Leitin ekki borið árangur í nótt Leit að karlmanni um tvítugt sem féll í Fnjóská hefur enn ekki borið árangur. Leitað hefur verið að manninum síðan um klukkan 18.30 í gær. Fram kemur í tilkynningu frá Lögreglunni á Norðurlandi eystra að viðbragðsaðilar hafi verið við leit að manninum í nótt og að leitin hafi ekki borið árangur. Þegar maðurinn hvarf ofan í ánna var hann með þremur félögum sínum. 31.5.2024 07:08
Skrifuðu bók um Sólrúnu Öldu og brunann í Mávahlíð Nemendur í 6. bekk Varmárskóla afhentu í gær Sólrúnu Öldu Waldorff bók sem þeir sömdu um batagöngu hennar síðan hún slasaðist alvarlega í eldsvoða fyrir nokkrum árum. Fram kemur í tilkynningu um bókina að Sólrún Alda hafi heimsótt skólann fyrr í vetur og sagt nemendum sögu sína. Heimsóknin hafi verið liður í verkefni um eldvarnir. 30.5.2024 14:14
Nafn konunnar flúrað á það allra heilagasta Össur Hafþórsson, skipuleggjandi íslensku tattú ráðstefnunnar, Icelandic Tattoo convention, segir margt hafa breyst í tattúlistinni síðustu ár. Ráðstefnan verður haldin um helgina í 17. sinn. Um 30 flúrarar verða á hátíðinni. Össur er sjálfur flúraður um allan líkamanna. Fyrsta tattúið fékk hann sér á öxlina. 30.5.2024 13:45
Segir enn svigrúm til að taka fram úr Katrínu Ólafur Þ. Harðarson prófessor emeritus í stjórnmálafræði segir kosningabaráttur hafa verið harkalegri en sú sem nú stendur yfir. Baráttan sé samt sem áður sú sem mest spennandi hafi verið allt frá því að Vigdís var kjörin forseti árið 1981. Katrín sé líklegust til að vinna en Halla Hrund, Halla Tómasdóttir og Baldur eigi öll enn sjens í sigur. 30.5.2024 11:08
Lentu í Minneapolis vegna bilunar Melding um smávægilega bilun kom upp í flugvél Icelandair á leið frá Denver í Bandaríkjunum til Keflavíkur i nótt. Í samræmi við verklag og öryggisstaðla var ákveðið að lenda í Minneapolis og láta flugvirkja skoða vélina áður en haldið væri áfram yfir hafið. 30.5.2024 10:01
Wise og Þekking orðin eitt Wise og Þekking hafa nú sameinast, en á síðasta ári var tilkynnt um kaup Wise á öllu hlutafé Þekkingar. Sameiningin var háð samþykki Samkeppniseftirlitsins, sem lá fyrir síðasta haust. 30.5.2024 08:45
Fylgjast sérstaklega með hrauntjörnum sem gætu brostið fram Hraun rennur áfram úr eldgosinu sem hófst í gær en hægt. Almannavarnir kanna í dag með drónaflugi hvar mögulega hrauntjarnir gætu verið að myndast og hvert þær gætu runnið. Vel er fylgst með öllum helstu innviðum en skyggni er erfitt vegna veðurs. Lokað er á svæðinu og inn í Grindavík. Vilji fólk sjá gosið er mælt með vefmyndavélum. 30.5.2024 08:13
Regnsvæði á leið yfir landið Regnsvæði er nú á leið austur yfir land í morgunsárið, í kjölfarið á því styttir upp og það léttir til norðaustan- og austanlands eftir hádegi. Fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings að næstu daga sé suðvestanátt í kortunum, upp í stinningskalda eða allhvassan vind norðvestantil í dag. 30.5.2024 07:36
Lífsskráin geti auðveldað aðstandendum að taka erfiðar ákvarðanir Ingrid Kuhlman, formaður Lífsvirðingar - félags um dánaraðstoð, segir það ákaflega jákvætt að koma eigi upp svokallaðri Lífsskrá. Þar mun fólk geta skráð niður vilja sinn um takmarkaða meðferð við lífslok geti það ekki tekið ákvörðun sjálft. Ingrid ræddi þessi mál í Bítinu á Bylgjunni í morgun. 29.5.2024 14:29
Hvetja fólk til að taka verðmerkingum í Hagkaup með fyrirvara Alþýðusamband Íslands, ASÍ, segir verðmerkingar í Hagkaup óáreiðanlegar. Í einhverjum tilfellum séu tvær ólíkar verðmerkingar á sömu vöru í sömu verslun en slík dæmi finnist aðeins örsjaldan í öðrum verslunum. Í einu tilfelli hafi munurinn numið 260 krónum. Sektir hafi ekki dugað. ASÍ hvetur neytendur til að taka verðmerkingum í hillu í Hagkaup með fyrirvara. 29.5.2024 13:33