Tæplega þrjátíu verið handtekin en tveggja enn leitað Lögreglan hefur handtekið 27 manns í tengslum við rannsókn á hnífstunguárás á Bankastræti Club á aðfaranótt föstudags í síðustu viku. Tíu þeirra hefur verið sleppt úr haldi en lögreglan leitar enn að tveimur einstaklingum. 21.11.2022 22:44
Raf Simons leggur upp laupana Fatahönnuðurinn Raf Simons hefur tilkynnt að vor- og sumarlína samnefnds fatamerkis hans sé sú síðasta sem kemur út. Simons hefur unnið til fjölda fatahönnunarverðlauna í gegnum tíðina en það er enn óljóst hvað framtíð hans ber í skauti sér. 21.11.2022 22:19
Hætta við uppboð á beinagrind grameðlu vegna efa um sanngildi Uppboðshúsið Christie's hefur hætt við að bjóða upp beinagrind grameðlu eftir að upp kom efi um hvort hún væri ekta eða eftirlíking. Talið var að beinagrindin myndi seljast á allt að 3,6 milljarða króna. 21.11.2022 21:30
Lögreglan kalli ekki eftir forvirkum rannsóknarheimildum Dómsmálaráðherra hefur boðað stríð gegn skipulagðri brotastarfsemi. Meðal aðgerða í stríðinu er að auka forvirkar rannsóknarheimildir og skoða aukinn vopnaburð, til dæmis með tilkomu rafbyssa. Þingmaður Samfylkingarinnar segir lögreglumenn ekki kalla eftir því sem dómsmálaráðherra vill veita þeim. 21.11.2022 21:08
Fjöldi látinna orðinn 162 Fjöldi látinna eftir jarðskjálftann í Indónesíu er nú orðinn 162. Rúmlega tvö hundruð manns eru slasaðir en þrettán þúsund manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín. Enn er tugi manna saknað. 21.11.2022 17:41
„Enginn getur allt en við getum öll gert eitthvað“ „Við eigum öll kost á að taka þátt í sjálfbærni sama hvort um er að ræða í stóru eða smáu samhengi“, segir Sigríður Hrund Pétursdóttir framkvæmdastýra og stofnandi Vinnupalla og fjárfestir. Hún segir að góð leið sé að velja sér eitt eða nokkur af sautján sjálfbærnimarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, vinna með þau í nærumhverfinu og æfa sig síendurtekið. 19.11.2022 16:52
Tölvuárás gerð á Mbl.is Tölvuárás var gerð á vefinn Mbl.is fyrr í dag. Vefsíðan hefur legið niðri nú í einn og hálfan tíma. 19.11.2022 15:42
Subway á Íslandi hættir við auglýsingar á RÚV yfir HM Stjarnan ehf., einkaleyfishafi Subway á Íslandi, hefur ákveðið að draga til baka þær auglýsingar sem félagið hafði keypt hjá RÚV fyrir Heimsmeistaramótið í knattspyrnu. Félagið ætlar þess í stað að gefa andvirði auglýsinganna til góðgerðasamtaka. 19.11.2022 14:13
Leyfir almenningi að kjósa um endurkomu Trump Elon Musk, eigandi Twitter og stofnandi Tesla, hefur boðið almenningi að kjósa um hvort Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseti ætti að snúa aftur á Twitter. Á tólf klukkutímum hafa rúmlega tíu milljónir manna kosið. 19.11.2022 13:49
Myndavélar í sjálfsafgreiðslukössum sporna gegn þjófnaði Maður var gómaður í verslun í Kópavogi í gærkvöldi við að skanna strikamerki ódýrari vara en hann ætlaði sér að kaupa í sjálfsafgreiðslukassa verslunarinnar. Þetta var í fertugasta og sjötta skiptið sem maðurinn er gripinn við þá iðju. Framkvæmdastjóri Hagkaups segir að þrátt fyrir nokkra svarta sauði sem stunda þetta sé það ekki algengt. Sjálfsafgreiðslukassarnir eru með ákveðnar leiðir til að stöðva þjófana. 19.11.2022 11:46