

Subway-deild karla
Leikirnir

Sverrir: Leikur okkar í heild arfaslakur
"Við komum fullir sjálfstrausts og ætluðum að komast 2-0 yfir. En við vorum á hælunum, létum ýta okkur út úr öllum hlutum og KR-ingar áttu þennan leik nánast allan tímann," sagði Sverrir Sverrisson, þjálfari Grindavíkur, eftir tapið gegn KR í kvöld.

Martin: 18 ára í úrslitakeppni og troðfullt hús, það gerist ekki betra
"Það var ekki leiðinlegt að vinna þetta Grindavíkurlið og hvað þá svona sannfærandi eins og við gerðum í dag," sagði Martin Hermannsson eftir 90-72 sigur KR á Grindavík í kvöld. Þessi ungi leikmaður skoraði 23 stig og var stigahæstur í leiknum.

Grindvíkingar hafa ekki tapað útileik í tvö ár
Markmið liða í deildarkeppni Dominos-deildar karla í körfubolta er ofar öllu að tryggja sér heimavallarrétt sem lengst í úrslitakeppninni. Deildarmeistarar Grindavíkur eru þó í þeirri stöðu að vera með heimavallarréttinn út úrslitakeppnina en á sama tíma er liðið ósigrandi á útivöllum í úrslitakeppninni.

Umfjöllun og viðtöl: KR - Grindavík 90-72 | Einvígið jafnt
KR hefur jafnað 1-1 í einvíginu gegn Grindavík í undanúrslotum Dominos-deildar karla í körfubolta.

Sterkur sigur hjá KR í Fjárhúsinu
KR tók í kvöld forystuna í undanúrslitaeinvígi sínu gegn Snæfelli í Dominos-deild kvenna. KR vann þá sterkan sigur í Fjárhúsinu.

Reiðir stuðningsmenn Grindavíkur
Stuðningsmenn Grindavíkur í körfubolta eru skapheitir og það hafa þeir sannað ár eftir ár. Dómararnir í leik Grindavíkur og KR fengu að heyra það frá einum þeirra í gær.

Umfjöllun og viðtöl: Snæfell - Stjarnan 91-90
Snæfell sigraði Stjörnuna 91-90 í æsispennandi körfuboltaleik í Stykkishólmi í kvöld. Þetta var fyrsti leikur liðanna í undanúrslitum Dominos deildar karla.

Þetta verður járn í járn
"Það er alltaf fjör þegar þessi tvö lið mætast,“ segir Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, fyrir leik sinna manna gegn Stjörnunni í kvöld.

Justin myndi spila fótbrotinn
Justin Shouse hefur ekki getað æft af fullum krafti með Stjörnunni síðustu daga eftir að hafa fengið heilahristing á dögunum.

Leik lokið: Grindavík - KR 95-87 | 1-0 fyrir Grindavík
Grindvík er komið yfir í einvíginu við KR í undanúrslitum, Domino's deildar karla. Grindavík vann fyrsta leikinn í kvöld á heimavelli, 95-87

Tveir leikmenn sem skipta extra miklu máli
Grindavík og KR mætast í kvöld í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Dominos-deildar karla í körfubolta en leikurinn hefst klukkan 19.15 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Stjörnumenn aftur yfir á réttum tíma
Annað árið í röð slógu Stjörnumenn Keflvíkinga út úr úrslitakeppninni eftir endurkomusigur í oddaleik.

Rotaðist en hélt leik áfram
Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, segir leikstjórnanda sinn Justin Shouse vera langharðasta leikmanninn sem hann hefur komist í kynni við á ferlinum. Stjarnan mætir Snæfelli í undanúrslitunum.

Teitur fagnaði með þristi | Myndband
Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, sýndi að hann hefur engu gleymt þegar hann setti niður skot utan þriggja stiga línunnar eftir sigur sinna manna á Keflvíkingum í gær.

Staðan er nú 5-3 fyrir Teit
Teitur Örlygsson stýrði í gær Stjörnumönnum til sigurs í oddaleik á móti Keflavík í átta liða úrslitum Dominos-deildar karla í körfubolta en þetta var þriðja árið í röð sem Stjarnan vinnu oddaleik í átta liða úrslitunum.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Keflavík 82-77 | Stjarnan í undanúrslit
Stjarnan vann Keflavík, 82-77, í oddaleik 8-liða úrslita Dominos-deild karla í körfuknattleik en leikurinn var æsispennandi allan tímann og úrslitin réðust alveg undir lokin. Keflavík höfðu lengi vel yfirhöndina í leiknum en Stjörnumenn komu til baka í lokaleikhlutanum og náðu að jafna metin. Það var síðan lið Stjörnunnar sem voru sterkari á lokasprettinum og unnu frábæran sigur 82-77.

Umfjöllun og viðtöl: Snæfell - Njarðvík 84-82 | Snæfell í undanúrslit
Snæfellingar eru komnir áfram í undanúrslit Dominos-deildar karla í körfubolta eftir 84-82 sigur á Njarðvík í frábærum körfuboltaleik í Stykkishólmi í kvöld. Snæfellingar voru fjórum stigum undir þegar tæpar átta mínútur voru til leiksloka en nýttu sér reynsluna og snéru leiknum við í lokaleikhlutanum. Snæfell mætir Stjörnunni í undanúrslitunum og er fyrsti leikur á þriðjudaginn kemur.

