Fjarskiptabúnaði stolið úr rússneskri „dómsdagsvél“ Þjófum tókst að brjótast inn í herflugvél á flugvelli í Rostov-héraði í Rússlandi fyrir helgi, sem er ef til vill ekki í frásögur færandi nema um var að ræða eina af fjórum „dómsdagsvélum“ rússneska hersins. 8.12.2020 16:11
Fimm þúsund Íslendingar vilja riffil í jólagjöf „Hann fékk aðeins meiri athygli en ég bjóst við,“ segir Guðjón Agnarsson, einn eigenda Byssusmiðju Agnars, um Facebook-leik sem verslunin stendur fyrir nú fyrir jól og hefur vakið mikla athygli. 8.12.2020 16:03
92% Íslendinga ætla í bólusetningu Yfirgnæfandi meirihluti Íslendinga er jákvæður í garð bólusetningar gegn Covid-19 en í könnun Maskínu sögðust 61% þátttakenda örugglega ætla í bólusetningu og 31% líklega ætla í bólusetningu. 8.12.2020 09:33
Neytendasamtökin hvetja verslanir til að lengja skilafrestinn fram í janúar Athugulir neytendur hafa ef til vill tekið eftir því að það er óbreytt sem áður var; að margar verslanir veita aðeins frest til 31. desember til að skila jólagjöfum. Þetta þykir einhverjum ekki í takt við tíðarandann, nú þegar fólk er hvatt til að forðast hópamyndanir eins og heitann eldinn. 7.12.2020 15:03
Drykkjafyrirtækin mestu plastsóðarnir en einnota plastbréf stærsta vandamálið Fyrirtækin Coca-Cola, PepsiCo og Nestlé hafa verið útnefnd verstu plastsóðar heims þriðja árið í röð og sökuð um að hafa gert lítið til að bæta ráð sitt. 7.12.2020 14:58
Ekki farið fram á áframhaldandi gæsluvarðhald: Rannsókn málsins miðar vel Ekki var farið fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manni sem var handtekinn í kjölfar þess að hafa birt myndskeið af sér ganga í skrokk á öðrum manni. Rannsókn málsins miðar vel að sögn lögreglu. 7.12.2020 14:10
Bretar mæla gegn bólusetningu ef þungun er fyrirhuguð innan þriggja mánaða Engar rannsóknaniðurstöður liggja fyrir um öryggi bóluefna gegn Covid-19 hjá þunguðum konum og því hafa bresk heilbrigðisyfirvöld ákveðið að bólusetja ekki þann hóp. 7.12.2020 13:25
Ekki víst að Grýla og Leppalúði séu í áhættuhóp Jólasveinarnir þrettán verða látnir mæta í skimun áður en þeir fá að koma til byggða. Jólakettir fá ekki Covid-19, nema þeir séu tígrisdýr. 6.12.2020 14:01
Ekki hægt að nota inneignarnótu úr einni verslun í annarri Samkvæmt nýlega uppfærðum skilareglum Pennans Eymundssonar geta neytendur eingöngu notað inneignarnótur í þeirri verslun sem þær eru gefnar út. Þetta þýðir að ef vöru er skilað í verslun í Kringlunni, er ekki hægt að nota inneignarnótuna í Smáralind. 4.12.2020 15:19
Hló þegar hann var spurður hvort það væri mikilvægt að Trump mætti Anthony Fauci verður meðal helstu ráðgjafa nýs Bandaríkjaforseta og mun jafnframt áfram sinna hlutverki sínu sem helsti sóttvarnasérfræðingur Bandaríkjanna. Þetta var meðal þess sem kom fram í viðtali CNN við Joe Biden og Kamölu Harris í gær. 4.12.2020 12:46