

Veður

Holtavörðuheiðinni lokað aftur í kvöld
Holtavörðuheiði verður lokað á ný í kvöld vegna slæmrar veðurspár.

Telja skemmdir í Bláfjöllum minniháttar
Minniháttar skemmdir urðu á skíðasvæði Bláfjalla í óveðrinu sem geysað hefur undanfarna daga. Verið er að meta skemmdir og vonast er til þess að hægt verði að opna svæðið eftir helgi.

Súðavíkurhlíð opin til 16
Búið er að opna fyrir umferð um Súðavíkurhlíð, en vegna snjóflóðahættu verður veginum lokað aftur klukkan 16 í dag. Óvissustig er í gildi vegna snjóflóðahættu.

Snjóflóð féllu á Súðavíkurhlíð
Snjóflóðahætta er á Vestfjörðum en nokkur snjóflóð féllu á Súðavíkurhlíðina í nótt og lokaðist vegurinn um hlíðina. Þung færð er víða enn um landið þó jólaveðrið sem hefur verið að hrjá landsmenn sé að mestu gengið niður. Þá er Öxnadalsheiði enn lokuð og óvíst hvort það takist að opna fyrir umferð um hana í dag.

Dregur úr vindi en áfram vetrarveður
Draga á úr vindi og élum í nótt víða á landinu, með slyddu og rigningu í fyrramálið. Enn verður hvasst við suðurströndina. Á næstu dögum er búist við því að kólni töluvert.

Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“
Björgunarsveitarfólk hefur staðið vaktina við Hellisheiðina frá því í gær, til að tryggja að ökumenn fari ekki inn á hana. Útlit er fyrir að hún verði lokuð til morguns.

Flugferðir hafnar að nýju í Keflavík
Ein flugvél er farin í loftið frá Keflavíkurflugvelli og aðrar eru að gera sig klárar, flugferðir frá vellinum hafa legið niðri síðan í morgun vegna veðurs.

Þak fauk nánast af hlöðu
Björgunarsveitin Dagrenning á Hvolsvelli var kölluð út fyrr í dag vegna hættu á að þak á hlöðu á bæ rétt suður af Hvolsvelli myndi fjúka. Vel tókst til að tryggja að þakið lyftist ekki af, en 10 manns komu að verkinu sem var lokið um hálf þrjú í dag.

Hellisheiði og Þrengsli opna ekki fyrr en á morgun
Vegagerðin býst ekki við því að hægt verði að opna Hellisheiði og Þrengsli í dag samkvæmt veðurspá. Hún bendir á Suðurstrandarveg til Grindavíkur sem hjáleið en að þar sé hvasst, hálka og éljagangur.

Aðeins ein flugvél lent í Keflavík í dag
Búið er að aflýsa flestum flugferðum til og frá Keflavíkurflugvelli vegna veðurs það sem af er degi, og verður staðan endurmetin í kvöld. Aðeins ein flugvél hefur lent á flugvellinum í dag, flugvél frá Play sem lenti rétt fyrir klukkan 14.

Á vaktinni við lokunarpósta alla jólanótt
Björgunarsveitir höfðu í nógu að snúast á aðfangadagskvöld og jólanótt, en slæm færð og vonskuveður hefur víða einkennt upphaf jólahátíðarinnar. Lokunarpóstar eru við Hellisheiði, og veðurviðvaranir í gildi inn í morgundaginn.

Appelsínugular viðvaranir og vegir víða lokaðir
Jólahretið er hressilegt þennan jóladagsmorgun. Búast má við suðvestanátt í dag með hvassviðri eða stormi víða með dimmum éljum, einkum um landið sunnan- og vestanvert. 15-25 m/s og frosti frá 0 og upp í 5 stig.

Vegir víða um land gætu lokast með litlum fyrirvara
Vegagerðin hefur lýst yfir óvissustigi á vegum víða um landið vegna veðurs. Varað er við því að vegir gætu lokast með litlum fyrirvara.

Varað við ferðalögum víða um land
Varað er við ferðalögum víða um land í kvöld vegna veðurs og gular og appelsínugular viðvaranir taka gildi víða í kvöld og í nótt. Sannkallaður jólastormur er í aðsigi og upplýsingafulltrúi Landsbjargar hvetur fólk til að halda sig heima með konfekt í skál í kvöld.

Appelsínugular viðvaranir og heiðar lokaðar
Veðurspá aðfangadags er miður spennandi en samkvæmt henni stefnir í sannkallað jólahret. Búast má við suðvestanátt í dag, 8-15 m/s og hita í kringum frostmark en síðdegis hvessir rækilega.

Rútur skildar eftir á Holtavörðuheiði og leiðinni lokað
Björgunarsveitir úr Húnavatnssýslu og uppsveitum Borgarfjarðar voru kallaðar út fyrr í kvöld eftir að tvær rútur lentu í vandræðum sökum hálku og vonskuveðurs á Holtavörðuheiði. Önnur rútan ók út af veginum. Holtavörðuheiðinni hefur verið lokað sökum veðurs.

