Hörður Björgvin kvaddi með víkingaklappi Hörður Björgvin Magnússon spilaði í kvöld sinn síðasta leik fyrir CSKA Moskvu. Kvaddi hann aðdáendur liðsins með víkingaklappinu fræga. 21.5.2022 23:30
Luka næstur á eftir Wilt og Jordan Slóveninn Luka Dončić er einstakur körfuboltamaður, á því leikur enginn vafi. Hann ásamt goðsögnunum Wilt Chamberlain og Michael Jordan eru þeir leikmenn sem hafa skorað flest stig í fyrstu 25 leikjum sínum í úrslitakeppni NBA-deildarinnar frá upphafi. 21.5.2022 23:01
Anadolu Efes vann EuroLeague með minnsta mun Tyrkneska körfuknattleiksfélagið Anadolu Efes er Evrópumeistari eftir að sigra Real Madríd með minnsta mögulega mun í úrslitaleik EuroLeague, lokatölur 58-57. Barcelona endaði í þriðja sæti með tíu stiga sigri á Olympiacos, lokatölur þar 84-74. 21.5.2022 22:30
Juventus endaði á tapi | Fiorentina í Sambandsdeildina Lokaumferð Serie A, ítölsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta, hélt áfram í kvöld. Juventus tapaði 2-0 fyrir Fiorentina á útivelli. Empoli vann 1-0 útisigur á Atalanta og þá gerði Lazio 3-3 jafntefli við Hellas Verona. 21.5.2022 22:01
Leipzig bikarmeistari eftir sigur í vítaspyrnukeppni RB Leipzig varð í kvöld þýskur bikarmeistari í fótbolta eftir sigur á Freiburg. Það þurfti vítaspyrnukeppni til að skera úr um sigurvegara eftir að staðan var jöfn 1-1 að loknum venjulegum leiktíma. 21.5.2022 21:30
Mbappé hélt upp á nýja samninginn með því að skora þrennu Kylian Mbappé skoraði þrennu er París Saint-Germain valtaði yfir Metz 5-0 í lokaumferð frönsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. 21.5.2022 21:01
„Fyrir mér mikilvægast að láta fótboltann tala“ Norska markadrottningin Ada Hegerberg var eðlilega í sjöunda himni eftir magnaðan 3-1 sigur Lyon á Barcelona í úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Ada var að sjálfsögðu á skotskónum en það er ekki sjálfsagt eftir undanfarin misseri hjá þessari mögnuðu íþróttakonu. 21.5.2022 20:40
Hjörtur í úrslit | Willum Þór tapaði í bikarúrslitum Það var misjafnt gengi þeirra Hjartar Hermannssonar, leikmanns Pisa á Ítalíu, og Willum Þórs Willumssonar, leikmanns BATE Borisov í Hvíta Rússlandi. 21.5.2022 20:15
Lyon er Evrópumeistari | Sjáðu mörkin og atvikin Sara Björk Gunnarsdóttir og stöllur hennar í Lyon eru Evrópumeistarar kvenna í fótbolta eftir ótrúlegan 3-1 sigur á Barcelona. Sara Björk Gunnarsdóttir sat allan tímann á varamannabekk Lyon. 21.5.2022 19:00
Hólmbert Aron og félagar ósigraðir á toppnum Hólmbert Aron Friðjónsson lék tæpan hálftíma er Lilleström vann 4-1 útisigur á Sandefjord í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. 21.5.2022 18:31