Þin­g­eyjar­sveit

Þin­g­eyjar­sveit

Mannfjöldi: 1.453 (2025). Flatarmál: 12.021 ferkílómetrar. Stærstu byggðakjarnar: Reykjahlíð, Laugar.


Fréttamynd

Óvissustigi í Öskju af­lýst

Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Norðurlandi eystra, hefur aflýst óvissustigi vegna landriss í Öskju eftir að nýjustu mælingar sýna að atburðarásinni sem hófst árið 2021 sé lokið.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Land­risi í Öskju er lokið

Niðurstaða vettvangsvinnu í Öskju bendir til þess að landrisi þar, sem hófst árið 2021, sé lokið. Jafnfram eru vísbendingar eru um landsig á svæðinu. 

Innlent
Fréttamynd

Nálgast hundrað þúsund fylgj­endur á Instagram og rekur sveitahótel

„Ég fylgdi af því ég fæ gott að borða,“ segir Þóra Kolbrá Sigurðardóttir en eiginmaður hennar er listakokkurinn Völli Snær, fullu nafni Völundur Snær Völundarson. Þau hjónin hafa byggt upp ferðaþjónustu á Norðurlandi eystra ásamt því að standa í fjölmörgum öðrum verkefnum. 

Lífið
Fréttamynd

Leiðtogaskipti hjá Sósíal­ista­flokknum

Jón Ferdínand Estherarson er nýr formaður Sósíalistaflokksins eftir að hann lagði Sæþór Benjamín Randalsson í formannskjöri á aðalfundi flokksins um helgina. Umfangsmiklar breytingar á lögum flokksins voru samþykktar á fundinum sem var ekki auglýstur út á við.

Innlent
Fréttamynd

Á­byrgð náði hreinum meiri­hluta

Á-listi Ábyrgðar náði fjórum mönnum kjörnum í sveitarstjórn Þingeyjarsveitar í sveitarstjórnarkosningum sem fram fóru í dag. Listinn náði fjórum mönnum inn og þar með hreinum meirihluta.

Innlent
Fréttamynd

Fram­hlaup hafið í Dyngjujökli

Samkvæmt GPS-hraðamælingum Jarðvísindastofnunar Háskólans er framhlaup hafið í Dyngjujökli. Dyngjujökull er þekktur framhlaupsjökull og um 20 til 30 ár líða að jafnaði á milli framhlaupa. Hann hljóp síðast fram á árunum 1998 til 2000. Veðurstofan varar við ferðum á jöklinum.

Innlent
Fréttamynd

Heimilar um­ferð um Vonar­skarð

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur staðfest breytingartillögu svæðisstjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs um að heimila vélknúna umferð og hjólreiðar um Vonarskarð frá 1. september ár hvert og þar til svæðið verður ófært.

Innlent
Fréttamynd

Húsvíkingur á Norður­pólnum segir sögu merkustu land­könnuða 20. aldar

Húsvíkingi hefur verið falið að segja heiminum söguna af því þegar tveir frægustu landkönnuðir 20. aldarinnar héldu í leiðangur á Norðurpólinn. Örlygur Hnefill Örlygsson er nú, ásamt afkomendum brautryðjendanna, í fimmtán daga leiðangri á pólnum þar sem hann fangar sögu þeirra í heimildarmynd. Fréttastofa fékk að kíkja í heimsókn hjá pólfaranum á Húsavík áður en hann fór í reisuna miklu.

Innlent
Fréttamynd

Mann­mergð vildi sjá fyrsta konung­lega breska gestinn

Filippus prins ætlaði sér að eiga náðuga daga, renna fyrir lax og sjá eitthvað af náttúru þessarar forvitnilegu en fámennu eyjar lengst norður af Bretlandseyjum. Þar bjuggu bara 187 þúsund manns, í stærsta bænum Reykjavík bara 77 þúsund, en mannmergðin sem mætti honum, hvert sem hann fór, var hins vegar líkari því sem búast hefði mátt við í milljónaborg.

Innlent
Fréttamynd

Tjald­svæði á Norður­landi óðum að fyllast

Tjaldsvæði víða á Norðurlandi, þar sem besta veðrinu er spáð um helgina, eru óðum að fyllast. Tjaldsvæðavörður í Vaglaskógi segir að brjálað hafi verið að gera í bókunum síðustu tvo daga og ljóst sé að margir ætli sé að elta góða veðrið um helgina.

Innlent