Stóri bróðir í Njarðvík
Nigel Moore hló þegar hann var spurður að því hvort hann væri pabbinn í Njarðvíkurliðinu og vildi frekar segja að hann væri stóri bróðir. Það mæðir mikið á Moore í oddaleik Njarðvíkur og Snæfells í kvöld.

Áfall fyrir Sunderland
Sunderland gaf það út í dag að framherjinn Steven Fletcher og miðjumaðurinn Lee Cattermole verði ekki meira með liðinu á þessu tímabili vegna meiðsla. Þetta er mikið áfall fyrir lið Sunderland sem er eins og er í 15. sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

Pistill: Endalausar dýfur
„Þetta er bara hluti af leiknum.“ „Maður gerir allt til þess að vinna.“ Hversu oft hefur maður heyrt afsakanir sem þessar fyrir því að hraustir menn hendi sér í gólfið við lítið sem ekkert tilefni. Allt er gert til þess að styrkja stöðu liðsins sem gæti, séu tilburðirnir nógu sannfærandi, leikið manni fleiri eða þurfa ekki að glíma við lykilmann úr röðum andstæðinganna.

Teitur: Keflvíkingar lugu því að Jovan hefði slegið einhvern
Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, verður án lykilmanns í oddaleiknum á móti Keflavík á morgun en Stjarnan og Keflavík mætast þá í Garðabæ í hreinum úrslitaleik um sæti í undanúrslitum Dominos-deildar karla í körfubolta. Teitur leggur samt áherslu á það að Stjörnumenn líti ekki á sig sem einhver fórnarlömb.

Jovan fær eins leiks bann
Jovan Zdravevski verður ekki með Stjörnunni í oddaleiknum á móti Keflavík í morgun því Aga- og úrskurðarnefnd KKÍ hefur úrskurðað hann í eins leiks bann.

Njarðvíkingar yfir hundrað stigin í fyrsta sinn í sjö ár
Njarðvíkingar tryggðu sér oddaleik í Stykkishólmi á fimmtudaginn með því að vinna 15 stiga heimasigur á Snæfelli í gær, 105-90, í öðrum leik liðanna í átta liða úrslitum Dominos-deildar karla í körfubolta.

Fær aðstoðarþjálfarinn góða afmælisgjöf í kvöld?
Örvar Þór Kristjánsson, aðstoðarþjálfari Einars Árna Jóhannssonar hjá karlaliði Njarðvíkur, heldur upp á 36 ára afmæli sitt í dag en afmælisdagurinn mun þó örugglega snúast að mestu í kringum annan leik Njarðvíkur og Snæfells í átta liða úrslitum Dominos-deildar karla.

Fúkyrðaflaumur í anda unglingspilta hjá Sigurði
Kjartan Atli Kjartansson, leikmaður Stjörnunnar, segist vera hissa á þeim ummælum sem Sigurður Ingimundarson lét hafa eftir sér á Vísi fyrr í dag. "Siggi þarf að skoða liðið okkar betur ef hann veit ekki hver ég er. Það er bull að hann hafi ekki sagt neitt við mig. Hann hefur líka gert þáð áður," sagði Kjartan Atli en skoða má ummæli Sigurðar í fréttinni hér fyrir neðan.

Umfjöllun og viðtöl: Skallagrímur - Grindavík 78-102 | Grindavík í undanúrslit
Grindavík tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum Dominos-deildar karla. Liðið vann þá afar sannfærandi sigur á Skallagrími í Borgarnesi. Grindavík mætir KR í undanúrslitunum.

Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Snæfell 105-90 | Oddaleikur í Hólminum
Njarðvíkingar sigruðu Snæfell, 105-90 og jöfnuðu einvígið í átta liða úrslitum Dominos deildar karla í körfuknattleik í kvöld. Suðurnesjapiltar voru komnir með bakið upp við vegg og urðu að vinna til þess knýja fram oddaleik í Stykkishólmi.

Siggi Ingimundar: Var Kjartan inn á vellinum í gær?
Kjartan Atli Kjartansson, leikmaður Stjörnunnar, var ekki ánægður með framkomu Sigurðar Ingimundarsonar, þjálfara Keflavíkur, í leik liðanna í gær. "Ég ætla að kasta kveðju á Sigurð Ingimundarson fyrir að segja að ég geti ekki neitt í körfubolta. Það er alltaf gaman þegar fyrrum landsliðsþjálfarar haga sér svona og eru að rífa kjaft við mann. Íþróttinni til sóma," sagði Kjartan Atli við karfan.is í gærkvöld.

Yfirlýsing frá Jovan: Það ósanngjarnasta á ferlinum
Jovan Zdravevski, leikmaður körfuboltaliðs Stjörnunnar, hefur sent karfan.is yfirlýsingu vegna brottrekstrarvillunnar sem var dæmd á hann í gær í öðrum leik Stjörnunnar og Keflavíkur í átta liða úrslitum Dominos-deildar karla í körfubolta.

Flake ekki með gott sigurhlutfall í úrslitakeppninni
Darrell Flake og félagar í Þór Þorlákshöfn eru komnir í sumarfrí eftir að KR-ingar sópuðu þeim út úr úrslitakeppni Dominos-deild karla í gær. Flake hefur spilað hér með hléum frá 2002 en hefur aldrei komist upp úr átta liða úrslitunum á Íslandi.