Ekki hægt að nota inneignarnótu úr einni verslun í annarri Samkvæmt nýlega uppfærðum skilareglum Pennans Eymundssonar geta neytendur eingöngu notað inneignarnótur í þeirri verslun sem þær eru gefnar út. Þetta þýðir að ef vöru er skilað í verslun í Kringlunni, er ekki hægt að nota inneignarnótuna í Smáralind. 4.12.2020 15:19
Hló þegar hann var spurður hvort það væri mikilvægt að Trump mætti Anthony Fauci verður meðal helstu ráðgjafa nýs Bandaríkjaforseta og mun jafnframt áfram sinna hlutverki sínu sem helsti sóttvarnasérfræðingur Bandaríkjanna. Þetta var meðal þess sem kom fram í viðtali CNN við Joe Biden og Kamölu Harris í gær. 4.12.2020 12:46
Mikil líkindi með framgöngu áströlsku sérsveitarinnar í Afganistan og kanadíska Sómalíu-hneykslinu Fyrrverandi varnarmálaráðherra Kanada segir að eina leiðin til að uppræta kerfislæg „menningarvandamál“ og endurheimta orðspor kanadíska hersins í kjölfar svokallaðs Sómalíu-hneykslis, hafi verið að leysa upp umrædda hersveit. 3.12.2020 16:34
Framtíðarsýnin að konur geti sjálfar tekið strok Frá 4. janúar 2021 munu konur geta pantað tíma í skimun fyrir leghálskrabbameini á heilsuvera.is eða á næstu heilsugæslustöð. Þá munu þær sem sækja reglubundna skimun vegna krabbameins í brjóstum getað pantað tíma hjá Samhæfingarstöð krabbameinsskimana frá 6. janúar nk. 3.12.2020 14:24
Forstjóri CDC spáir erfiðasta vetrinum í lýðheilsusögu Bandaríkjanna Robert Redfield, forstjóri bandarísku sóttvarnastofnunarinnar (CDC), varar við því að veturinn gæti orðið sá erfiðasti í lýðheilsusögu Bandaríkjanna. Spáir hann því að dauðsföll vestanhafs af völdum Covid-19 gætu náð 450 þúsundum í febrúar. 3.12.2020 06:16
Obama treystir Fauci og segist myndu láta sjónvarpa bólusetningu sinni Barack Obama, fyrrum Bandaríkjaforseti, segist hiklaust munu láta bólusetja sig ef Anthony Fauci, æðsti sóttvarnasérfræðingurinn vestanhafs, segir það óhætt. 2.12.2020 23:33
Járnfrúin vekur enn heitar tilfinningar Margaret Thatcher vekur enn heitar tilfinningar meðal Breta en ákvörðun bæjarráðsins í heimabæ hennar Grantham um að verja 100.000 pundum í athöfn þar sem stytta af „Járnfrúnni“ verður afhjúpuð hefur myndað gjá meðal íbúa. 2.12.2020 22:17
Menn ekki á eitt sáttir um ákvörðun og meint afrek Breta Bretar þurfa ekki lengur að vona að daglegt líf verði eins og áður var í vor; núna geta þeir verið þess fullvissir. Þetta segir forsætisráðherrann Boris Johnson en bresk heilbrigðisyfirvöld stefna á að hefja bólusetningar í næstu viku. 2.12.2020 20:39
Fimm og sex og sjö og... svindl? Getraunayfirvöld í Suður-Afríku rannsaka nú hvort nokkuð misjafnt hafi átt sér stað þegar lottótölurnar í PowerBall lottóinu þar í landi voru dregnar út á dögunum. 2.12.2020 19:10
Fleiri til rannsóknar vegna andláts Maradona Fleiri eru nú til rannsóknar í tengslum við andlát knattspyrnugoðsagnarinnar Diego Maradona, sem lést af völdum hjartaáfalls í nóvember sl. 2.12.2020 18:43