Twitter eftir naumt tap Íslands: „Búinn að læra mjög mörg nöfn á nýjum íslenskum hetjum“ Ísland lauk leik á Evrópumóti karla í handbolta í dag með einkar súru eins marks tapi gegn Noregi í framlengdum leik. Hér að neðan má sjá það helsta sem gerðist á samfélagsmiðlinum Twitter á meðan leik stóð og eftir leik. 28.1.2022 17:51
Ómar Ingi: Er loksins að spila af eðlilegri getu þó það sé margt hægt að bæta „Ég held það sé alveg tía. Þetta var bara svekkjandi í dag, við börðumst og gáfum allt en þetta voru bara smáatriði í lokin,“ sagði Ómar Ingi Magnússon – ein af hetjum Íslands á Evrópumótinu í handbolta – um hversu þreyttir menn væru á skalanum 1-10 eftir allt sem íslenska liðið hefur gengið í gegnum. 28.1.2022 17:15
Fyrirliðinn Ýmir Örn: Ég elska þessa stráka alveg út af lífinu „Ég held bara að við höfum allir gefið allt sem við áttum í þetta mót. Hvað þá í dag. Þetta eru skrítnar tilfinningar,“ sagði Ýmir Örn Gíslason, fyrirliði Íslands, eftir einkar súrt eins marks gegn Noregi tap um 5. sætið á EM í handbolta í dag. 28.1.2022 17:00
Bjarki Már: Bjartsýnn en svekktur að hafa ekki unnið í dag Bjarki Már Elísson, ein af stjörnum íslenska landsliðsins í handbolta, var eðlilega mjög svekktur eftir súrt eins marks tap Íslands gegn Noregi í framlengdum leik um 5. sæti mótsins. Ekki nóg með að leikur dagsins hafi verið upp á 5. sæti Evrópumótsins heldur var sæti á HM í Póllandi og Svíþjóð á næsta ári í boði. 28.1.2022 16:45
Chelsea neytt til að stækka búningsklefann vegna kvartana mótherja Enska knattspyrnufélagið Chelsea þarf að stækka útiklefann á Brúnni, heimavelli sínum, eftir kvartanir frá bæði Liverpool og Brighton & Hove Albion. 27.1.2022 07:00
Dagskráin í dag: Landsleikur í E-fótbolta, ÍR mætir í Keflavík og nóg af golfi Það er nóg um að vera á rásum Stöðvar 2 Sport í dag og kvöld. 27.1.2022 06:01
Hollenska markamaskínan hefur rætt við bæði PSG og Barcelona Hollenska markadrottningin Vivianne Miedema hugsar sér til hreyfings. Hún spilar í dag með Arsenal í ensku úrvalsdeildinni en hefur rætt við bæði París Saint-Germain og Evrópumeistara Barcelona. 26.1.2022 23:31
Qvist til liðs við Breiðablik Danski varnarmaðurinn Mikkel Qvist hefur samið við Breiðablik og mun leika með liðinu næsta sumar. Hann kemur til félagsins frá AC Horsens í Danmörku. 26.1.2022 23:00
Vítaspyrnudrama er Egyptaland og Miðbaugs-Gínea voru síðust inn í átta liða úrslit Sextán liða úrslit Afríkukeppninnar í knattspyrnu kláruðust í kvöld. Seint verður sagt að um opna og mikla markaleiki hafi verið að ræða en báðir leikir kvöldsins enduðu með markalausu jafntefli. Réðust úrslitin í vítaspyrnukeppni. 26.1.2022 22:21
Umfjöllun: Danmörk - Frakkland 29-30 | Takk fyrir ekkert Danmörk leiddi nær allan leikinn gegn Frakklandi til þess eins að tapa með eins marks mun og kosta Ísland þar með sæti í undanúrslitum Evrópumótsins í handbolta. Takk fyrir ekkert Danmörk. 26.1.2022 21:45