

Subway-deild karla
Leikirnir

„Hann elskar Krýsuvíkurleiðina“
Sigtryggur Arnar Björnsson átti frábæran leik með Tindastól í sigri í spennuleik á móti Haukum í síðustu umferð Subway deildar karla í körfubolta. Körfuboltakvöld ræddi frammistöðu landsliðsmannsins.

Álftnesingar geta skrifað söguna í Forsetahöllinni í kvöld
Álftanes getur brotið blað í sögu félagsins þegar það mætir Skallagrími í lokaleik 25. umferðar 1. deildar karla í körfubolta.

„KR þarf að viðurkenna mistökin sem voru gerð“
Eitt sigursælasta lið íslenskrar íþróttasögu er fallið úr efstu deild en það varð ljóst í nítjándu umferð Subway deildarinnar í körfubolta í síðustu viku þegar KR féll úr deildinni.

„Takið ákvörðun og setjið hana í tíu ár“
Stóru málin voru krufin til mergjar að venju í Körfuboltakvöldi Kjartans Atla á Stöð 2 Sport.

„Þú ert bara ekki að dekka neinn“
Keflvíkingar hafa verið í brekku undanfarið í Subway-deildinni og tapað fjórum leikjum í röð. Kjartan Atli Kjartansson og sérfræðingar í Subway Körfuboltakvöldi ræddu gengi Keflavíkur í þætti vikunnar.

Sjáðu rosalegar lokasekúndur úr leik Grindavíkur og Hattar
Grindavík vann eins stigs sigur á Hetti í Subway-deild karla í körfuknattleik í gær en sigurinn var gríðarlega mikilvægur í baráttunni um sæti í úrslitakeppni. Lokasekúndur leiksins voru æsispennandi.

Tilþrif 19. umferðar: Varin skot sem glöddu augað
Þeir Kjartan Atli Kjartansson, Jón Halldór Eðvaldsson og Darri Freyr Atlason fóru yfir tilþrif vikunnar í 19. umferð Subway-deildar karla í körfuknattleik.

Viðar: „Helvíti vont þegar ég kúka svona ærlega á bitann“
Hattarmenn voru grátlega nálægt því að vinna frækinn sigur í Grindavík í kvöld í Subway-deild karla en leikurinn réðst á þriggja stiga körfu frá Damier Pitts þegar þrjár sekúndur voru til leiksloka.

Umfjöllun og viðtöl: Grindavík - Höttur 87-86 | Háspenna lífshætta í ótrúlegum sigri Grindvíkinga
Dramatíkin var allsráðandi í Grindavík í kvöld þegar heimamenn unnu ótrúlegan 87-86 sigur á Hetti í Subway-deildinni. Þristur frá Damier Pitts þegar þrjár sekúndur voru eftir tryggði heimamönnum stigin tvö.

„Finnur vill að ég skjóti“
Kristófer Acox, leikmaður Vals, gat leyft sér að brosa eftir 31 stiga stórsigur liðsins á Keflavík í Keflavík, 80-111. Kirstófer skoraði sína fyrstu þriggja stiga körfu á tímabilinu í leiknum.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík 80 - 111 Valur | Valsmenn ekki í vandræðum í Keflavík
Valur átti ekki í miklum vandræðum með lánlausa Keflvíkinga í Keflavík í kvöld. Íslandsmeistararnir unnu öruggan 31 stiga sigur, 80-111. Valur fer með sigrinum í efsta sæti Subway-deildar karla á meðan Keflavík er áfram í 3. sæti deildarinnar eftir fjórða tapleikinn í röð.

Utan vallar: Hvernig getur félag unnið sex titla í röð og fallið svo fjórum árum síðar?
KR féll í gær úr efstu deild í körfubolta og það í miðjum sínum leik. KR hefði fallið með tapi á móti Keflavík í síðustu umferð en vann þann leik. Sigur Stjörnunnar á Blikum í gær þýðir aftur á móti að Íslandsmeistararnir á sex af síðustu níu tímabilum spila ekki lengur í hópi þeirra bestu á næstu leiktíð.

Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Þór Þ. 117-113 | Níu í röð hjá Njarðvík eftir tvíframlengdan spennutrylli
Sigurganga Njarðvíkur heldur áfram í Subway-deildinni í körfuknattleik en liðið vann sigur á Þór frá Þorlákshöfn í tvíframlengdum leik í kvöld.

Pavel: Þetta gerðist full auðveldlega fyrir minn smekk
Pavel Ermolinskij var gríðarlega ánægður með sigur lærisveina sinna í Tindastól gegn Haukum í kvöld. Stólarnir voru þar með að vinna sinn fjórða leik í röð.

Umfjöllun og viðtöl: ÍR - KR 82-85 | Fallnir KR-ingar settu stórt strik í reikninginn hjá Breiðhyltingum
KR vann þriggja stiga sigur á ÍR í Subway-deild karla í kvöld. Áður en leiknum lauk var ljóst að KR væri fallið úr deildinni en Vesturbæingar létu það ekki á sig fá og unnu súrsætan sigur.

