Hvassviðri og talsverð rigning Atli Ísleifsson skrifar 19. mars 2026 07:13 Spáð er hlýnandi veðri þar sem hiti verður á bilinu fimm til þrettán stig. Vísir/Vilhelm Alldjúp lægð fyrir vestan land stýrir veðrinu fram á helgi og veldur hún sunnan hvassviðri eða stormi með talsverðri rigningu, einkum sunnan- og vestantil. Fremur hlýtt verður í veðri.
Á vef Veðurstofunnar segir að seinni partinn fari skil lægðarinnar austur yfir land. Vindur verður þá vestlægari, með skúrum og síðar éljum í kvöld, en úrkomulítið norðaustan- og austanlands. Kólnar í veðri. „Lægðin þokast til norðausturs og á morgun er spáð suðvestan hvassviðri eða stormi með dimmum éljum og vægu frosti, sem sagt öflugum útsynningi. Austurland ætti þó að sleppa að mestu við élin. Á laugardag fer smám saman að lægja, en þá nálgast næsta lægð úr suðri. Aðfaranótt sunnudags hvessir líklega talsvert af norðvestri með snjókomu þegar lægðin fer hjá, skammt austur af landinu. Á sunnudaginn fjarlægist lægðin og þá fer að lægja, fyrst vestantil á landinu,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 12.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Suðvestan 15-23 m/s með dimmum éljum, en þurrt að mestu austanlands. Frost víða 0 til 6 stig. Á laugardag: Suðvestan 13-20 um morguninn og éljagangur, en áfram þurrt á Austurlandi. Lægir smám saman þegar líður á daginn, hiti um eða undir frostmarki. Austlægari og rigning eða snjókoma sunnantil um kvöldið. Á sunnudag: Norðvestan hvassviðri eða stormur, en hægari um landið vestanvert. Víða él, en talsverð snjókoma norðan- og austanlands fram eftir degi. Lægir talsvert seinnipartinn, frost 0 til 5 stig. Á mánudag: Breytileg átt og él á víð og dreif. Frost 0 til 10 stig, kaldast í innsveitum. Á þriðjudag og miðvikudag: Norðlæg átt og él, en yfirleitt þurrt sunnan- og vestanlands. Kalt í veðri.
Veður Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Innlent Fleiri fréttir Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Sjá meira