Jafnt hjá Hollandi og Króatíu Holland og Króatía gerðu jafntefli í lokaleik sínum í milliriðli á Evrópumótinu í handbolta í kvöld. Lokatölur leiksins 28-28. 26.1.2022 18:45
Íslendingar munu styðja Dani í kvöld: „Vi er røde vi er hvide!“ Bjarki Már Elísson, landsliðsmaður Íslands, mun styðja frændur vora Dani er þeir mæta Frökkum á EM í handbolta í kvöld. Það á einnig við um Twitter-samfélagið hér á landi. 26.1.2022 18:30
Jóhannes Karl nýr aðstoðarþjálfari A-landsliðs karla | ÍA í þjálfaraleit Jóhannes Karl Guðjónsson hefur verið ráðinn sem aðstoðarþjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta. Hann hefur störf nú þegar og hefur sagt starfi sínu hjá ÍA lausu. 26.1.2022 17:50
Twitter: Móðurlegar tilfinningar í garð Viktors Gísla og stoðsendingavélin úr Pizzabæ Ísland vann magnaðan tíu marka sigur á Svartfellingum í síðasta leik liðsins í milliriðli á Evrópumótinu í handbolta. Sigurinn þýðir að Ísland þarf nú að treysta á Dani til að eiga möguleika á að komast í undanúrslit mótsins. 26.1.2022 16:40
Þjálfari Malaví ekki sáttur með aðstæðurnar í Afríkukeppninni Malaví og Marokkó mætast í 16-liða úrslitum Afríkukeppninnar í knattspyrnu síðar í dag. Mario Marinică þjálfari Malaví er ekki sáttur með forráðamenn keppninnar. 25.1.2022 07:00
Dagskráin í dag: Enski boltinn og Ljósleiðaradeildin Alls eru tvær beinar útsendingar á dagskrá á rásum Stöðvar 2 Sport í dag. 25.1.2022 06:00
EM-hlaðvarp Seinni bylgjunnar: „Fannst vanta smá greddu þarna í lokin“ Stefán Árni Pálsson, Róbert Gunnarsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson fóru yfir grátlegt tap Íslands gegn Króatíu á Evrópumótinu í handbolta í dag. 24.1.2022 23:30
Minnst sex létust í troðningi fyrir sigur Kamerún Kamerún, mótshaldari Afríkukeppninnar í knattspyrnu, er komið í 8-liða úrslit eftir sigur á Kómoreyjum í kvöld. Mikill áhugi var fyrir leiknum og reyndi fjöldinn allur af fólki að komast inn á leikvanginn með skelfilegum afleiðingum. 24.1.2022 22:39
Newcastle bjartsýnt á að fá Lingard, Dele eða Ramsey fyrir gluggalok Það gengur frekar brösuglega hjá Newcastle United að nýta nýtilkomið ríkidæmi sitt en Eddie Howe stefnir á að fá inn fleiri leikmenn áður en félagaskiptaglugginn lokar um mánaðarmótin. Meðal nafna sem eru orðuð við félagið eru Jesse Lingard, Dele Alli og Aaron Ramsey. 24.1.2022 22:31
Alexander Helgi ekki með Breiðabliki í sumar Miðjumaðurinn Alexander Helgi Sigurðarson mun ekki spila með Breiðabliki í sumar. Hann hefur samið við sænska þriðju deildarfélagið Vasalunds um að leika með liðinu meðan hann stundar nám í Svíþjóð. 24.1.2022 22:01