Reykjavík

Reykjavík

Mannfjöldi: 138.772 (2025). Flatarmál: 244 ferkílómetrar.


Fréttamynd

And­lát í fangelsinu á Hólms­heiði í nótt

Karlmaður sem vistaður var í fangelsinu á Hólmsheiði lést í nótt. Ragna Bjarnadóttir fangelsismálastjóri staðfestir það við fréttastofu en segist ekki geta greint nánar frá tildrögum andláts eða nánari upplýsingum um þann sem lést. Fyrst var greint frá á RÚV. 

Innlent
Fréttamynd

Fræsa og mal­bika Vestur­lands­veg í kvöld

Frá klukkan 19 í kvöld og til tvö í nótt er stefnt á að fræsa og malbika kafla á Vesturlandsvegi við Esjumela og annan kafla við Kollafjörð klukkan 21. Hringvegurinn verður því að hluta til lokaður í kvöld og í nótt.

Innlent
Fréttamynd

Mennta­skólanum í Reykja­vík slitið í 180. sinn

Menntaskólinn í Reykjavík (MR) brautskráði í gær 195 stúdenta við hátíðlega athöfn í Háskólabíói. 35 af máladeildum, 36 af eðlisfræðideildum og 124 af náttúrufræðideildum. Var skólanum formlega slitið í 180. sinn við lok athafnarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Rann­saka á­flog við verslunar­mið­stöð í Kópa­vogi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði fíkniefnaviðskipti við grunnskóla í vesturhluta borgarinnar í gær. Í dagbók lögreglu kemur fram að lögreglumenn við almennt eftirlit hafi orðið varir við grunsamlega háttsemi við grunnskóla og handtekið einn með bakpoka sem innihélt mikið magn fíkniefna og fjármuna. Hann var vistaður í fangaklefa.

Innlent
Fréttamynd

Vör ýtt úr vör

Á sunnudaginn ýta Faxaflóahafnir fjölnota farþegamiðstöðinni Vör úr vör. Það féll í hlut Heiðu Bjargar Hilmisdóttur, borgarstjóra Reykjavíkur, að opna Vör með borðaklippingu í dag.

Innlent
Fréttamynd

Ari Edwald enn undir feldi

Ari Edwald oddviti Miðflokksins í borginni hefur ekki enn gert upp hug sinn varðandi tillögu Hildar Björnsdóttur, verðandi borgarstjóra og oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, um að hann taki að sér stjórnarformennsku í Orkuveitunni.

Innlent
Fréttamynd

Styttan af Séra Frið­riki fer upp, bara ekki strax

Tvennum sögum fer af atkvæðagreiðslu sem fram fór á aðalfundi knattspyrnufélagsins Vals í gær, um hvort reisa ætti á ný styttu af stofnanda Vals, séra Friðriki Friðrikssyni. Margir töldu að á aðalfundinum hefði verið felld tillaga þess efnis en það var hreint ekki það sem verið var að greiða atkvæði um að sögn Theódórs S. Halldórssonar. Tillagan snerist eingöngu um hvenær, ekki hvort.

Innlent
Fréttamynd

Séra Frið­rik fær ekki að rísa strax

Tillaga um að reisa á ný styttu af séra Friðriki Friðrikssyni í sumar var í kvöld felld á aðalfundi knattspyrnufélagsins Vals. Á sama fundi var Arnar Þór Sævarsson kjörinn formaður félagsins en hann er framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Innlent
Fréttamynd

Hvalbátarnir komnir úr klössun fyrir ver­tíðina

Hvalveiðibátnum Hval 8 var núna undir kvöld rennt úr slippnum í Reykjavíkurhöfn eftir klössun en áður var búið að yfirfara Hval 9. Þetta þykja ótvíræð merki um að Hvalur hf. stefni á stórhvalaveiðar í sumar.

Innlent
Fréttamynd

Hjólhýsabyggð færist í Gufu­nes þrátt fyrir að­finnslur

Stefnt er að því að hjólhýsabyggðin sem hefur staðið við Sævarhöfða í tvö ár færist í Gufunes. Reykjavíkurborg og forsvarsmenn óstofnaðs félags, Samtaka hjólabúa, hafa skrifað undir afnotasamning þess efnis. Um er að ræða 3.900 fermetra landspildu í Gufunesi sem er á milli afnotasvæðis Skemmtigarðsins og íbúðabyggðar við Jöfursbás.

Innlent
Fréttamynd

Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir

Stefnt er að því að nýi Arnarnesvegurinn um Vatnsendahæð verði opnaður að hluta í lok næsta mánaðar og vegurinn í heild í október í haust. Þetta tíu milljarða króna verkefni er stærsta vegagerð á höfuðborgarsvæðinu hin síðari ár.

Innlent
Fréttamynd

Hjónasjálfa, gleði og faðm­lög í Við­ey

Það dró til tíðinda í morgun þegar fréttamenn voru kallaðir út í Viðey ellefu dögum eftir borgarstjórnarkosningar. Blaðamannafundurinn var boðaður með skömmum fyrirvara og þurfti fjölmiðlafólk að hafa snör handtök líkt og oft áður til að geta miðlað viðburðinum til landsmanna. Þétt var setið í Viðeyjarferjunni á ellefta tímanum og fylgdu svo fleiri borgarfulltrúar í kjölfarið.

Innlent
Fréttamynd

Drauga­gangur, búrtíkur og öngull í rassi

Fólk bregst vægast sagt misvel við nýmynduðum borgarstjórnarmeirihluta á Facebook og ljóst að hægra megin við miðju þykja berin gallsúr en eins og Baldur Hermannsson bendir á þá er lífið nú einu sinni þannig að „oft kemur grátur eftir skellihlátur.“

Innlent
Fréttamynd

Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann

Oddvitar nýs meirihluta í Reykjavík hafa þegar átt samtal við Daða Má Kristófersson fjármálaráðherra um samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Þeir segja ætlunina ekki að tefja framkvæmdir heldur þurfi að endurskoða tillögur um veggjöld og flýta Miklubrautargöngum.

Innlent