Komust með flugvélinni á ögurstundu
Næstum öllu innanlandsflugi var aflýst í dag vegna veðurs og annar jólastormur er í kortunum. Fjöldi örvæntingarfullra símtala barst Icelandair, sem mun bæta við ferðum á morgun ef þörf krefur. Fréttastofa ræddi við farþega sem komust heim fyrir jól, með einu innanlandsvélinni sem tók á loft í dag.

Mínútu fyrr á ferðinni væri Tómas allur
Tómas Guðbjartsson læknir er í óðaönn að reyna komast heim til fjölskyldunnar fyrir jólin. Hann segir ekkert ferðaveður vera á Vestfjörðum en að hans sögn hefði hann verið allur ef hann hefði verið mínútu fyrr á ferðinni þar sem að snjóflóð féll við Skorarnúp rétt áður en hann keyrði fram hjá fjallinu.

„Skítaveður á aðfangadagskvöld og jóladag“
Varasamt ferðaveður er víða á landinu í dag, og verður einkum norðan- og norðaustanlands í kvöld. Öllu innanlandsflugi hefur verið aflýst fram yfir hádegi og vegum gæti verið lokað án fyrirvara. Þá er spáð jólastormi á sunnan- og vestanverðu landinu á morgun og hinn.

Flugferðum aflýst
Öllum flugferðum innanlands í morgun hefur verið aflýst vegna veðurs. Fljúga átti vélum Icelandair til Akureyrar, Egilsstaða og Ísafjarðar fyrir hádegi auk flugvéla frá Mýflugi á Hornafjörð og Norlandair á Bíldudal.

Vegur að Patreksfirði lokaður vegna snjóflóðs
Eitt lítið snjóflóð féll niður í Raknadalshlíð í morgun. Vegur að Patreksfirði er lokaður.

Lokað um Þrengsli og vegir víða á óvissustigi
Gul viðvörun er í gildi á stórum hluta landsins og víða hvasst og hált. Þrengsli eru lokuð og Krýsuvíkurvegur. Allt norðanvert Snæfellsnes er ófært og fjöldi vega á Vesturlandi á óvissustigi og verða það þar til klukkan 21 í kvöld.

Hvít jól, gular viðvaranir og varasamt ferðaveður
Segja má að veðurspáin fyrir morgundaginn sé í ömurlegri kantinum, rigning og rok. Veðurfræðingur spáir þó hvítum jólum um mest allt land en spáin er varasöm á aðfangadag og viðbúið að færð verði slæm í einhverjum landshlutum. Gular veðurviðvaranir eru í gildi um mest allt landið í nótt og í fyrramálið og almannavarnir hvetja vegfarendur til að sýna aðgát þar sem færð getur spillst snögglega.

Vegir víða hálir á morgun og blint á fjallvegum
Spáð er suðaustanstormi á vestanverðu landinu í nótt og til morguns, og hríðarveðri norðanlands annað kvöld. Gul veðurviðvörun tekur gildi eftir miðnætti um allt land fyrir utan austfirði og suðausturland. Vegir gætu víða orðið mjög hálir meðan snjó og klaka leysir.

Útlit fyrir svalasta árið í Reykjavík í þrjátíu ár
Allt stefnir nú í að árið sem er að líða verði það svalasta í Reykjavík í tæp þrjátíu ár. Veðurfræðingur segir hitafarið í ár bera mörg einkenni kalds tímabils sem stóð yfir í þrjátíu ár á síðustu öld.

Ákveðin suðaustanátt og víða snjókoma
Lægð nálgast nú landið úr vestri og fylgir henni ákveðin suðaustanátt seinnipartinn og snjókoma með köflum á Suður- og Vesturlandi, en slydda eða rigning við ströndina.

Stíf norðanátt og frost í flestum landshlutum
Við Skotland er nú öflug og dýpkandi lægð á norðausturleið, sem veldur stífri norðan- og norðvestanátt hér á landi í dag og hvössum vindstrengjum undir Vatnajökli.

Köldu éljalofti beint til landsins
Milli Íslands og Grænlands er nú hægfara lægð sem beinir köldu éljalofti yfir vestanvert landið. Það mun þó draga heldur úr éljagangi í kvöld.

„Bíðum í ofvæni eftir veðurspá næstu daga“
Snjór þekur nú götur og stræti á höfuðborgarsvæðinu og víðar. Skrifstofustjóri borgarlandsins segir vetrarþjónustu hefjast í borginni í fyrramálið og að beðið sé í ofvæni eftir veðurspá næstu daga.

Talsverðar líkur á hvítum jólum
Jólasnjór hylur nú götur á höfuðborgarsvæðinu og víðar um land nú þegar átta dagar eru til jóla. Og þá er ekki úr vegi að spyrja veðurfræðing hvort jólin verði hvít eða rauð í ár, spár liggja fyrir.