Að auka virði sitt Ég var að horfa á Kastljósið í kvöld þar sem Magnús Þór, formaður Kennarasambands Íslands, og Inga Rún, formaður samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga (SÍS), mættust til að ræða kjaramál kennara. Það kemur líklega engum á óvart að ég var gríðarlega ánægð með fulltrúa míns stéttarfélags í þessum þætti. Skoðun 29. október 2024 21:17
Fimm börn alvarlega veik á gjörgæslu vegna E.coli sýkingar Alls eru nú tíu börn inniliggjandi á Landspítalanum vegna E.coli sýkingar. Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum eru þar af fimm þeirra á gjörgæslu. Um 40 börn eru undir eftirlit vegna sýkingarinnar. E. Coli sýking getur leitt til alvarlegar nýrnabilunar og því eru börn sem eru á gjörgæslu í blóðskilun. Innlent 29. október 2024 21:17
Framhaldsskólar taki ekki tillit til verkfallsbarna Verkföll kennara í níu skólum hófust í dag. Kennarasambandið hefur sakað Samband íslenskra sveitarfélaga og sveitarfélagið Skagafjörð um tilraun til verkfallsbrota. Innlent 29. október 2024 21:01
Kennari fær milljón! Verkfall kennara er hafið, ,,eitt í safnið“, en kennarar hafa því miður margoft þurft að grípa til verkfallsvopnsins og þau verkföll oft verið harðvítug og staðið vikum saman, sem auðvitað er ekki gott. Fólk vill vinna sína vinnu og fá almennilega borgað fyrir það. Skoðun 29. október 2024 18:01
Telja sig ekki brjóta neinar verkfallsreglur Sveitarstjóri Skagafjarðar segir túlkun sveitarfélagsins og Sambands íslenskra sveitarfélaga (SÍS) þannig að heimilt sé að starfsmenn ekki í verkfalli haldi starfsemi leikskólans Ársala gangandi. Enginn gangi í störf þeirra sem eru í verkfalli. Innlent 29. október 2024 13:21
Með aukinni farsæld hefur hlutverk fagmenntaðra sérkennara aldrei verið mikilvægara Sérkennarar gegna lykilhlutverki í menntakerfinu þar sem hlutverk þeirra er að veita börnum og unglingum með ólíkar þarfir einstaklingsbundinn og markvissan stuðning með það að markmiði að tryggja farsæld og jafnrétti til náms. Skoðun 29. október 2024 13:00
Magnús Karl tekur slaginn við Silju Báru Magnús Karl Magnússon, læknir og prófessor við Háskóla Íslands, hefur lýst yfir framboði sínu til embættis rektors Háskóla Íslands. Núverandi rektor hyggst ekki fara fram á ný þegar skipunartíma hans líkur en Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor við stjórnmálafræðideild skólans, hefur lýst yfir áformum um framboð. Innlent 29. október 2024 12:02
Samstarf um menntun og móttöku barna af erlendum uppruna Á liðnum árum hafa orðið miklar samfélagsbreytingar á Íslandi sem haldast í hendur við þá þróun sem við sjáum í heiminum. Síðustu tíu ár hefur hlutfall innflytjenda á Íslandi hækkað úr 8% í 18% og í leik- og grunnskólum landsins eru börn með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn orðin um það bil þriðjungur að meðaltali. Skoðun 29. október 2024 10:32
Foreldrar þurftu frá að hverfa með yngstu börnin sín Formaður félags leikskólakennara segir greinilegt að fjárfesta þurfi í betra sveitarstjórnarfólki. Tilefnið er afstaða Skagafjarðar þess efnis að starfsfólk utan Kennarasambands Íslands megi ganga í störf kennara sem eru í verkfalli. Foreldrar barna á Sauðárkróki þurftu frá að hverfa af leikskóla bæjarins í morgun eftir að hafa verið tjáð að leikskólinn yrði opinn. Innlent 29. október 2024 10:14
Þessi bölvaði hagvöxtur, þurfum við kannski bara annað hrun? Við athuganir á kennaraskortinum alræmda, tók ég eftir því að á ákveðnu tímabili dró úr honum. Tímabili sem hófst haustið 2008, þegar hér varð fjármálahrun sem er greypt í þjóðarsálina. Þá jókst hlutfall kennara við störf í skólum landsins. Aðföngin spruttu fram. Skoðun 29. október 2024 10:01