Lárus: „Þarna voru einhverjir aðrir sem vildu taka í taumana og ákvarða leikinn“
Það var boðið upp á alvöru naglbít í Njarðvík í kvöld þar sem heimamenn fóru með sigur af hólmi í tvíframlengdum leik gegn Þórsurum í Subway-deild karla. Lárus Jónsson, þjálfari Þórsara, var nokkuð rólegur eftir leik þrátt fyrir hátt spennustig í leiknum.

Umfjöllun og viðtal: Stjarnan - Breiðablik 112-97 | Stjarnan vann og felldi KR-inga úr Subway-deildinni
KR er fallið úr Subway-deildinni í körfuknattleik eftir 112-97 sigur Stjörnunnar á Breiðabliki í kvöld. KR á þar með engan möguleika á að ná Stjörnumönnum og verða að bíta í það súra epli að spila í næstefstu deild á næsta ári.

Umfjöllun og viðtöl: Tindastóll - Haukar 84-82 | Fjórði sigur Stólanna í röð sem nálgast sætin sem gefa heimavallarétt
Tindastóll vann fjórða leik sinn í röð í Subway-deild karla í körfuknattleik þegar liðið lagði Hauka í æsispennandi leik á Sauðárkróki.

Valdi bestu liðin skipuð uppöldum leikmönnum
Þrjú félög gætu sett saman mjög öflug fimm mannna lið ef þau fengju að kalla til alla sína uppöldu stráka.

„Ég krosslegg fingur um að þetta verði svona áfram“
Njarðvíkingar héldu sigurgöngu sinni áfram í Subway deild karla í körfubolta í vikunni og unnu áttunda deildarsigur sinn í röð á Ásvöllum á mánudagskvöldið.

„Á ég að gera þetta, á ég að gera þetta? Já ég ætla að gera þetta“
Að venju valdi Körfuboltakvöld helstu tilþrif umferðarinnar eftir að 18. umferð í Subway deild karla í körfubolta lauk. Tilþrif umferðarinnar komu að þessu sinni úr Smáranum þar sem Breiðablik og Tindastóll mættust.

„Veigar Áki steig heldur betur upp“
Farið var yfir stöðu KR-liðsins í síðasta þætti Körfuboltakvölds. Staða liðsins er vægast sagt svört og fallið blasið við. Samt sem áður náði liðið í sigur gegn Keflavík og átti Veigar Áki Hlynsson sinn þátt í því.

Körfuboltakvöld: Hvernig var þetta leyft?
Tindastóll sótti sigur í Smárann í síðustu umferð Subway deildar karla þrátt fyrir að hafa lent 21 stigi undir í leiknum. Þar munaði miklu um frábæran stuðning sem liðið fékk á áhorfendapöllunum.

Haukur Helgi: Ég hef saknað þess síðustu tvö ár
Haukur Helgi Pálsson, leikmaður Njarðvíkur, var stigahæstur Njarðvíkinga með 20 stig í 89-97 sigri þeirra gegn Haukum á Ásvöllum. Liðin mættust í Subway-deild karla.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: KR - Keflavík 94-87 | Líflína fyrir KR en Keflavík í alvöru þroti
KR vann lífsnauðsynlegan sigur gegn Keflavík í 18. umferð Subway-deildar karla í körfubolta í kvöld. KR vann með sjö stigum, lokatölur 94-87.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Haukar - Njarðvík 89-97 | Gestirnir búnir að jafna toppliðið að stigum
Njarðvík vann góðan 89-97 sigur á Haukum í Subway-deild karla í kvöld. Sigurinn lyftir Njarðvíkingum upp að hlið Vals á toppi deildarinnar.

Helgi tók út andvökunæturnar um jólin: „Það sem gerist, gerist“
„Ég er glaður, það er gaman að vinna. Mér fannst liðið spila vel í dag sem er ánægjulegt. Við vorum mjög agaðir varnarlega,“ sagði Helgi Már Magnússon, þjálfari KR, aðspurður hver lykillinn að sigrinum gegn Keflavík hefði verið. Með sigrinum heldur KR sér á lífi í Subway-deild karla í körfubolta. Það þarf hins vegar allt að ganga upp til að það gerist.

„Erum búnir að vera ógeðslega lélegir í þrjá leiki í röð“
„Hvað við vorum ógeðslega lélegir, hvað við erum búnir að vera ógeðslega lélegir í þrjá leiki í röð,“ sagði Hjalti Þór Vilhjálmsson aðspurður hvaða hugsanir færu í gegnum höfuðið á sér strax eftir leik. Hjalti er þjálfari Keflavíkur sem tapaði í kvöld sínum þriðja leik í röð.

Grindavík hélt KR á lífi en Keflavík gæti fellt KR-inga í kvöld
Tap Stjörnumanna í Grindavík í gærkvöldi þýðir að KR-ingar eru enn ekki fallnir úr Subway deild karla í körfubolta.

Umfjöllun og viðtöl: Þór Þ. - ÍR 91-87 | Fimmti sigur Þórs Þorlákshafnar í röð
Þór Þorlákshöfn vann fjögurra stiga sigur á ÍR 91-87. Þórsarar voru leiðandi en ÍR sem er að berjast fyrir lífi sínu í deildinni gaf ekkert eftir. Fjórði leikhluti var stál í stál en Þór hafði betur að lokum og vann sinn fimmta sigur í röð.