

Fréttamaður
Óttar Kolbeinsson Proppé
Nýjustu greinar eftir höfund

Tvö sveitarfélög reka enn ljósabekki
Tvö sveitarfélög reka ljósabekki ef marka má nýjustu talningu Geislavarna ríkisins á ljósabekkjum á landinu. Sérfræðingur segir bekkina geta verið gríðarlega hættulega og áhyggjuefni ef notkun þeirra er að aukast meðal ungs fólks.

Íbúðum í byggingu fjölgar alls staðar nema í Reykjavík
Fleiri íbúðir eru samanlagt í byggingu í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkurborgar en í borginni sjálfri. Þar fækkar íbúðum í byggingu milli ára á meðan hún eykst um tæp 90 prósent hjá hinum sveitarfélögunum samanlagt.

Ofskynjunarsveppir engin töfralausn en mikilvæg viðbót
22 þingmenn úr öllum flokkum nema Vinstri grænum hafa lagt fram tillögu á Alþingi um að heimila rannsóknir og tilraunir hér á landi með hugvíkkandi efni sem finnst í sveppum. Flutningsmaður frumvarpsins segir marga nota ofskynjunarsveppi í lækningaskyni og því sé mikilvægt að skapa lagalega umgjörð utan um notkunina.

Gjaldskrárhækkun Strætó skárri kostur af tveimur slæmum
Í dag var tilkynnt að gjaldskrá Strætó muni hækka um 12,5 prósent. Þetta er mesta hækkun sem fyrirtækið hefur farið í í langan tíma en fjárhagsstaða þess hefur verið afar slæm upp á síðkastið. Stjórnarmaður í Strætó segir nauðsynlegt að skoða hvernig eigi að reka almenningssamgöngur hér á landi.

Orðin lenska að taka langan tíma í kjarasamninga
Yfir 99 prósent kjarasamninga á Íslandi renna út áður en nýr samningur er gerður. Þetta er of hátt hlutfall sem skapar óvissu fyrir launafólk og atvinnurekendur að mati ríkissáttasemjara. Hann vonar að hægt verði að breyta þessari hefð í náinni framtíð.

Gríðarlegt tjón í tugum íbúða eftir fordæmalausa rafmagnsbilun
Margra milljóna króna tjón varð í tæplega hundrað íbúðum í Urriðaholti á föstudag þegar bilun kom í rafmagnsgötukassa og allt of há spenna komst inn á íbúðirnar. Gríðarlegur fjöldi heimilistækja skemmdist og dæmi eru um að lyftur í stigagöngum séu óvirkar.

Finnst fáránleg kenning að maðurinn tengist öfgahópum
Aðstandendur eins þeirra sem situr í gæsluvarðhaldi grunaður um að undirbúa hryðjuverk kannast alls ekki við að hann hafi aðhyllst öfgakennda hugmyndafræði eða átt í nokkrum samskiptum við erlenda pólitíska öfgahópa. Mennirnir tveir eru grunaðir um stórfellda framleiðslu á skotvopnum, meðal annars með þrívíddarprentara, og sölu á þeim.

Rölt um „ómanneskjulega hönnun“ nýja Orkuhússins
„Hönnunarslys“, jafnvel „ómanneskjuleg hönnun“ segja bíllausir um nýja Orkuhúsið í Urðarhvarfi. Þeir kvarta yfir hörmulegu aðgengi fyrir gangandi og hjólandi að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu.

Kvöldfréttir Stöðvar 2
Í kvöldfréttum ræðum við við kviðarholsskurðlækni um gríðarlega fjölgun magaerma- og hjáveituaðgerða hjá Íslendingum á síðustu tveimur árum. Um þriðjungur Íslendinga er of feitur í dag. Læknirinn segir úrelt að segja feitu fólki að borða minna og hreyfa sig meira.

Kvöldfréttir Stöðvar 2
Við hefjum fréttatímann á beinni útsendingu frá fréttamanni okkar Kristínu Ólafsdóttur sem er stödd í Lundúnum og fylgdist þar með útför Elísabetar annarrar Bretlandsdrottningar. Hún mun fara yfir daginn og sýna frá spjalli sínu við breska hermenn og íslensku forsetahjónin.