Engin herferð í gangi gegn fólki á ADHD-lyfjum af hálfu lögreglu Engin herferð er í gangi gegn fólki á ADHD-lyfjum af hálfu lögreglu. Þetta segir formaður Landssambands lögreglumanna sem bendir á að ef aksturslag vekur grunsemdir hjá lögreglumanni geti hann ekki tekið fólk á orðinu þegar það framvísi lyfseðli því lyfseðillinn einn og sér útiloki ekki notkun annarra lyfja. Það sé sígilt vandamál innan lögreglunnar þegar fólk stígur fram og segir frá samskiptum sínum við lögreglu að lögreglan geti ekki varið sig því hún sé bundin trúnaði. 8.9.2023 11:52
„Maður fer að velta fyrir sér hvort þarna geti verið á ferðinni mannréttindabrot“ Framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands veltir því fyrir sér hvort lögregla hafi brotið á mannréttindum annars mótmælandans í hvalveiðiskipinu með því að hafa svipt hana eigum sínum. Þá þurfi það að koma til alvarlegrar skoðunar hvort lögreglan hafi gætt meðalhófs í málinu. Fólk missi ekki mannréttindi sín við að viðhafa borgaralega óhlýðni. 5.9.2023 13:37
Lögregla hafi bakað ríkinu bótaskyldu Katrín Oddsdóttir lögmaður telur að lögreglan geti verið að baka íslenska ríkinu bótaskyldu með framgöngu sinni í morgun. Valgerður Árnadóttir, talskona Hvalavina, segir að stuðningsfólk mótmælanna hafi nú barist fyrir því í fleiri klukkustundir að gefa mótmælendunum vatn. 4.9.2023 18:35
„Verðum að hafa hugrekki til að stoppa þegar við erum komin út í algjöran skurð.“ Stofnandi True North er uggandi vegna hvalveiða við Íslandsstrendur og hefur verulegar áhyggjur af vaxandi andstöðu áhrifafólks í kvikmyndaiðnaði á alþjóðavísu vegna málsins. Lögmaður fyrirtækisins segir skilningsleysi einkenna viðbrögð stjórnvöld eftir að krafa þeirra um lögbann á starfsemina var send til baka. 4.9.2023 13:16
„Ég veit hver tapar á þessu, það er almenningur“ Þorsteinn Sæmundsson, fyrrverandi þingmaður Miðflokksins, segir leyndina við uppgjör Lindarhvols hafa hvatt hann til að halda málinu á lofti. Hann segir ljóst að það sé almenningur sem tapi ef ekkert verður aðhafst í málinu. 7.7.2023 21:05
Lindarhvolsskýrslan birt Greinargerð setts ríkisendurskoðanda, Sigurðar Þórðarsonar, um Lindarhvolsmálið hefur verið birt á vefsíðu Pírata. Það að skýrslan hafi ekki verið birt var gífurlega umdeilt á sínum tíma og strandaði sú ákvörðun á forseta Alþingis. 6.7.2023 14:29
Landrisið bendi til kraftmikils goss Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur, segir umfang og útbreiðslu landriss á Reykjanesskaga benda til þess að nægilegt kvikumagn sé til staðar til þess að búa til kraftmikið gos. Slíkt gos yrði stærra en gos á Reykjanesskaga árið 2021 og 2022. Ljóst sé að kvika sé búin að ryðja sér til rúms í efri hluta jarðskorpunnar. 5.7.2023 16:37
Íbúar vanir skjálftum en þeir séu alltaf jafn óþægilegir Það er erfitt að venjast sífelldum jarðskjálftum segir formaður Bæjarráðs Grindavíkur og vettvangsstjóri hjá Lögreglunni á Suðurnesjum. Nú sé góður tímapunktur fyrir íbúa að fara yfir öll öryggisatriði sem þurfa að vera í lagi í skjálftahrinu. 5.7.2023 11:47
Tvöfaldir heimsmeistarar á tveimur dögum: „Ég er hálf orðlaus“ Íslenskir dansarar frá DansKompaní í Reykjanesbæ unnu tvenn gullverðlaun á heimsmeistaramótinu í dansi í dag. Skólastjóri DansKompaní segir að dugnaður og liðsheild sé galdurinn á bakvið þennan magnaða árangur. 3.7.2023 18:36
Stjórnvaldssektin með þeim hærri í sögu Persónuverndar Landlæknisembættinu hefur verið gert að greiða um tólf milljónir króna í sekt fyrir að hafa ekki tryggt öryggi persónuupplýsinga á hluta vefsvæðis Heilsuveru með fullnægjandi hætti. Úrskurður Persónuverndar var birtur í dag en málið sjálft er um þriggja ára gamalt. 3.7.2023 14:52