Vest­manna­eyjar

Vest­manna­eyjar

Mannfjöldi: 4.470 (2025). Flatarmál: 16 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Skemmdir á nýrri vatns­leiðslu til Eyja

Tjón varð á nýrri vatnslögn til Vestmannaeyja þegar verið var að leggja hana um síðustu helgi. Lögnin kallast NSL-4 almannavarnalögn en útlagning hennar hefur verið stöðvuð á meðan verið er að greina stöðuna.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Leita ó­þekkts á­rásar­manns á Þjóð­há­tíð

Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum að líkamsárás sem framin var á Brekastíg um klukkan 19:30, laugardaginn 1. ágúst síðastliðinn. Þar var brotaþoli sleginn hnefahöggi í höfuðið af óþekktum manni, sem svo fór í burtu. Brotaþoli var fluttur af vettvangi í sjúkrabifreið.

Innlent
Fréttamynd

Veðrið „eins og eftir pöntun“

Formaður Þjóðhátíðarnefndar segir að fyrsti dagur hátíðarhaldanna hafi gengið vel í gær. Gestir séu almennt ánægðir og verðið sé eins og eftir pöntun.

Innlent
Fréttamynd

Fiðrildi og flug­eldar í maganum í Herjólfs­dal

Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum var sett í sól og blíðu í Vestmannaeyjum í dag og allt er til reiðu fyrir kvöldið sem er nú að ganga í garð. Kassagítarinn er þegar farinn að hljóma úr hvítu tjöldunum. Fréttamaður okkar tók stöðuna í dalnum.

Lífið
Fréttamynd

Þjóð­há­tíð sett í blíð­viðri í Eyjum

Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum var formlega sett klukkan hálf þrjú í dag og er líf og fjör þegar komið í Herjólfsdal. Fjöldi gesta var þegar mættur til Eyja í gær þegar Húkkaraballið svonefnda fór fram.

Lífið
Fréttamynd

„Við á­kváðum að snúa bara vörn í sókn“

Fjölskylda sem býr á Barðaströnd í Breiðafirði tók sig til og útbjó stærðarinnar skilti til að fagna því að ferjan Baldur væri snúin aftur til sinnar reglulegu siglingarleiðar. Hún var send suður til Vestmannaeyja fyrir um sex vikum síðan til að sinna ferjuflutningum þar í fjarveru Herjólfs.

Innlent
Fréttamynd

Endur­koma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar

Bæjarstjóri Vestmannaeyja fagnar endurkomu Herjólfs og kallar eftir kaupum á nýju skipi til að hlaupa í skarðið við bilun. Ráðherra boðar heildstæða ferjuáætlun fyrir landið allt. Öryggissérfræðingur segir lítið notaða aðferðafræði geta reynst Íslandi vel í staðinn fyrir að treysta á að allt reddist.

Innlent
Fréttamynd

Standa með fé­lags­manni sem var sviptur frelsi

Sjúkraliðafélag Íslands segist standa með félagsmanni þeirra sem fékk réttarstöðu sakbornings vegna andláts á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum. Slíkt geti haft djúpstæð áhrif á einstakling.

Innlent
Fréttamynd

Hætta rann­sókn á and­láti á Hraunbúðum

Lögreglan á Suðurlandi hefur hætt rannsókn á andláti konu á tíræðisaldri á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum en rannsókn lögreglu hófst í janúar á þessu ári. Krufningarskýrsla hafi leitt í ljós að ekki sé grundvöllur fyrir því að halda rannsókn áfram. 

Innlent
Fréttamynd

Segir gríðar­legt á­lag á miðakaupendum í sumar

Greint var frá því í gær að óvenju margir miðar væru lausir í Herjólf og hægt hafi gengið að leigja út húsnæði í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina. Viðburðarhaldari með meiru segir vangaveltur um aðsóknina ekki óeðlilegar en að mikið álag hafi verið á tónleikagestum í sumar. Margar breytur spili inn í ferðalög fólks um þessa stærstu ferðahelgi ársins en sú ákvörðun verði líklega tekin mánudaginn fyrir helgina sjálfa. 

Innlent
Fréttamynd

„Við erum að svara kalli tímans“

Nýtt blað fjölmiðilsins Eyjafrétta markar tímamót en það er í fyrsta sinn sem reglulegt tölublað miðilsins kemur eingöngu út á vefnum. Ritstjóri blaðsins segir breyttar venjur kalla á breytingar.

Innlent