Víkingur Reykjavík

Víkingur Reykjavík

Fréttir af Knattspyrnufélaginu Víkingi í Reykjavík.

Fréttamynd

KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu

KR og ríkjandi Íslandsmeistarar Víkings Reykjavíkur gerðu 1-1 jafntefli í mögnuðum leik þar sem að dramatíkin var allsráðandi undir lokin. Ármann Ingi Finnbogason virtist hafa tryggt Víkingum dýrmætan sigur með marki úr efstu hillu í uppbótartíma en mark frá Arnóri Ingva Traustasyni á lokasekúndu leiksins tryggði KR eitt stig. Enn munar átta stigum á milli liðanna. Nánari umfjöllun um leikinn sem og viðtöl frá Meistaravöllum birtast hér á Vísi seinna í kvöld.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“

„KR-ingar verða að vinna þennan leik og maður er skíthræddur um það líka að við gætum séð það sama gerðist á þessu tímabili og gerðist í fyrra eftir að Víkingar duttu út úr leik í Evrópu. Að ef þeir klári þennan leik þá bara vinni þeir bara einfaldlega rest, þannig að þetta er síðasti séns fyrir KR-inga og fyrir þessa hlutlausu, að fá einhverja spennu í deildina fyrir skiptinguna góðu,“ segir Albert Brynjar Ingason sérfræðingur Sýnar Sports í hádegisfréttum Bylgjunnar fyrir stórleikinn í kvöld.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Allt klárt á Meistara­völlum fyrir pallaleikinn í kvöld

KR-ingar taka á móti Víkingum í stórleik tímabilsins í Bestu-deildinni hingað í kvöld. Búið er að gera ráð fyrir mörg þúsund manns á leikinn sem hefst klukkan 17:30. Víkingar eru fyrir leikinn átta stigum fyrir ofan KR. Liðin eiga eftir að mætast í tvígang, það liggur fyrir.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld

Víkingur Reykjavík á fyrir höndum krefjandi verkefni gegn Borac Banja Luka á útivelli í Bosníu & Hersegóvínu í kvöld í seinni leik einvígis um laust sæti í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu. Mikið er undir og háar fjárhæðir sem sigurlið einvígisins tryggir sér. 

Fótbolti
Fréttamynd

„Hvaða grín er þetta með Gylfa Sig?“

Baldur Sigurðsson gat ekki orða bundist eftir frammistöðu Gylfa Þórs Sigurðssonar með Víkingi um helgina í 4-2 sigrinum gegn FH í Kaplakrika. Gylfi skoraði þar frábært mark eftir góðan sprett, eftir gríðarlegt leikjaálag að undanförnu.

Íslenski boltinn