Seðlabankinn hækkar enn stýrivexti Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 1,5 prósent. 6.10.2021 08:30
Salvör kjörin formaður samtaka umboðsmanna barna í Evrópu Salvör Nordal, umboðsmaður barna, var kjörinn formaður ENOC, samtaka umboðsmanna barna í Evrópu, á ársfundi samtakanna þann 29. september síðastliðinn. 6.10.2021 08:15
YouTube fjarlægir rásir R Kelly YouTube hefur fjarlægt opinberar rásir tónlistarmannsins R Kelly af síðunni. Rásirnar RKellyTV er RKellyVevo hafa báðar verið fjarlægðar og þá hefur R Kelly verið meinað að stofna nýjar rásir eða eiga rásir á síðunni. 6.10.2021 07:46
Spá miklu hvassviðri víða um land á morgun Veðurstofan spáir austan strekkingi við suðurströndina í dag, tíu til fimmtán metrum á sekúndu, en annars hægari vindi. Víða verður léttskýjað um vestanvert landið, en skýjað og sums staðar smáskúrir eða él austanlands. 6.10.2021 07:08
Þau sækjast eftir stöðu samskiptastjóra ríkislögreglustjóra Alls sóttu 33 um stöðu samskiptastjóra embættis ríkislögreglustjóra sem auglýst var til umsóknar í lok ágústmánaðar. 5.10.2021 18:09
Ökumanns sem ók á stúlku á rafmagnshlaupahjóli við Grandatorg leitað Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú ökumanns fólksbifreiðar sem ók á unga stúlku á rafmagnshlaupahjóli við Grandatorg í Reykjavík um klukka 16.43 í gær. 5.10.2021 14:53
Ríkisstjórn Rúmeníu fallin Meirihluti á rúmenska þinginu samþykkti í morgun tillögu um vantraust á hendur Florin Citu forsætisráðherra og minnihlutastjórn hans. 5.10.2021 14:24
Útvarpsmaðurinn Guðni Már Henningsson er látinn Guðni Már Henningsson útvarpsmaður er látinn, 69 ára að aldri. Ólafur Páll Gunnarsson, útvarpsmaður á Rás 2 og samstarfsmaður Guðna Más til margra ára, greindi frá láti hans í Popplandi á Rás 2 í hádeginu. 5.10.2021 13:29
Hættustig almannavarna áfram í gildi á Seyðisfirði Enn mælist hreyfing á flekanum sem liggur milli Búðarár á Seyðisfirði og skriðusársins frá desember 2020. Talsverðri úrkomu er spáð á svæðinu þegar nær dregur helgi og mun rýming því vara fram yfir helgi. 5.10.2021 12:38
Páll hættir sem forstjóri Landspítalans Páll Matthíasson mun hætta sem forstjóri Landspítalans þann 11. október. Hann hyggst snúa aftur til starfa sem geðlæknir og telur tímabært að skipta um leiðtoga eftir átta ár í embætti. 5.10.2021 11:27