Skeiða- og Gnúp­verja­hreppur

Skeiða- og Gnúp­verja­hreppur

Mannfjöldi: 617 (2025). Flatarmál: 2.232 ferkílómetrar. Stærstu byggðakjarnar: Árnes, Brautarholt á Skeiðum.


Fréttamynd

Laga þurfi fegurðarskynið að orkuskiptum

Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis- orku og loftslagsráðherra segir að laga þurfi fegurðarskynið að orkuskiptabyltingunni. Hann kveðst hæstánægður með ferlið og segir engan afslátt hafa verið gefinn af umhverfiskröfum eða samráði við nærsamfélagið.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Björgun við Háafoss krefjandi vegna böruburðar

Björgunarfélag Árborgar var kallað út í gær um klukkan 21 vegna slasaðs einstaklings við Háafoss. Björgunarfélagið segir björgun hafa reynst mjög krefjandi vegna böruburðar. Ekkert símasamband er þar sem maðurinn fannst. 

Innlent
Fréttamynd

Virkjunar­leyfi vegna Hvammsvirkjunar fær grænt ljós

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur gefið grænt ljós á virkjunarleyfi Landsvirkjunar vegna Hvammsvirkjunar. Um er að ræða aðra atrennu en fyrra leyfi var ógilt í Hæstarétti síðasta sumar og í kjölfarið var nýtt leyfi gefið út á grundvelli nýrra laga.

Innlent
Fréttamynd

Bláa lónið fær sér­leyfi og lóð í Þjórs­ár­dal

Í dag voru sérleyfis- og lóðaleigusamningar á milli íslenska ríkisins og Bláa Lónsins hf. um uppbyggingu og rekstur þjónustumiðstöðvar og annarrar atvinnustarfsemi í ferðaþjónustu í Þjórsárdal undirritaðir. Samningarnir eru fyrsta skrefið í uppbyggingu gestastofu í mynni Þjórsárdals þar sem fjölbreytt þjónusta verður í boði fyrir ferðamenn en dalurinn er sagður eitt merkasta náttúru- og sögusvæði Íslands.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

„Þetta er bara sann­girnis­mál“

Þó sveitarfélögin á Suðurlandi séu mörg hver stór þá eru þau ekki endilega fjölmenn. Málefnin þar geta þó snert marga og þannig er staðan í Skeiða- og Gnúpverjahreppi en það er eitt af sveitarfélögunum á svæðinu sem hefur ákvarðanarétt varðandi Hvammsvirkjun. Í sveitastjórn hefur oft á tíðum verið hart tekist á um málið.

Innlent
Fréttamynd

Fresta leit að ferða­manninum

Leit að erlendum ferðamanni sem skilaði sér ekki á gististað í gær, eftir að hann fór að Háafossi í Þjórsárdal, hefur ekki borið árangur. Lögreglan á Suðurlandi segir að leitinni verði frestað þar til nýjar vísbendingar koma fram.

Innlent
Fréttamynd

Leita enn að ferða­manninum

Lögreglan á Suðurlandi og björgunarsveitir hafa hægt og rólega útvíkkað svæðið þar sem leitað er að erlendum ferðamanni, sem skilaði sér ekki á gististað í gær, að sögn upplýsingafulltrúa Landsbjargar. Leitað verður fram á kvöld, að þar til að maðurinn finnst.

Innlent
Fréttamynd

Ár­nesingur og Rang­æingur grafa fyrir Hvammsvirkjun

Verksamningur um framhald framkvæmda við Hvammsvirkjun var undirritaður í dag milli Landsvirkjunar og tveggja sunnlenskra verktaka. Kærumál eru þó enn í gangi en Landsvirkjunarmenn vonast samt til að geta boðið út stærstu verkþættina í sumar.

Innlent
Fréttamynd

Plóma mjólkar mest allra kúa og setti Ís­lands­met

Kýrin Plóma er engin venjuleg kýr því hún mjólkar svo mikið að sjaldan eða aldrei hefur annað sést hér á landi, enda sló Plóma Íslandsmet í afurðum á síðasta ári. Plóma er líka alltaf í góðu skapi og finnst fátt skemmtilegra en að hoppa og skoppa í fjósinu sínu.

Innlent
Fréttamynd

Stranger Things-fossinn gæti orðið vin­sælastur

Ferðamálastofa telur að Háifoss í Þjórsárdal gæti orðið einn af vinsælustu áfangastöðum erlendra ferðamanna á komandi árum. Það sé meðal annars vegna þess að fossinn birtist í nýjustu þáttaröðinni af Stranger Things.

Innlent