Starfslýsing kennarans Hvað þýðir það að vera kennari? Þýðir það að vera kennari það sama og það gerði um aldamótin, hvað þá hálfa öld aftur í tímann. Ég ætla að leyfa mér að fullyrða að svo er ekki. Skoðun 17. október 2024 07:02
Kjarasamningar opinberra starfsmanna megi ekki raska kjarasátt „Kennarar eru til fyrirmyndar og ég öfunda þau af því að fá að kenna. Það eru því mikil vonbrigði að samninganefnd kennara og forysta kennarasambandsins grípi nú til skæruverkfalla með tilheyrandi röskun á skólastarfi og óvissu án þess að leggja fram skýrar kröfur í kjarasamningum.“ Innlent 17. október 2024 06:53
Hvar er kröfugerðin? Félagsmenn sex aðildarfélaga Kennarasambands Íslands hafa samþykkt skæruverkföll í fjórum leikskólum, þremur grunnskólum, einum framhaldsskóla og einum tónlistarskóla. Kosið var um verkföll og þau samþykkt án þess að skýr kröfugerð hafi verið lögð fram. Skoðun 17. október 2024 06:03
Kæri borgarstjóri - Fjarlægðin gerir fjöllin blá og mennina mikla Virðulegi borgarstjóri, ágæti yfirmaður, sannur hollvinur skólanna í orði - en ekki á borði. Skoðun 16. október 2024 21:00
„Þetta er einhver leikur sem menn ákváðu að spila“ Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, segir stefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga á hendur Kennarasambandsins ekki munu hafa áhrif á boðuð verkföll kennara. Innlent 16. október 2024 19:07
Hildur leiðir aðgerðahóp forsætisráðherra um að brúa bilið Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn í Reykjavík leiðir aðgerðahóp innan forsætisráðuneytisins sem á að vinna að því að brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla. Innlent 16. október 2024 14:55
Dropinn sem fyllti mælinn Ég get alla vega sagt það fyrir mína parta að ummæli borgarstjóra á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga um kennarastéttina var dropinn sem fyllti minn mæli. Ég hef lengi vitað það að virðing fyrir kennarastarfinu í samfélaginu okkar og fagmennsku kennara hefur í gegnum tíðina mátt vera meiri en ég hélt í alvörunni að við værum komin lengra sem samfélag. Skoðun 16. október 2024 14:01
Stefna kennurum fyrir félagsdóm Samband íslenskra sveitarfélaga hefur stefnt Kennarasambandi Íslands fyrir félagsdóm. Sambandið telur boðun verkfalls í fjölda skóla ólögmæta þar sem engin kröfugerð liggi fyrir í kjaradeilunni. Innlent 16. október 2024 12:21
Kennarar í brennidepli – Vanvirðing, skortur á stuðningi og óviðunandi vinnuaðstæður Á undanförnum dögum hafa skólamál og enn frekar störf kennara verið mikið til umræðu í samfélaginu. Skoðun 16. október 2024 11:02
Ástríða mín fyrir starfi mínu sem íþróttakennari og sundkennari í Íslandi Ég er upprunalega frá Egyptalandi og flutti til Íslands árið 1997 með mikla ástríðu fyrir íþróttum og sundi. Á þeim tíma var það mikið skref fyrir mig að flytja frá heimalandi mínu og hefja nýtt líf í landi sem er svo ólíkt því sem ég þekkti áður. Þegar ég kom til Íslands, kunni ég ekki íslensku. Skoðun 16. október 2024 10:32
Er það ekki skrýtið? Ef þú lítur inn á við kæri lesandi og veltir fyrir þér hver séu þín allra verðmætustu auðæfi, hvað kemur í hugann? Svar mitt er líklega eins og flestra sem eiga börn að það eru börnin mín. Þau verðmæti sem felast í börnunum mínum verða aldrei metin til fjár og ég myndi fórna hverju veraldlegu sem er ef á þyrfti að halda vegna barnanna minna. Skoðun 16. október 2024 10:03
