Sú markahæsta óvænt til Mexíkó og ekki með á EM Spænska landsliðið hefur orðið fyrir miklu höggi í aðdraganda Evrópumótsins sem fram fer í Englandi í júlí. Stórstjarnan Jennifer Hermoso verður ekki með liðinu á mótinu og það sem meira er, hún yfirgefur stórlið Barcelona fyrir lið í Mexíkó. 24.6.2022 09:30
Ronaldo íhugar að yfirgefa Man United vegna metnaðarleysis á leikmannamarkaðnum Stórstjarnan Cristiano Ronaldo er langt því frá ánægður með metnaðarleysi Manchester United á leikmannamarkaðnum. Félagið á enn eftir að festa kaup á sínum fyrsta leikmanni síðan Erik ten Hag tók við. 24.6.2022 09:01
Mistækir KR-ingar gáfu toppliðinu hvert markið á fætur öðru Breiðablik, topplið Bestu deildar karla í fótbolta, gerði sér lítið fyrir og vann KR 4-0 í gær. Gestirnir gerðu sér einkar erfitt fyrir en segja má að fyrstu tvö mörk leiksins hafi verið hrein og bein gjöf. Mörkin má sjá hér að neðan. 24.6.2022 08:00
Segir umboðsmenn leikmanna reyna að græða á ástandinu í Úkraínu Sergei Palkin, framkvæmdastjóri úkraínska knattspyrnufélagsins Shakhtar Donetsk, hefur ásakað hina ýmsu umboðsmenn um að reyna græða á ástandindu í Úkraínu. 24.6.2022 07:30
Ragnheiður heim í Hauka Handknattleikskonan Ragnheiður Sveinsdóttir hefur samið við Hauka á nýjan leik eftir tveggja og hálfs árs dvöl hjá Val á Hlíðarenda. Hún varð bikarmeistari með Val á síðustu leiktíð en hefur nú ákveðið að snúa á heimaslóðir. 23.6.2022 19:45
Framlengdi í Þýskalandi þrátt fyrir áhuga Chelsea og Man United Christopher Nkunku hefur framlengt samning sinn við þýska úrvalsdeildarfélagið RB Leipzig til ársins 2026. Nkunku vakti mikla athygli á síðustu leiktíð og voru ensku úrvalsdeildarfélögin Chelsea og Manchester United bæði á eftir honum. 23.6.2022 16:02
„Myndi vilja sjá okkur fara upp úr riðlinum“ „Ótrúlega gaman, erum allar búnar að vera bíða eftir þessu og ég held að það séu allar mjög spenntar,“ sagði Alexandra Jóhannsdóttir, leikmaður Eintracht Frankfurt og íslenska landsliðsins, um undirbúning íslenska landsliðsins fyrir EM í fótbolta sem fram fer í júlí. 23.6.2022 15:30
O´Neal yngri í nýliðavalinu: Æfði með Lakers Shareef O‘Neal, sonur hins goðsagnakennda Shaquille O‘Neal, er meðal þeirra leikmanna sem verða í nýliðavali NBA deildarinnar í körfubolta sem fram fer í nótt. O‘Neal yngri æfði með liðinu sem faðir hans er hvað þekktastur fyrir að spila með. 23.6.2022 15:01
Segir fertugan Zlatan athyglissjúkan Það fer ekkert á milli mála að sænski framherjinn Zlatan Ibrahimović elskar sviðsljósið. Einn af hans fyrrverandi samherjum, Hakan Çalhanoğlu, hefur litla þolinmæði er kemur að skrípalátum Svíans. 23.6.2022 13:30
Geta endanlega kveðið KR-grýluna í kút og sparkað henni út á hafsauga Breiðablik vann loks sigur á KR er liðin mættust í Bestu deild karla í fótbolta þann 25. apríl síðastliðinn. Þau mætast á nýjan leik á Kópavogsvelli í kvöld og getur topplið deildarinnar endanlega kveðið KR-grýlu sína í kútinn. 23.6.2022 13:00