„Engin ástæða til að boða til kosninga“ Umræða um vantrauststillögu þingflokka Flokks fólksins og Pírata á ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar hófst seinni partinn í dag og mun halda áfram inn í kvöldið. Bjarni Benediktsson forsætisráðherra segir enga ástæðu til að blása til kosninga að svo stöddu. Hann segir tímanum á þingi betur varið í önnur mál. 17.4.2024 19:34
Fresta gildistöku kjarabóta til öryrkja til að slá á þenslu Ein af aðgerðum ríkisstjórnarinnar til að slá á þenslu í efnahagslífinu er að fresta gildistöku væntanlegra laga um gagngerar breytingar á örorkulífeyriskerfinu. Þetta sparar ríkissjóði um 10 milljarða á næsta ári. Varaformaður Öryrkjabandalagsins segir ljóst að ekki væri hægt að rekja þensluna til öryrkja. 17.4.2024 12:12
Áframhaldandi hallarekstur og vantrauststillaga Engar tillögur eru um niðurskurð til að slá á þenslu í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar til næstu fimm ára sem lögð var fram í dag. Þess í stað er talað um að hægja á útgjöldum, hagræðingu í rekstri og mögulega sölu eigna. 16.4.2024 19:29
Enginn niðurskurður í síðustu fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar Gert er ráð fyrir áframhaldandi halla á rekstri ríkissjóðs á næstu árum samkvæmt fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Fjármálaráðherra segir mikilvægt að ná jafnvægi í ríkisfjármálum í stað þess að taka dýfur með miklum niðurskurði. 16.4.2024 11:46
Halla Hrund tvö- til þrefaldar fylgi sitt Halla Hrund Logadóttir tvö til þrefaldar fylgi sitt milli kannana á fylgi forsetaframbjóðenda og virðist helst höggva í fylgi Katrínar Jakobsdóttur. Enn er þó ómarktækur munur á fylgi Katrínar og Baldurs Þórhallssonar samkvæmt könnun Prósents fyrir Morgunblaðið sem birt var í dag. 15.4.2024 19:20
Baldur og Katrín halda forystunni Þrír frambjóðendur til embættis forseta Íslands eiga fremur öðrum möguleika á að ná kjöri samkvæmt þremur könnunum sem gerðar hafa verið að undanförnu. Katrín Jakobsdóttir hefur mælst með mest fylgi í tveimur þeirra en Baldur Þórhallsson í þeirri þriðju og nýjustu. 15.4.2024 12:32
Sverðin slíðruð í orku, útlendinga- og lögreglumálum Bjarni Benediktsson forsætisráðherra segir endurnýjaða ríkisstjórn ætla að fara að krafti í orkumálin og aðlaga útlendingalöggjöfina að því sem þekkist á Norðurlöndunum. Bjarni og ráðherrar í ráðuneyti hans voru settir í embætti á ríkisráðsfundi á Bessastöðum sem hófst klukkan sjö í kvöld. 9.4.2024 19:20
Forsætisráðuneytið ekki helsta þrætueplið Bjarni Benediktsson, nýr forsætisráðherra, segir spurninguna um það hver tæki við forsætisráðuneytinu ekki hafa verið það sem formenn ríkisstjórnarinnar ræddu helst þegar ný ríkisstjórn var mynduð. 9.4.2024 14:58
Allt bendir til að Bjarni verði forsætisráðherra Allar líkur er á að Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, verði næsti forsætisráðherra í endurnýjuðu stjórnarsamstarfi núverandi stjórnarflokka, samkvæmt heimildum fréttastofu. 8.4.2024 22:33
Alþingi óstarfhæft vegna óvissu um stjórnarmyndun Þingstörf eru í óvissu á meðan ekki hefur verið mynduð ný ríkisstjórn í landinu. Ekkert varð af þingfundi í dag þar sem þrettán stjórnarfrumvörp voru á dagskránni vegna anna ráðherra við stjórnarmyndunarviðræður. 8.4.2024 19:21