Fyrir hverja eru leikskólar María Ellen Steingrímsdóttir skrifar 29. janúar 2026 08:17 Leikskólinn er fyrsta skólastigið þar sem okkar minnstu og mikilvægustu samborgarar taka sín fyrstu skref í að verða hluti af samfélaginu. Þar er félagsfærni, málþroski og öryggi þeirra byggt upp undir vökulu auga starfsfólks sem hefur atvinnu af því að stuðla að öryggi og vellíðan barna í námi og leik. Leikskólar eru líka grundvallarforsenda þess að foreldrar ungra barna geti tekið þátt í atvinnulífinu. Tímamótalausnin Árið 2023 var innleidd tímamótalausn á leikskólavandanum í Kópavogi. Komið var á fót kerfi sem fól í sér að sex klukkustunda leikskóladvöl sé gerð gjaldfrjáls og hver mínúta upp frá því skyldi rukkuð dýrum dómi. Þessari tímamótalausn var ætlað að bæta starfsumhverfi barna og starfsfólks og auka fyrirsjáanleika, allt með því eina að skapa fjárhagslegan hvata fyrir foreldra að stytta dvöl barna sinna á leikskólunum. Tímamótalausnin hefur skilað árangri og er starfsfólk ánægðara og dregið hefur úr álagi. Börnin eru færri í byrjun dags og í lok dags. Það er vel. Tímamótalausnin í Kópavogi felur í sér þjónustuskerðingu fyrir foreldra. Með lausninni er gjaldskráin hækkuð svo freklega að umræddan hvata mætti frekar telja til þvingunarráðstafana. Í Kópavogi bera nefnilega barnafjölskyldur sem notast við 8 klukkustunda leikskólavistun fyrir börnin sín, þyngstu fjárhagsbyrði vegna leikskólagjalda af öllum sveitarfélögum landsins. Í Kópavogi borga fjölskyldur leikskólabarna sem kaupa sér tveggja klukkustunda vistun ofan á þær sex gjaldfrjálsu 144.096 kr. meira en fjölskyldur í Hafnarfirði gera fyrir sama vistunartíma á ári og 153.432 kr. meira en fjölskyldur á Akureyri gera á ári. Bæði þessi sveitafélög bjóða einnig uppá gjaldfrjálsar fyrstu 6 klukkustundir. Í ársuppgjöri heimilisbókhaldsins geta 150.000 krónur skipt máli. Sveigjanleiki og gæðastundir eða kvöð Fulltrúum meirihlutaflokkanna er tíðrætt um um að aukinn sveigjanleiki og skráningardagar hafi skapað tækifæri fyrir foreldra leikskólabarna í Kópavogi til að samræma betur vinnu og fjölskyldulíf en óháð rannsókn um viðhorf foreldra dregur upp allt aðra mynd, þar sem foreldrar lýsa yfir samviskubiti, þreytu og stöðugri tímapressu. Niðurstöðurnar benda til þess að kerfið virki helst fyrir foreldra sem hafa sveigjanlegan vinnutíma og sterkt bakland, sem er einfaldlega ekki staðan hjá öllum. Þá geta breytingarnar jafnframt haft neikvæð áhrif á atvinnuþátttöku kvenna og kynjajafnrétti, sem er rauður þráður í umræðunni þegar ábyrgðin færist heim til foreldra. Bæjarstjóri Kópavogs gefur lítið fyrir rannsóknina og telur hana ekki marktæka vegna of lítils úrtaks. Hvað sem því líður eiga þá eiga niðurstöður hennar fullt erindi í umræðuna. Þá hefur tekist að snúa 8 klukkustunda leikskóladvöl barna upp í eitthvað neikvætt. Foreldrum er gefið að nýta leikskólana sem geymslu, því er gert undir fótinn að foreldrar hugsi frekar um eigin starfsframa en uppeldi barna sinna eða að foreldrar hafi eitthvað á móti bættum starfsaðstæðum starfsfólks. Það er nefnilega þannig að þeir einu sem græða á því að stilla upp starfsfólki leikskóla á móti foreldrum ungra barna eru stjórnmálamenn með engin önnur úrræði. Börnin úr leikskólunum er ekki lausnin Leikskólavandinn er hugtak sem endurspeglast í þeirri staðreynd að allir eru sammála um að leikskólakerfið sé ómissandi en enginn ætlar að taka ábyrgð á því að þeir virki í raun. Vandinn er ekki skortur á góðum vilja, heldur skortur á aðgengi, fagfólki og heildarsýn samfélagsins alls. Lausnin á leikskólavandanum er ekki að taka börnin úr leikskólanum eða gera foreldrum erfiðara fyrir að samræma fjölskyldulíf og atvinnu. Því það er raunin með svona ráðahag. Tímamótalausnin í Kópavogi er afkvæmi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi undir klappstjórn Framsóknarflokksins. Markaðsþenkjandi flokknum tekst að vega að atvinnuþátttöku foreldra undir þeirri yfirskrift að þetta eigi að vera hvetjandi og börnunum fyrir bestu. Þau sem ekki geta sitja uppi með svo himinhá leikskólagjöld að skömm er af því. Á fundi bæjarstjórnar Kópavogs fyrir rúmlega tveimur vikum var ljóst að meirihlutinn í bæjarstjórn Kópavogs hefur engan áhuga á að skoða leiðréttingu eða lækkanir á hæstu leikskólagjöldum landsins. Í Kópavogi þarf að lækka leikskólagjöld og sýna í verki að börn og fjölskyldur séu forgangsmál. Endurskoða þarf forsendur tímamótalausnarinnar, sem var kynnt sem tilraunaverkefni. Leikskólinn á nefnilega að vera fyrir börnin, starfsfólkið og foreldra. Höfundur er foreldri tveggja ára leikskólabarns í Kópavogi og frambjóðandi til oddvita Viðreisnar í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kópavogur Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Viðreisn Leikskólar Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Brexit rútan mætt til Íslands! Andrés Pétursson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar