Atvinnuleysi í desember 3,4 prósent Skráð atvinnuleysi í desember var 3,4 prósent en var 3,3 prósent í nóvember. 6.448 voru atvinnulausir í desember að meðaltali; 3.616 karlar og 2.832 konur. 11.1.2023 06:54
Lögregla kölluð til vegna hótana, líkamsárása og veikinda Tveir menn voru handteknir í miðborginni í gærkvöldi í tveimur aðskildum málum. Annar var handtekinn fyrir hótanir en hinn vegna líkamsárásar. Báðir voru vistaðir í fangageymslu. 11.1.2023 06:38
Tónlistin í Babylon þótti best Hildur Guðnadóttir var ekki meðal sigurvegara á Golden Globe verðlaunahátíðinni að þessu sinni en hún var tilnefnd fyrir tónlistina í myndinni Women Talking. Það var Justin Hurwitz sem tók verðlaunin heim, fyrir Babylon. 11.1.2023 06:24
Frumvarp um lágmarksþjónustu í verkfallsaðgerðum lagt fram í breska þinginu Breska ríkisstjórnin hefur lagt fram frumvarp sem er ætlað að tryggja lágmarksþjónustu í verkfallsaðgerðum. Frumvarpið er afar umdeilt og meira að segja sagt skaðlegt í skýrslu stjórnvalda um möguleg áhrif þess. 10.1.2023 12:54
Kallar eftir stigmögnun af hálfu bandamanna Sir Richard Shirreff, fyrrverandi hershöfðingi hjá Atlantshafsbandalaginu, segir að Bretar hefðu átt að senda Úkraínumönnum skriðdreka fyrir mörgum mánuðum. Bretar íhuga nú að senda Challenger-2 skriðdreka til Úkraínu. 10.1.2023 11:07
Blaðið og penninn fá uppreist æru í áströlskum háskólum Ástralskir háskólar hafa neyðst til að breyta því hvernig þeir haga prófum og öðru námsmati, þar sem nemendur hafa verið staðnir að því að nota gervigreind við ritgerðaskrif. 10.1.2023 09:11
Borgin ekki enn greitt skaðabætur vegna mistaka barnaverndar árið 2013 Reykjavíkurborg hefur ekki enn greitt konu skaðabætur sem Landsréttur dæmdi borgina til að greiða í júní 2021. Þá neitar borgin að afhenda konunni greinagerð dómkvaddra matsmanna um miska konunnar, sem borgin óskaði eftir. 10.1.2023 07:35
Bókaverslanir opnuðu á miðnætti þegar Spare fór í sölu Bókaverslanir í Lundúnum opnuðu á miðnætti í nótt, þegar æviminningar Harry Bretaprins fóru í sölu. Raðir mynduðust fyrir utan verslanirnar og talsmenn keðjunnar Waterstone sögðu um að ræða eina mestu forsölu bókar síðasta áratuginn. 10.1.2023 07:22
Velferðarráð Reykjavíkurborgar ræðir lokun Vinjar á morgun Velferðarráð Reykjavíkurborgar mun á morgun fjalla um tillögu borgarstjórnar frá 6. desember síðastliðnum um að leggja niður Vin, dagsetur fyrir fólk með geðraskanir. 10.1.2023 06:52
Segja nýjasta útspilið koma verulega til móts við SA Tilboð Eflingar í kjaradeilunni við Samtök atvinnulífsins sem lagt var fram í gær kemur verulega til móts við SA miðað við upphaflega kröfugerð stéttarfélagsins og fyrri tilboð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eflingu. 9.1.2023 09:31