Orðum fylgir ábyrgð! Árið er 2004 - Grunnskólakennarar samþykkja verkfall. Á þessum tíma var ég starfsmaður í frístundaheimili í gamla skólanum mínum, þar sem ég kenni núna. Við virtum að sjálfsögðu verkfallið, læstum hurðum og neituðum að taka við börnum á skólatíma, einungis á þeim tíma sem frístundaheimilið mátti starfa. Skoðun 16. október 2024 08:32
Dagur bað kennara afsökunar titrandi röddu Kennarafélag Reykjavíkur boðaði til samstöðumótmæla fyrr í dag og safnaðist mikill fjöldi kennara saman fyrir utan Ráðhúsið klukkan fjórtán. Orð Einars Þorsteinssonar borgarstjóra þess efnis að viðsemjendur vilji semja sig frá kennslu sitja í kennurum en Dagur B. Eggertsson forseti borgarstjórnar tók á móti hópnum og tókst að slá á reiðina með einlægri afsökunarbeiðni. Innlent 15. október 2024 16:19
Kennarar gengu út og mótmæla orðum borgarstjóra Fjölmargir kennarar í Reykjavík komu saman til mótmæla við Ráðhús Reykjavíkur klukkan 14 til að láta í ljós óánægju sína vegna ummæla Einars Þorsteinssonar borgarstjóra. Innlent 15. október 2024 14:44
Opið bréf til Einars Þorsteinssonar frá kennurum í Hagaskóla Ágæti borgarstjóri Einar Þorsteinsson, eins og þér ætti að vera kunnugt þá vinna kennarar undir talsverðu álagi – það er eðli starfsins. Kennarastarfið hefur tekið þó nokkrum breytingum. Þú ættir að þekkja starfið og kröfur þess, sem okkar æðsti yfirmaður. Skoðun 15. október 2024 13:30
Stefnir á að sækjast eftir embætti rektors Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, gerir ráð fyrir að sækjast eftir embætti rektors Háskóla Íslands. Rektor er skipaður til fimm ára í senn en Jón Atli Benediktsson, núverandi rektor, var fyrst kjörinn í embættið árið 2015 og tók við starfi 1. júlí sama ár. Hann var endurskipaður rektor árið 2020 og hefur því bráðum gegnt embættinu í tíu ár. Jón Atli hyggst ekki sækjast áfram eftir embættinu þegar skipunartíma hans lýkur næsta sumar. Innlent 15. október 2024 11:56
Segjast ekki hafa fengið formlega kröfugerð frá kennurum Samninganefndir í kennaradeilunni komu saman til fundar hjá ríkissáttasemjara í morgun. Þetta var fyrsti fundur síðan boðað var til verkfalla sem eiga að bresta á í lok mánaðar. Formaður samninganefndar hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga segir kennara ekki hafa formlega lagt fram kröfugerð og formaður Kennarasambandsins segir yfirvofandi verkföll skerpa fókusinn hjá öllum. Innlent 15. október 2024 11:36
#TakkEinar Það má alltaf finna eitthvað jákvætt við öll mál svo ég skal taka að mér að sýna ykkur það jákvæða við ræðu borgarstjórans og klappið sem hann uppskar í kjölfar hennar. Skoðun 15. október 2024 08:01
„Samt veikari en nokkrum sinnum fyrr‟ Háttvirtur borgarstjóri, á nýliðinni Fjármálaráðstefnu sveitarfélaga sagðir þú meðal annars að veikindadagar kennara bæru merki um að Reykjavíkurborg væri að gera eitthvað algjörlega vitlaust. Í sama tilgangi sagðir þú að kennarar vilji sem minnst umgangast nemendur og að kennarar vilji bara vera í undirbúningi og styttingu vinnuvikunnar. Skoðun 15. október 2024 07:03
Mikið undir á fyrsta sáttafundi eftir verkfallsboðun Í fyrramálið er mikilvægur fundur hjá Ríkissáttasemjara en umfangsmikil verkföll eru á dagskrá í lok mánaðar. Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, segir að enn beri mikið í milli en hann vonast til þess að deiluaðilar nái saman svo afstýra megi verkföllum. Innlent 15. október 2024 00:01
