Guðlaugur Victor og félagar í Schalke 04 misstigu sig Þýska stórliðið Schalke 04 náði aðeins jafntefli er Holstein Kiel kom í heimsókn á Veltins-völlinn í Gelsenkirchen í B-deildinni þar í landi, lokatölur 1-1. Guðlaugur Victor Pálsson var fyrirliði Schalke í leiknum. 16.1.2022 14:31
Newcastle að sækja þýskan landsliðsmann Hið nýríka knattspyrnu Newcastle United er í þann mund að festa kaup á sínum þriðja leikmanni í janúarfélagaskiptaglugganum. Vinstri bakvörðurinn Robin Gosens ku vera á leið til félagsins frá Atalanta á Ítalíu. 16.1.2022 13:46
Þróttur heldur áfram að bæta við sig leikmönnum Sæunn Björnsdóttir hefur gengið til liðs við Þrótt Reykjavík á lánssamningi frá Haukum. Mun hún leika með liðinu í efstu deild kvenna í knattspyrnu í sumar. 16.1.2022 12:30
Bills slátraði Patriots og heldur áfram leið sinni í átt að Ofurskálinni Tveir leikir fóru fram í hinni svokölluðu „Wild Card“ umferð NFL-deildarinnar í nótt. Buffalo Bills vann 30 stiga sigur á New England Patriots, 47-17 og Cincinnati Bengals unnu Las Vegas Raiders 26-19. Bills og Bengals eiga því enn möguleika á að komast í leikinn um Ofurskálina. 16.1.2022 12:01
EM-hlaðvarp Seinni bylgjunnar: „Getum klárlega ekki spilað svona opna vörn á móti Hollendingunum“ Farið var yfir hollenska landsliðið í EM-hlaðvarpi Seinni bylgjunnar að loknum glæstum sigri á Portúgal í fyrstu umferð riðlakeppni EM í handbolta. Hvað þarf Ísland að varast í leik kvöldsins? 16.1.2022 11:35
Djokovic sendur úr landi: Fær ekki að verja titilinn í Ástralíu Tenniskappinn Novak Djokovic hefur tapað dómsmáli sínu í Ástralíu og verður sendur úr landi. Hann fær því ekki tækifæri til að verja titil sinn en hann hefur unnið Opna ástralska undanfarin þrjú ár. 16.1.2022 10:58
Martial segir Ralf ljúga Lífið virðist ekki leika við Manchester United þessa dagana. Liðið henti frá sér 2-0 forystu gegn Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni og nú hefur Anthony Martial, franski framherji liðsins, ásakað þjálfara þess um lygar. 16.1.2022 10:31
Vandræði Lakers halda áfram og aftur lágu Nautin í valnum Vandræði Los Angeles Lakers í NBA-deildinni í körfubolta halda áfram en liðið steinlá gegn Denver Nuggets í nótt. Þá hafði Boston Celtics betur gegn Chicago Bulls. Alls fóru 10 leikir fram í deildinni í nótt. 16.1.2022 09:30
Sóknarmennirnir okkar þurfa að stíga upp Thomas Tuchel, þjálfari Chelsea, var ekki parsáttur með framherja sína eftir 1-0 tap liðsins gegn Manchester City í uppgjöri toppliða ensku úrvalsdeildarinnar. 16.1.2022 09:00
EM-hlaðvarp Seinni bylgjunnar um Ómar Inga: Hann var alveg geggjaður í leiknum „Við höfðum áhyggjur af því í upphitunarþættinum að þetta yrði svolítið mikið á herðum Arons (Pálmarssonar, fyrirliða Íslands) en það var alls ekki tilfellið gegn Portúgal. Ómar Ingi (Magnússon) sem við vorum að kalla eftir steig upp og var ofboðslega flottur í þessum leik.“ 15.1.2022 23:01