Systir Ronaldos: „Munum aldrei gleyma því sem Liverpool gerði“ Elma Aveiro, systir Cristianos Ronaldo, segir að fjölskyldan verði ævinlega þakklát stuðningsmönnum Liverpool hvernig þeir heiðruðu minningu sonar Ronaldos sem lést við fæðingu. 20.4.2022 13:00
Fyrirliði Svía tekur undir gagnrýni Söru Caroline Seger, fyrirliði sænska landsliðsins og leikjahæsti leikmaður í sögu þess, tekur undir gagnrýni Söru Bjarkar Gunnarsdóttur val mótshaldara á EM 2022 á keppnisvöllum á mótinu. 20.4.2022 12:31
Gagnrýni Söru á mótshaldara EM vekur heimsathygli Gagnrýni Söru Bjarkar Gunnarsdóttur á mótshaldara EM 2022 hefur vakið heimsathygli. Hún er afar ósátt við að tveir leikir Íslands á mótinu fari fram á akademíuleikvangi Manchester City. 20.4.2022 10:00
Besta-spáin 2022: Áfram í draumalandinu Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sport spáir Víkingum 1. sæti Bestu deildar karla í sumar. 18.4.2022 11:00
Besta-spáin 2022: Fer brúðarmærin loks upp að altarinu? Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sport spáir Breiðabliki 2. sæti Bestu deildar karla í sumar. 18.4.2022 10:00
Spilaði fyrsta landsleikinn í 816 daga: „Yndislegt að koma inn á“ Haukur Þrastarson lék í gær sinn fyrsta landsleik síðan 22. janúar 2020, eða í 816 daga, þegar Ísland vann Austurríki, 34-26, í seinni leik liðanna í umspili um sæti á HM 2023. 17.4.2022 11:00
Reiður út í íslensk stjórnvöld: „Móðgandi hvernig þeir koma fram við þetta landslið okkar“ Þrátt fyrir að íslenska karlalandsliðið hafi tryggt sér sæti á HM 2023 með átta marka sigri á Austurríki, 34-26, sauð á Guðmundi Guðmundssyni eftir leik. Landsliðsþjálfarinn sendi stjórnvöldum tóninn og sagði ótækt að Ísland ætti ekki þjóðarhöll. 17.4.2022 08:00
Myndir: Mikil gleði þegar áhorfendur fengu loks að mæta á leik hjá Strákunum okkar Í fyrsta sinn í rúm tvö ár gat íslenska karlalandsliðið í handbolta spilað fyrir framan áhorfendur þegar það mætti Austurríki í seinni leik liðanna í umspili um sæti á HM 2023. 16.4.2022 19:32
„Klæddi ég hann úr? Eitthvað aðeins“ Ýmir Örn Gíslason stóð að venju í ströngu í vörninni þegar Ísland vann Austurríki, 34-26, í seinni leik liðanna um sæti á HM 2023. 16.4.2022 18:24
„Fékk gæsahúð mörgum sinnum“ Guðmundur Guðmundsson var hæstánægður eftir að Ísland tryggði sér sæti á HM með átta marka sigri á Austurríki, 34-26, í seinni leik liðanna í umspili í dag. 16.4.2022 18:16