Þykir leitt hvernig kennarar túlkuðu orð sín Einar Þorsteinsson borgarstjóri segir sér þykja það leitt að ummæli sem hann lét falla á fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna fyrir helgi hafi verið túlkuð á þann veg að hann beri ekki virðingu fyrir störfum kennara. Innlent 14. október 2024 19:52
Kæru kennarar Frá ykkur hef ég fengið sterk viðbrögð við ummælum mínum um starfsaðstæður kennara á ráðstefnu Sambands sveitarfélaganna og nokkuð ljóst að sjónarmið mín hafa ekki komist nægilega vel á framfæri í stuttum myndbandsbúti sem fór á flug. Skoðun 14. október 2024 19:51
Opið bréf til borgarstjóra Ég ætla að byrja á að viðurkenna mistök mín og gangast við þeim því það er það sem ég kenni nemendum mínum að gera og vonast til að kenna þér það með þessu bréfi. Skoðun 14. október 2024 16:02
Jón Gnarr kennir í brjósti um Einar arftaka sinn Jón Gnarr fyrrverandi borgarstjóri kveðst í hlaðvarpsviðtali dauðvorkenna Einari Þorsteinssyni sitjandi borgarstjóra. Einar tók við keflinu af Degi B. Eggertssyni fyrrverandi borgarstjóra á miðju kjörtímabili en Dagur hefur verið orðaður við framboð í landsmálunum og þá fyrir Samfylkinguna. Innlent 14. október 2024 14:01
Kennarar alltaf í fríum og vilja semja sig frá kennslu! Ég sit heima hjá mér á sunnudegi og er að fara yfir verkefni. Maðurinn minn gekk inn og benti mér á myndband af borgarstjóra sem á fjármálaráðstefnu SÍS nú fyrir helgi ræddi um það að kennarar vildu semja sig frá meiri kennslu, losna við börnin og bæta við undirbúningstíma. Skoðun 14. október 2024 14:01
Vegna ummæla borgarstjóra um kennara Það er virkilega dapurt að heyra ummæli borgarstjóra á nýliðinni fjármálaráðstefnu sveitarfélagana um kennara, þar sem hann uppskar lófatak fjölda oddvita og sveitarstjóra í salnum. Það er sorglegt í ljósi þess að nú rétt fyrir helgi íhugaði ég alvarlega um framtíð mína, ungs kennara nýútskrifuðum úr meistaranámi, í þessu starfi. Skoðun 14. október 2024 12:30
Kerfisbreytingar í skólakerfinu: Velferð barna í fyrirrúmi Nýleg ummæli Einars Þorsteinssonar, borgarstjóra Reykjavíkur, á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga hafa vakið athygli og umræður um nauðsyn kerfisbreytinga í skólakerfinu. Skoðun 14. október 2024 12:16
Asifa Majid hlýtur Vigdísarverðlaunin 2024 Asifa Majid, sálfræðingur, málfræðingur og prófessor í hugrænum vísindum við Oxford-háskóla, er handhafi Vigdísarverðlaunanna 2024. Rektor Háskóla Íslands og fulltrúi menningar- og viðskiptaráðherra munu afhenda Majid verðlaunin við hátíðlega athöfn í Háskóla Íslands 22. október næstkomandi og mun Majid flytja erindi af því tilefni. Menning 14. október 2024 11:21
„Svívirðileg móðgun við kennara“ Kennarar í Reykjavík gera alvarlegar athugasemdir við þau ummæli sem Einar Þorsteinsson borgarstjóri lét falla á fjármálaráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga í liðinni viku. Innlent 14. október 2024 11:08
Afmælisboð 180 daga á ári og oft á dag Þegar ég svara fólki spurningunni um hvað kennarastarfið felur í sér þá á ég það til að nota líkingarmál því fáir sem ekki hafa kennt vita um hvað starfið snýst í raun. Skoðun 14. október 2024 11:02