Skagastelpan sem gerðist menntaskólakennari í Flórída Röð atvika leiddi til þess að Veronica Líf Þórðardóttir fékk boð um að gerast efnafræðikennari við menntaskóla í Melbourne, 90 þúsund manna borg suðaustur af Orlando í Flórída. Þar hefur hún starfað í eitt og hálft ár og tekist á við ýmsar áskoranir, enda talsverður munur þegar kemur að bandarísku og íslensku skólakerfi. Lífið 29. október 2024 08:01
Lögfestum leikskólastigið Það er löngu tímabært að tryggja öllum börnum leikskóladvöl með því að lögfesta leikskólastigið. Sú breyting er lykilatriði í því að brúa bilið sem enn er á milli fæðingarorlofs og leikskóla og veldur fjölmörgum fjölskyldum miklum vandræðum. Í velferðarsamfélagi sem byggir á jöfnuði og jafnrétti er ótækt að fjölskyldur búi við kvíða og afkomuótta í kjölfar barneigna. Það er því réttlát krafa að brúa bilið – með hagsmuni barna og kvenfrelsi að leiðarljósi. Skoðun 29. október 2024 06:32
Verkfall kennara skollið á Kennarar í níu skólum víða um land hafa nú lagt niður störf. Um er að ræða fjóra leikskóla, þrjá grunnskóla, einn framhaldsskóla og einn tónlistarskóla. Búið er að samþykkja verkföll í fjórum skólum til viðbótar sem hefjast í nóvember. Innlent 29. október 2024 00:01
„Ég skil vel foreldra sem eru í vandræðum“ Vinnustöðvun kennara í níu skólum víða um land hefst á miðnætti. Leikskólastjóri og foreldri barns þar segjast bæði taka einn dag í einu en vonast til þess að hægt verði að semja sem fyrst. Innlent 28. október 2024 20:05
Kennarar óskast Auglýsingin „Leikskólakennari óskast“ er eitthvað sem við sjáum á hverju hausti, en þá keppast leikskólar landsins við að ráða inn nýtt starfsfólk, enda fastur liður í hverjum skóla að þurfa að ráða inn nýtt fólk. Hlutfall kennara á samkvæmt lögum að vera 2/3 í leikskólum en ætti þó auðvitað að vera sem allra mest, helst 100%. Skoðun 28. október 2024 17:01
Verkföll hefjast á morgun: „Þetta er þvílíkur ómöguleiki“ Að öllu óbreyttu hefjast verkföll kennara í níu skólum á morgun. Formaður samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga segir stöðuna grafalvarlega og er afar svartsýn á að samningar náist í dag. Innlent 28. október 2024 14:23
Kaupa tilbúinn mat á meðan E.coli sýkingin er til rannsóknar Leikskólinn Mánagarður í Vesturbæ Reykjavíkur er enn lokaður eftir að upp kom E.coli sýking á leikskólanum í síðustu viku. Leikskólastjóri segir það koma í ljós síðar í dag hvort hægt sé að opna í vikunni. Hún ætlar að kaupa tilbúinn mat á meðan málið er til rannsóknar. Innlent 28. október 2024 11:55
Kvennabarátta síðustu áratuga og virðing fyrir starfi kennara Fyrsti kvennafrídagurinn á Íslandi var haldinn þann 24. október árið 1975. Eins og allir vita þá lögðu konur niður störf þennan dag til að sýna fram á mikilvægi vinnuframlags þeirra í samfélaginu, bæði á vinnumarkaði og heimilum. Um 90% kvenna á Íslandi tóku þátt í þessum verkfallsaðgerðum, sem undirstrikaði stöðu þeirra og áhrif í íslensku samfélagi. Skoðun 28. október 2024 11:15
97 brautskráðust frá HR 97 nemendur útskrifuðust frá Háskólanum í Reykjavík í Norðurljósum í Hörpu á laugardag. Fimm nemendur luku doktorsprófi frá HR að þessu sinni, allir frá tölvunarfræðideild. Viðskipti innlent 28. október 2024 10:58
Þrjú börn á gjörgæslu vegna E.coli sýkingar Alls eru nú 42 börn undir eftirlit á Landspítalanum vegna E. Coli sýkingar sem kom upp á leikskólanum Mánagarði í síðustu viku. Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum eru 11 af þeim inniliggjandi og þrjú þeirra á gjörgæslu alvarlega veik. Innlent 28. október 2024 10:46
Akademískt frelsi er í hættu – Tími til aðgerða Þegar Norðurlandaráð kemur saman á Íslandi nú í lok október verður þess farið á leit við þá sem sitja fund ráðsins að tekist sé á við það brýna verkefni að standa vörð um akademískt frelsi á Norðurlöndunum. Um áratugaskeið hafa Norðurlöndin verið í fararbroddi á alþjóðavísu um hvernig hægt er að verja rannsóknar- og menntastofnanir gegn pólitískum, viðskiptatengdum og hugmyndafræðilegum þrýstingi. Skoðun 28. október 2024 09:03
