Viðskipti innlent

Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum

Atli Ísleifsson skrifar
Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa lónsins.
Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa lónsins. Bláa lónið

Bláa lónið hf. hefur samið um aukningu á eignarhlut sínum í Norðurböðum ehf. sem eru hluthafi í Jarðböðunum við Mývatn og Sjóböðunum á Húsavík. Jarðböðin eru jafnframt hluthafi í Vök á Egilsstöðum.

Í tilkynningu frá Bláa lóninu segir að kjarnastarfsemi þessara félaga sé rekstur baðlóna. Markmið viðskiptanna sé að styrkja grunnrekstur Bláa lónsins hf. á fjölbreyttum áfangastöðum á Íslandi og auka áhættudreifingu í rekstri félagsins.

Fram kemur að Bláa lónið hafi frá upphafi staðið í fararbroddi í uppgangi baðlónsmenningar á Íslandi. Kaupin séu markviss liður í áformum félagsins um áframhaldandi áherslu á hágæða upplifun og vellíðan í vexti félagsins til framtíðar víða um land.

Haft er eftir Sigríði Margréti Oddsdóttur, forstjóra Bláa lónsins, að uppbygging baðlóna á Íslandi hafi verið einn helsti vaxtarsproti ferðaþjónustu allt frá stofnun Bláa lónsins og skýr sérstaða landsins sem áfangastaðar. 

„Bláa lónið hefur fjárfest í einstökum áfangastöðum víða um land og staðirnir þrír eiga það allir sameiginlegt að hafa sína eigin sögu að segja. Um leið endurspegla þeir þau miklu gæði afþreyingar og vellíðunar sem Bláa lónið hefur lagt áherslu á og falla því vel að vörumerki félagsins. Við sjáum af mánaðarlegum könnunum sem við gerum að þrír fjórðu ferðamanna heimsækja baðlón á meðan á dvöl þeirra á Íslandi stendur. Árangur Bláa lónsins hefur veitt fjölmörgum innblástur og er rekstur baðlóna í dag mikilvægur þáttur í sérstöðu og styrkleika landsins sem áfangastaðar“ segir Sigríður Margrét.

Í tilkynningunni segir að kaupin séu gerð með fyrirvara um samþykki hluthafafundar Bláa lónsins hf. og Samkeppniseftirlitsins.

„Nái viðskiptin fram að ganga mun Bláa Lónið hf. eiga meirihluta í Norðurböðum. Áður hafði félagið tryggt sér meirihluta í Fontana á Laugarvatni. Bláa Lónið undirbýr nú skráningu á íslenskan hlutabréfamarkað. Landsbankinn og Fossar fjárfestingarbanki eru umsjónaraðilar útboðsins,“ segir í tilkynningunni. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×