Efla vann hönnunarsamkeppni um nýja brú yfir Fossvog EFLA, í samstarfi við BEAM Architects, vann sigur í hönnunarsamkeppni um nýja brú yfir Fossvog. Útlit sigurtillögunnar var kynnt á fundi Vegagerðarinnar, Reykjavíkurborgar og Kópavogsbæjar í Háskólanum í Reykjavík fyrr í dag. 8.12.2021 11:46
Skjálfti 3,1 að stærð við Grindavík Jarðskjálfti 3,1 að stærð varð norðaustur af Grindavík klukkan 10:44 í dag. 8.12.2021 11:16
Milla frá Lilju til Willums Milla Ósk Magnúsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Willum Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra og er þegar tekin til starfa í heilbrigðisráðuneytinu. 8.12.2021 10:44
Bein útsending: Úrslit í hönnunarsamkeppni um brú yfir Fossvog Tilkynnt verður um úrslit í hönnunarsamkeppni um brú yfir Fossvogi á fundi klukkan 11 í dag. 8.12.2021 10:31
120 greindust innanlands 120 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 54 af þeim 120 sem greindist innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 45 prósent. 66 voru utan sóttkvíar, eða 55 prósent. 8.12.2021 10:24
Bein útsending: Kynning á yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður fjármálastöðugleikanefndar, og Gunnar Jakobsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, munu gera grein fyrir yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar sem kynnt var í morgun. 8.12.2021 09:20
Ólafía nýr fjármálastjóri Deloitte Ólafía Ingibjörg Þorvaldsdóttir viðskiptafræðingur hefur verið ráðin sem fjármálastjóri Deloitte á Íslandi. Hún tekur við starfinu af Sunnu Dóru Einarsdóttur, meðeigenda Deloitte og sviðsstjóra Viðskiptalausna, sem hefur gengt því starfi undanfarin fimm ár. 8.12.2021 08:58
Seðlabankinn ítrekar mikilvægi innlendrar greiðslumiðlunar Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans hefur ítrekað að brýnt sé að áfram verði unnið að innleiðingu á óháðri innlendri smágreiðslulausn án tengingar við alþjóðlega kortainnviði. Þá er ítrekað að hugað verði að rekstraröryggi greiðslukerfa og minnir rekstraraðila á mikilvægi þess að tryggja rekstrarsamfellu. 8.12.2021 08:47
Bein útsending: Orkuskipti á hafi Mögulegt er talið að orkuskipti innlenda skipaflotans verði um garð gengin fyrir árið 2050. Til þess þarf að tryggja framleiðslu og innviði fyrir rafeldsneyti og öflug stefnumótun að vera til staðar frá stjórnvöldum, með stuðningi við fjárfestingar, skattalegum hvötum og skýrum kröfum um vaxandi hlut grænnar orku í stað jarðefnaeldsneytis. 8.12.2021 08:30