Fjórtán dagar í EM: „Ég á sjö frabær systkini“ Vísir telur niður í Evrópumót kvenna í fótbolta sem fram fer í Englandi í júlí og kynnir leikmenn íslenska landsliðsins. Reynsluboltinn og harðhausinn Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir er næst í röðinni. 26.6.2022 11:00
Þorleifur á skotskónum og valinn maður leiksins Tveir Íslendingar léku í MLS-deildinni í fótbolta í nótt. Þorleifur Úlfarsson skoraði fyrra mark Houston Dynamo í 2-0 sigri og Róbert Orri Þorkelsson kom af bekknum í 2-1 sigri CF Montréal. Þá skoraði Óttar Magnús Karlsson í sigri Oakland Roots. 26.6.2022 10:00
Fimmtán dagar í EM: Er að læra taugafræði í Harvard og elskar mjólkurgraut með súru slátri og rúsínum Vísir telur niður í Evrópumót kvenna í fótbolta sem fram fer í Englandi í júlí og kynnir leikmenn íslenska landsliðsins. Ungstirnið Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir, leikmaður Breiðabliks og nemandi við Harvard háskóla, er næst í röðinni. 25.6.2022 11:01
Engin gert fleiri þrennur í WNBA-deildinni Hin 36 ára gamla Candace Parker skráði sig á spjöld sögunnar er lið hennar Chicago Sky rúllaði yfir Los Angeles Sparks, 82-59. Parker gerði þrefalda tvennu og hefur þar með gert flestar þrennur í sögu deildarinnar. 24.6.2022 19:47
Eftir smá hikst hefur allt gengið upp síðan Brynjar Björn fór til Svíþjóðar Það fór um stuðningsfólk HK þegar Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari karlaliðs félagsins í knattspyrnu, hélt til Örgryte í Svíþjóð skömmu eftir að Íslandsmótið var farið af stað. Þær áhyggjur reyndust algjör óþarfi ef marka má síðustu leiki liðsins. 24.6.2022 17:01
Banchero valinn fyrstur í nýliðavali NBA-deildarinnar og Mobley bræður sameinaðir Nýliðaval NBA-deildarinnar í körfubolta fór fram með pompi og prakt í nótt. Paolo Banchero var valinn fyrstur og mun hann spila fyrir Orlando Magic á komandi tímabili. 24.6.2022 16:30
Yfirgefur Fram og fer til föður síns í Þorpinu Framherjinn Alexander Már Þorláksson hefur samið við Þór Akureyri í Lengjudeildinni og mun færa sig um set þegar félagaskiptaglugginn opnar á næstu dögum. Hann kemur frá Fram í Bestu deildinni þar sem tækifæri hafa verið af skornum skammti. 24.6.2022 15:00
Forseti PSG sýknaður í annað sinn Nasser Al-Khelaifi, forseti Frakklandsmeistara París Saint-Germain, hefur verið sýknaður öðru sinni. Hann var ásakaður um að mútur og spillingu er kom að sölu sjónvarpsrétts HM í knattspyrnu sem fram fer í Katar síðar á þessu ári. 24.6.2022 14:01
Bættu rúmlega tveggja áratuga met ÍBV Stórsigur Breiðabliks á KR í Bestu deild karla á fimmtudag fer í sögubækurnar. Var Breiðablik þar að vinna sinn 16. heimaleik í röð í efstu deild. Síðasta tap liðsins á Kópavogsvelli kom í fyrstu umferð síðasta tímabil þegar KR vann þar 2-0 útisigur. 24.6.2022 12:01
Sextán dagar í EM: Elskar fisk og hefur unnið söngvakeppni Kópavogs Vísir telur niður í Evrópumót kvenna í fótbolta sem fram fer í Englandi í júlí og kynnir leikmenn íslenska landsliðsins. Reynsluboltinn, og leikmaður Bayern München, Glódís Perla Viggósdóttir er næst í röðinni. 24.6.2022 11:01