„Eiginlega bara óforskammað“ Hópi skólaliða hefur verið sagt upp störfum í grunnskólum Reykjavíkurborgar og þrifaverkefnum þeirra útvistað til einkafyrirtækja. Þá hefur starfshlutfall annarra verið skert. Innlent 24.8.2026 20:58
Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Opnunartími Sundhallarinnar í Reykjavík verður tímabundið með breyttu sniði frá og með morgundeginum. Vegna framkvæmda þarf að miða við nýjan hámarksfjölda í lauginni. Innlent 24.8.2026 14:03
Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Skólastjóri Hólabrekkuskóla segir að smá hökt á fyrsta skóladegi hljóti að vera byrjunin á einhverju stórkostlegu í unglingadeild skólans. Á annað hundrað nemendur fóru snemma heim en reiknað er með að öryggisúttekt ljúki í dag. Allir mæta svo í nýtt húsnæði í fyrramálið og hefja námið samkvæmt stundaskrá. Innlent 24.8.2026 13:28
Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju Lögregla hafði afskipti af á fjórða tug ungmenna vegna unglingadrykkju. Mikill erill var í miðbæ Reykjavíkur í gær vegna Menningarnætur en lögregla segir kvöldið og nóttina hafa gengið vel. Innlent 23. ágúst 2026 13:48
Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Lögreglan handtók í gær þrjá vegna líkamsárásar þar sem, samkvæmt tilkynningu eggvopnum og hnúajárni, var beitt. Innlent 23. ágúst 2026 07:35
Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Á menningarnótt, sem fram fór í Reykjavík í gærkvöld, sinnti lögregla virku eftirliti með áfengisdrykkju ungmenna og þurfti að hafa afskipti af töluvert mörgum vegna þessa. Innlent 23. ágúst 2026 07:19
Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Samhliða því að hætta við endurbætur á eldhúsi Reykjavíkurborgar á Vitatorgi og hækka gjaldskrá veitinga og fæðis hjá Reykjavíkurborg var ákveðið á fundi borgarráðs í vikunni að bjóða út dreifingu máltíðanna. Töluverður hiti var á fundinum en til umræðu voru nokkrar tillögur er varða framleiðslu, dreifingu og sölu á máltíðum fyrir lífeyrisþega og fatlað fólk í Reykjavík. Innlent 23. ágúst 2026 07:03
Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra var ein þeirra sem gerðu sér lítið fyrir og hlupu tíu kílómetra í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka í fyrsta skipti en hún fór létt með það ef marka má færslur sem hún deildi á Facebook. Lífið 22. ágúst 2026 22:08
Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Þrátt fyrir að veðrið sé að mati margra ekki með besta móti má ætla að fjöldi fólks leggi leið sína niður í miðbæ Reykjavíkur í kvöld á Menningarnótt. Dagurinn hefur gengið eins og í sögu og er útlit fyrir að allt skipulag, götulokanir þar á meðal, hafi farið fram líkt og best væri á kosið. Áratuga reynsla spili inn í velheppnaða viðburði sem þessa. Innlent 22. ágúst 2026 19:17
Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Brotist var inn í Efstaleitisapótek í nótt en nágrannar vöknuðu við hávaða þegar jeppling var bakkað á rúðu í apótekinu með tilheyrandi látum. Engu var stolið nema lyfjum en talið er að tveir hafi verið að verki. Bíll þjófanna fannst skammt frá apótekinu en enn hefur ekki tekist að hafa uppi á þeim. Innlent 22. ágúst 2026 18:21
Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Lögreglu á stöð þrjú var í dag gert viðvart um þjófnað í verslun í hverfi 200 í Kópavogi en til handalögmála kom milli öryggisvarðar í versluninni og meints þjófs. Málið var afgreitt af lögreglu en ekki liggur fyrir hvort alvarlegir áverkar hafi hlotist af slagsmálunum. Innlent 22. ágúst 2026 17:43
Aftur í skólastjórastólinn Valdimar Víðisson, fyrrverandi bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar og oddviti Framsóknarflokksins, hefur tekið við sem skólastjóri Húsaskóla í Grafarvogi í Reykjavík. Fyrir bæjarstjóratíð hans var hann skólastjóri Öldutúnsskóla í um sextán ár. Innlent 22. ágúst 2026 11:48
Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Borgarstjóri hvetur íbúa borgarinnar til að mæta í miðborgina og njóta samveru og láta veðrið ekki á sig fá enda sé nóg um að vera. Innlent 22. ágúst 2026 10:57
Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um líkamsárás í miðsvæðis í Reykjavík í gærkvöldi eða nótt. Innlent 22. ágúst 2026 07:18
Blaut og vindasöm Menningarnótt í vændum Hlauparar morgundagsins ættu að undirbúa sig fyrir bleytu að sögn veðurfræðings. Búast megi við samfelldri rigningu allan fyrri part dags en um tíuleytið annað kvöld eigi að stytta upp. Veður 21. ágúst 2026 21:09
Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum Búist er við talsverðum töfum á umferð um gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar næstu vikur en framkvæmdir hefjast þar eftir helgi. Verkefnastjóri hjá Vegagerðinni hvetur fólk til að kynna sér hjáleiðir. Innlent 21. ágúst 2026 21:01
Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Samþykkt var á aukafundi skóla- og frístundaráðs að fella niður skólaakstur úr Suðurhlíðum í Hlíðaskóla. Skólaráð skólans harmar ákvörðunina og leggur áherslu á að tryggt sé að gönguleiðir úr Suðurhlíðum séu öruggar allt árið um kring. Breytingin gerir ráð fyrir að snjómokstri sé alltaf lokið fyrir klukkan átta á morgnana. Innlent 21. ágúst 2026 14:16
Þessi hafa safnað mestu fyrir Reykjavíkumaraþonið Reykjavíkurmaraþonið er eftir innan við sólarhring og hafa þegar safnast rúmar 200 milljónir króna til góðgerðarfélaga. Fjöldi hlaupara hefur safnað miklum fjárhæðum til styrktar hinum ýmsu góðgerðarfélögum og samtökum. Lífið 21. ágúst 2026 13:25
„Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara úr Vatnsmýri í náinni framtíð“ Meirihluti umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar hefur samþykkt breytingar á deiliskipulagi Reykjavíkurflugvallar, sem heimila meðal annars uppsetningu allt að þrjátíu metra hás masturs. „Ljóst er að Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara úr Vatnsmýri í náinni framtíð,“ segir í bókun meirihlutans. Innlent 21. ágúst 2026 11:33
Uppselt í tíu kílómetra í keppnisflokki Yfir 15 þúsund keppendur eru nú skráðir í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka sem fram fer á morgun og samkvæmt tilkynningu styttist í að uppselt verði í heilt og hálft maraþon. Uppselt er í tíu kílómetra í keppnisflokki en enn hægt að kaupa almannen hlaupamiða í tíu kílómetra hlaup. Innlent 21. ágúst 2026 11:10
Hefja útboðsferli fyrir þrjú þúsund fermetra höfuðstöðvar Faxaflóahafnir hyggjast reisa nýjar höfuðstöðvar sínar nærri Skarfabakka við Sundahöfn. Auglýst hefur verið forval um þátttöku í lokuðu útboði á hönnun nýs Hafnarhúss en með framkvæmdinni verður sameinuð meginstarfsemi á einum stað. Innlent 21. ágúst 2026 10:26
Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík Hnúfubakur sást svamlandi í Faxaflóa í dag skammt frá Reykjavík. Ferðamenn hjá Sólfarinu við Sæbraut ráku upp stór augu þegar þau sáu dýrið. Leiðsögumaður segir það ekki algengt að sjá slík sporðaköst nálægt landi. Innlent 20. ágúst 2026 21:02
Ekkert annað í stöðunni en að fara á brókinni í ísbúðina Þegar flugfreyjan Sigríður Birna Jónsdóttir áttaði sig á því að buxurnar hennar hefðu verið teknar í misgripum í útiklefa Vesturbæjarlaugar dó hún ekki ráðalaus. Hún vafði hálfkláraðri peysu sem hún hafði meðferðis um sig miðja og arkaði því næst ásamt syni sínum og tveimur frændum yfir í Ísbúð Vesturbæjar. Þar tók við henni hópur túrista sem brá heldur betur í brún við að sjá konu koma sér fyrir aftast í röðinni, á brókinni. Lífið 20. ágúst 2026 16:56
Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar Á næstu dögum verður ráðist í framkvæmdir við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar með það að markmiði að bæta umferðaröryggi, sýnileika og aðgengi fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Áætlað er að verkinu ljúki um mánaðamótin september-október. Innlent 20. ágúst 2026 15:01