Menntakerfið í öfuga átt við atvinnulífið: Hvers vegna eykst álag á nemendur á meðan vinnuvikan styttist? Hvernig stendur á því að menntakerfið fari í öfuga átt við atvinnulífið? Það er merkilegt að sjá hvernig tvær af mikilvægustu stoðum samfélagsins virðast stefna í öfuga átt við hvor aðra þegar kemur að vinnuálagi. Skoðun 27. október 2024 23:01
Skólarnir eigi að hjálpa nemendum að ná árangri og vera jöfnunartæki „Það er skylda okkar, sem fáum það traust að mennta æsku Íslands, að hjálpa nemendum ná sem allra mestum árangri eins og kostur er. Skólar eru jöfnunartæki, það ætti enginn að líða fyrir stétt eða stöðu sína því að allir nemendur skipta máli og allir nemendur ættu að hafa eins jöfn tækifæri eftir 10 ára skyldunám sem mögulegt er.“ Innlent 27. október 2024 16:34
Það er ekkert til sem heitir full vinnustytting með 15 mínútna neysluhléi Jæja, kostulegt, en viti menn ég er aftur sest niður til þess að skrifa um útfærslu á vinnustyttingu, í þetta skiptið á það ekki bara við um útfærslu í leikskólum landsins, ó nei, heldur á það við um þá mörgu vinnustaði sem rituðu undir kjarasamning veturinn 2019-2020 þar sem heimild er til þess að gera breytingu á vinnutíma og stytta vinnuvikuna í allt að 36 stundir á viku. Skoðun 27. október 2024 10:01
Umsókn um stöðu kennara í (vonandi) nálægri framtíð Ég undirrituð sótti um og fékk starf í grunnskóla. Eftir tvö ítarleg viðtöl við mannauðsstjóra annars vegar og svo skólastjórnendur hins vegar, varð starfið loks mitt! Ég ræð mér varla fyrir kæti. Það er góð tilfinning að vera metin að verðleikum, enda hef ég þá einu hugsjón að kenna nemendum mínum og gera það vel. Skoðun 26. október 2024 14:02
Hernaðurinn gegn skólunum Á tyllidögum kallar Viðskiptaráð sig „bakhjarl menntunar“ á Íslandi. Það hreykir sér af eigin ábyrgðarkennd og rembist við að skapa þá mynd af sér að þar fari bæði framsýnt og víðsýnt afl um menntun. Þessi ímynd hefur laskast nokkuð síðasta árið eftir að ráðið og pennavinur þess, Morgunblaðið, hafa staðið fyrir einhverri stærstu árásarherferð sem skólakerfið hefur orðið fyrir í sögu lýðveldisins. Skoðun 26. október 2024 12:01
Kveðja frá „lata“ kennaranum sem er „alltaf í fríi“ Kennarastarfið hefur verið mikið í umræðunni undanfarna daga og er umræðan oft og tíðum mjög ósanngjörn. Þegar aðrar stéttir berjast fyrir bættum kjörum, eins og læknar, hjúkrunarfræðingar eða flugumferðastjórar verður umræðan ekki eins og hún er núna. Ég tek allavega ekki eftir því að þær stéttir þurfi að eyða öllu púðri í að sannfæra fólk um að það sé raunverulega að vinna þegar þær krefjast hærri launa eða fara í verkfall. Skoðun 26. október 2024 07:32
Opið bréf til Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskólamálaráðherra Mig langar að benda þér á nokkuð, sem hlýtur að vera yfirsjón, og þú vilt örugglega leiðrétta fyrir kjördag. En fyrst vil ég hrósa þér fyrir það sem vel er gert. Nýsköpun og tækniþróun á Íslandi hafa blómstrað undanfarin ár. Þú hefur ræktað þessar greinar með auknu fjármagni og breyttu styrkjaumhverfi. Vandinn er hins vegar sá að þessi nýsköpun og tækniþróun munu stöðvast nema þú leiðréttir fjármögnun til háskólastigsins. Lof mér að útskýra. Skoðun 26. október 2024 07:01
Tæplega þrjátíu börn í virku eftirliti Tæplega þrjátíu leikskólabörn eru í virku eftirliti vegna e. coli sýkingar sem kom upp á leikskólanum Mánagarði í Reykjavík í vikunni. Alls liggja fjögur börn inni á spítala en tvö þeirra eru enn á gjörgæslu. Þetta staðfestir Andri Ólafsson, samskiptastjóri Landspítalans. Innlent 25. október 2024 19:39
Menntaumræða á villigötum Ljóst er að menntamál er eitt af aðalatriðum kosningabaráttu ársins en menntun yngri kynslóða þarfnast svo sannarlega betri stjórnunnar en hingað til hefur verið beitt. Skoðun 25. október 2024 15:01
Ragnar um biðlaun annars formanns: „Hvað gerir þessa gæðinga að svo miklu betri mönnum en okkur?“ Innlent