekknum Liverpool vann brösugan 2-0 sigur á Danmerkurmeisturum Midtjylland í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Mikael Neville Anderson lék 25 mínútur í leik kvöldsins. 27.10.2020 21:50
Bæði Íslendingaliðin lönduðu sigrum í Evrópudeildinni Kristianstad og GOG unnu leiki sína í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld. Landsliðsmennirnir Teitur Örn Einarsson og Viktor Gísli Hallgrímsson léku með liðum sínum. 27.10.2020 21:20
Haukur Helgi átti góðan leik er Andorra vann loks Evrópuleik Haukur Helgi Pálsson spilaði sinn þátt í fyrsta Evrópusigri MB Andorra á leiktíðinni í kvöld. Þá átti Elvar Már Friðriksson frábæran leik er lið hans Siauliai tapaði í litháensku bikarkeppninni. 27.10.2020 20:50
Forseti Barcelona segir af sér | Verður Messi áfram? Svo virðist sem Lionel Messi hafi haft betur í valdabaráttu spænska stórliðsins Barcelona en forseti félagsins - Josep Maria Bartomeu - sagði af sér nú í kvöld. 27.10.2020 20:16
Noregur og Danmörk tryggðu farseðilinn á EM Danmörk og Noregur unnu leiki sína í undankeppni EM í knattspyrnu í dag. Bæði lönd því með fullt hús stiga og komin með farseðilinn á EM. 27.10.2020 18:46
Forseti FIFA með kórónuveiruna Gianni Infantino, forseti Alþjóðaknattspyrnusambandsins [FIFA] greindist í dag með kórónuveruna. FIFA greindi frá þessu í fréttatilkynningu sem sambandið gaf út í dag. 27.10.2020 18:05
Þrír leikmenn úrvalsdeildarinnar stóðust ekki lyfjapróf á síðustu leiktíð Þrír leikmenn ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu stóðust ekki lyfjapróf deildarinnar á síðustu leiktíð. Tveimur var ekki refsað þar sem 27.10.2020 07:01