Vetrarólympíu­leikar 2026 í Mílanó og Cortina

Vetrarólympíu­leikar 2026 í Mílanó og Cortina

Vetrarólympíu­leikar fara fram í Mílanó og Cortina d'Ampezzo á Ítalíu dagana 6. til 22. febrúar 2026.

Fréttamynd

„Ég er ekki kærastan“

Bandaríska skíðaskotfimikonan Chloe Levins vildi koma einni staðreynd á hreint eftir að samfélagsmiðlar og fleiri fóru að halda því fram að hún væri kærastan sem norski skíðaskotfimimaðurinn Sturla Holm Lægreid hélt fram hjá.

Sport
Fréttamynd

Typpið í lagi en skórnir of stórir

Skíðastökkvari var útilokaður frá úrslitum á Vetrarólympíuleikunum í Mílano og Cortina vegna of stórra skóa aðeins nokkrum dögum eftir að „typpamálið“ skók leikana.

Sport
Fréttamynd

Rústaði á sér fótunum en varð samt stjarna leikanna

Ítalska skíðadrottningin Federica Brignone var ekki viss um að hún gæti skíðað aftur, eftir hræðilegt slys í keppni fyrir tíu mánuðum. Einhvern veginn tókst henni samt að keppa á Vetrarólympíuleikunum í ár og gott betur því hún er búin að vinna tvenn gullverðlaun.

Sport
Fréttamynd

Elín í 43. sæti en Sonja fékk byltu

Elín Elmarsdóttir Van Pelt hafnaði í 43. sæti af 76 keppendum í frumraun sinni í stórsvigi á Vetrarólympíuleikunum í Cortina. Stalla hennar Sonja Lí Kristinsdóttir féll við í brautinni og tókst því ekki að klára greinina.

Sport
Fréttamynd

Fum­laus frum­raun ís­lensku stelpnanna

Þær Elín Elmarsdóttir Van Pelt og Sonja Lí Kristinsdóttir þreyttu frumraun sína á Vetrarólympíuleikum er þær renndu sér niður brekkurnar á Ítalíu í stórsvigi í morgun.

Sport
Fréttamynd

„Besta tap ævi minnar“

Það er ekki oft sem að íþróttafólk fagnar eftir að hafa tapað en það gerðu Slóvakar svo sannarlega eftir 5-3 tap gegn Svíum í íshokkí karla á Vetrarólympíuleikunum í gær.

Sport
Fréttamynd

Skandall í krullu og ljót orð látin falla

„Þú mátt fokka þér,“ sagði hinn kanadíski Marc Kennedy þegar Svíar sökuðu hann um svindl í krullu á Vetrarólympíuleikunum í gær. Myndband virðist þó sýna að Svíarnir hafi mikið til síns máls.

Sport
Fréttamynd

Hjörtu Svía brotin: „NEI, NEI, NEI“

Allt logar í Svíþjóð eftir að lið landsins í boðgöngu í skíðagöngu kvenna á Vetrarólympíuleikunum missti af gulli. Þetta var „martröð“ og hjörtu eru brotin samkvæmt liðskonu sem féll tvisvar í brautinni.

Sport
Fréttamynd

Fínasta fyrri ferð Jóns Eriks

Jón Erik Sigurðsson mætti til leiks á Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu í morgun er hann tók þátt í risasvigi í Stelvio brekkunni í Ölpunum.

Sport
Fréttamynd

Dagur gaf vel í eftir ró­lega byrjun

Dagur Benediktsson lauk 10 kílómetra skíðagöngu með frjálsri aðferð á 24 mínútum og 18,1 sekúndu og var í 69. sæti. Norðmaðurinn Johannes Klæbo vann gullið eftir mikla samkeppni.

Sport
Fréttamynd

Lá hreyfingar­laus eftir fall en vann síðan Ólympíugullið

Hin sautján ára gamla Choi Ga-on kom í veg fyrir að bandaríska goðsögnin Chloe Kim skráði sig á spjöld sögunnar í snjóbrettaheiminum þegar sú suðurkóreska hristi af sér byltu í byrjun og vann gull í hálfpípu á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina.

Sport
Fréttamynd

Gómaður á ÓL eftir sex­tán ár á flótta

Maður á fimmtugsaldri frá Slóvakíu ætlaði sér að horfa á íshokkíleik Slóvakíu og Finnlands á Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu en var handtekinn og fluttur í fangaklefa. Hann hafði verið sextán ár á flótta.

Sport
Fréttamynd

„Klúðraði þessu svo­lítið vel í dag“

„Ég var bara brjáluð,“ segir Kristrún Guðnadóttir um það hvernig var að átta sig á því að hún hefði gert afar dýrkeypt mistök á Vetrarólympíuleikunum í dag. Röng beygja þýddi að hún var dæmd úr keppni, í 10 kílómetra skíðagöngunni.

Sport