Reykja­nes­bær

Reykja­nes­bær

Mannfjöldi: 22.499 (2025). Flatarmál: 145 ferkílómetrar. Stærstu byggðakjarnar: Keflavík, Njarðvík, Ásbrú, Hafnir.


Fréttamynd

Vil­hjálmur sagði af sér þing­mennsku

Vilhjálmur Árnason hefur gert forseta Alþingis grein fyrir afsögn sinni en hann hóf störf sem bæjarstjóri Reykjanesbæjar 2. júní. Vilhjálmur hefur verið þingmaður Sjálfstæðisflokksins fyrir Suðurkjördæmi frá árinu 2013 og var varaformaður þingflokksins.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Konan komin í leitirnar

Kona sem lögreglan á Suðurnesjum lýsti eftir fyrr í kvöld er fundin. Lögreglan hyggst ekki veita frekari upplýsingar um málið.

Innlent
Fréttamynd

Vil­hjálmur verður bæjar­stjóri

Vilhjálmur Árnason, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ, verður bæjarstjóri en hann og Gunnlaugur Kárason, oddviti Miðflokksins, skrifuðu í dag undir málefnasáttmála nýs meirihluta. Gunnlaugur verður formaður bæjarráðs.

Innlent
Fréttamynd

Fluttur til Noregs með bruna­sár á um helmingi líkamans

Íslendingur á fimmtugsaldri var í gær fluttur til Noregs með sjúkraflugi með brunasár á um helmingi líkamans og þarf að gangast þar undir aðgerðir. Lögmaður mannsins segir lögregluna hafa stórskaðað hann og gengið of harkalega fram þegar rafvarnarvopni var beitt eftir að maðurinn hafði hellt yfir sig eldfimum vökva. Hann hefur óskað eftir að héraðssaksóknari rannsaki málið.

Innlent
Fréttamynd

Fjölgun hælis­leit­enda í Reykja­nes­bæ sé engin

Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ segir skýra kröfu frá samfélaginu að málefni hælisleitenda í sveitarfélaginu séu tekin föstum tökum. Fjölgunin hælisleitenda sé engin en klára þurfi verkefnið og passa að vandamálið vaxi ekki á ný. Skoðað verði hvort sett verði á fót öryggisteymi í sveitarfélaginu.

Innlent
Fréttamynd

Lög­reglu hafi stafað hætta af manninum

Yfirlögregluþjónn Lögreglunnar á Suðurnesjum segir lögreglumenn hafa tekið upplýsta ákvörðun þegar þeir ákváðu að beita rafvarnarvopni gegn manni sem þakinn var íkveikivökva í morgun. Þá hafi manni verið gert að eyða myndefni af atvikinu í þágu hagsmuna þess sem beittur var rafvopninu, enda hafi hann verið án fata.

Innlent
Fréttamynd

Látinn eyða myndskeiði: „Ekki standa þarna eins og gungur, hjálpið manninum“

Maður sem varð vitni að afskiptum lögreglu af manni við Keflavíkurkirkjugarð í morgun, sem endaði með því að kviknaði í manninum, segir beitingu lögreglu á rafvarnarvopni fáránlega, þar sem maðurinn hafi verið búinn að hella á sig íkveikivökva. Þá hafi lögregla neytt hann til að eyða myndskeiði af atvikinu með hótunum um handtöku.

Innlent
Fréttamynd

Oddvitaáskorunin: Neitar að nota gervi­greind

Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum.

Lífið
Fréttamynd

Gjöld fyrir frí­stund rokið upp

Samanburður á gjöldum hjá fjórtán sveitarfélögum sýnir að hækkanir á gjaldskrám frístundaheimila fyrir grunnskólabörn frá árinu 2023 til 2026 eru á bilinu fjögur prósent upp í 37 prósent.

Innlent
Fréttamynd

Bæjar­full­trúi sagst vilja taka hann „bak við hús­vegg og skjóta“

Sviðs­stjóri um­hverfis- og fram­kvæmda­sviðs Reykja­nes­bæjar segir að bæjar­full­trúi og fram­bjóðandi Sam­fylkingarinnar hafi lýst því yfir að hann vildi helst fara með hann „bak við hús­vegg og skjóta“. Orðin hafi Hjörtur Magnús Guðbjarts­son látið falla í heimsókn til ónefnds verk­taka­fyrir­tækis í Reykja­nes­bæ en hann er í öðru sæti á lista Sam­fylkingarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Kona á sjötugs­aldri lenti á sjúkra­húsi með 125 pakkningar inn­vortis

Portúgölsk kona á sjötugsaldri sem reyndi að smygla fíkniefnum innbyrðis til landsins þurfti að fara í bráðaaðgerð og liggur nú á Landspítalanum. Málum sem snúa að burðardýrum hefur fjölgað verulega að sögn lögreglu. Að jafnaði séu hátt í tuttugu manns í gæsluvarðhaldi vegna slíkra brota á Suðurnesjum.

Innlent
Fréttamynd

Krónu kastað fyrir aurinn í fjár­mögnun skóla

Skólar á Suðurnesjum eru vanfjármagnaðir þar sem ekki er tekið tillit til þess hversu hátt hlutfall nemenda er með erlendan bakgrunn, segir þingmaður Framsóknar. Verði ekki ráðist í endurskoðun á úthlutun til skólanna skapist stór og mikil vandamál síðar meir. Rannsóknir sýni að líðan barna á svæðinu fari versnandi þegar líður á skólagönguna.

Innlent