Íslendingar sárir, svekktir og súrir: „Evrópa er ekki með eyru“ Þrátt fyrir fagmannlega frammistöðu hlaut Diljá Pétursdóttir ekki brautargengi hjá Evrópubúum á seinna undanúrslitakvöldi Eurovision í kvöld. Íslendingar flykktust á samfélagsmiðla til að lýsa yfir vonbrigðum með niðurstöðuna. 11.5.2023 22:30
Diljá komst ekki áfram Diljá Pétursdóttir, fulltrúi Íslands í Eurovision, komst ekki áfram á seinna undanúrslitakvöldi keppninar sem haldið var í Liverpool í kvöld. 11.5.2023 21:09
Íslendingar ánægðir með flutning Diljár Íslendingar voru yfir sig hrifnir af flutningi Diljár Pétursdóttur á Power á seinna undanúrslitakvöldi Eurovision í kvöld. Forsætisráðherrann, borgarstjórinn og fjöldi annarra lýstu yfir stuðningi og aðdáun sinni á Diljá á samfélagsmiðlum. 11.5.2023 20:57
Dóttir DeNiro komin með nafn Dóttir stórleikarans Robert DeNiro sem fæddist 6. apríl síðastliðinn hefur fengið nafnið Gia Virginia Chen-DeNiro. Móðir barnsins er Tiffany Chen, Tai Chi-leiðbeinandi, en hún er 35 árum yngri en DeNiro. 11.5.2023 18:56
Fjórtán ára stúlka í feluleik skotin í höfuðið Fjórtán ára stúlka var skotin í höfuðið þegar hún var í feluleik á landareign manns í bænum Starks í Louisiana. Maðurinn sem skaut stúlkuna hefur verið handtekinn og ákærður en stúlkan er ekki talin vera í lífshættu. 10.5.2023 01:51
Freyja orðin fósturmamma: „Ég elska hann mjög mikið“ Freyja Haraldsdóttir, baráttukona og réttindagæslumaður fatlaðs fólks, er orðin fósturforeldri eftir margra ára baráttu við kerfið. Hún segir biðina hafa verið langa og stranga en það hafi verið þess virði og það sé magnað að vera móðir unglingsins Steve. 10.5.2023 00:18
Telja nauðsynlegt að efla viðbúnað vegna netárása, njósna og skemmdarverka Fjölþáttahernaður gegn Íslandi á átakatímum gæti haft mikil áhrif og einsýnt sé að efla verði viðbúnað, fælingarmátt og viðnámsþrótt íslensks samfélags auk alþjóðlegrar samvinnu til þess að fyrirbyggja eða draga sem mest úr þeim skaða sem slíkar árásir kunna að valda. 9.5.2023 21:04
Sjöunda barn DeNiro komið í heiminn Leikarinn Robert DeNiro greindi frá því í viðtali í gær að hann væri nýbúinn að eignast sitt sjöunda barn. Sjálfur verður DeNiro áttræður í ágúst en það er ekki enn vitað hvað barnið heitir né hver móðir þess er. 9.5.2023 18:47
Ákærður fyrir nauðgun á skemmtistað Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann fyrir nauðgun á salerni ónefnds skemmtistaðar í Reykjavík í lok mars á síðasta ári. Maðurinn er sagður hafa stungið getnaðarlim sínum í munn konu sem gat ekki spornað við verknaðinum vegna ölvunar. 9.5.2023 17:39
Fyrst ríkið passi ekki upp á eftirlit verði notendur að geta gert það sjálfir Fyrirtækið Varlega selur vímuefnapróf sem gerir notendum kleift að athuga hvort vímuefni eru hrein eða menguð með öðrum efnum. Annar stofnanda segir að fyrst löggjafinn passi ekki upp á gæðaeftirlit verði notendur að geta gert það sjálfir. Hann sér fram á að slík próf verði í framtíðinni staðalbúnaður í skaðaminnkandi úrræðum. 29.4.2023 07:00