„Fullkomið kvöld“ Kylian Mbappé skoraði öll þrjú mörkin þegar Evrópumeistarar Real Madríd unnu 3-1 sigur á Manchester City og tryggðu sér farseðilinn í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu. Eðlilega talaði hann um hið fullkomna kvöld að leik loknum. 19.2.2025 22:48
Haukar halda sér í toppbaráttunni Haukar lögðu Stjörnuna með sex marka mun í Olís deild karla, lokatölur í Garðabænum 23-29. 19.2.2025 22:31
PSG slátraði Brest á leið sinni í 16-liða úrslit París Saint-Germain niðurlægði Brest þegar liðin mættust í síðari leiknum í umspili um sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Þar sem PSG vann fyrri leikinn 3-0 og leik kvöldsins 7-0 þá var staðan í einvíginu 10-0 PSG í vil. 19.2.2025 22:16
Janus Daði öflugur í súru tapi Fjöldinn allur af íslenskum landsliðsmönnum kom við sögu í Meistaradeild Evrópu í handbolta. Því miður fagnaði enginn sigri. 19.2.2025 21:50
Stólarnir stríddu toppliðinu Tindastóll stríddi toppliði Hauka þegar liðin mættust í Ólafssal. Á endanum áttu Stólarnir ekki nóg til að leggja topplið Bónus deild kvenna í körfubolta að velli. Þá heldur botnlið Aþenu áfram að tapa leikjum. 19.2.2025 21:46
Mögnuð Elín Klara þegar Haukar unnu Stjörnuna Haukar unnu fimm marka sigur á Stjörnunni þegar liðin mættust í Olís-deild kvenna í handbolta, lokatölur á Ásvöllum 29-25. 19.2.2025 20:15
Mbappé magnaður og meistararnir áfram Evrópumeistarar Real Madríd eru komnir áfram í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir frækinn 3-1 sigur á Manchester City. Kylian Mbappé laug því ekki að hann væri að nálgast sitt besta form en hann skoraði öll þrjú mörk Real í kvöld. 19.2.2025 19:31
Jafntefli niðurstaðan í frábærum leik á Villa Park Aston Villa og Liverpool gerðu 2-2 jafntefli í frábærum fótboltaleik á Villa Park í ensku úrvalsdeild karla. 19.2.2025 19:01
Faðir Gylfa Þórs segir Börk hafa gert samkomulag við sig Sigurður Aðalsteinsson segir Börk Edvardsson, fyrrverandi formann Knattspyrnudeildar Vals, hafa gert samkomulag við sig um að Valur myndi ekki standa í vegi Gylfa Þórs, sonar Sigurðar, færi svo að þessi þaulreyndi landsliðsmaður myndi vilja yfirgefa Val. 19.2.2025 17:55
Ancelotti svarar Guardiola: Trúir ekki sjálfur því sem hann er að segja Carlo Ancelotti, þjálfari Evrópu- og Spánarmeistara Real Madríd, segir engar líkur að Pep Guardiola, þjálfari Manchester City, trúi því að Englandsmeistarar City eigi aðeins eitt prósent möguleika á að fara áfram úr einvígi liðanna í umspili um sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. 19.2.2025 07:01