

Olís-deild kvenna
Leikirnir

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Stjarnan 36-24 | Valur leiðir einvígið 1-0
Frábær frammistaða Valsstúlkna í fyrri hálfleik grundvallaði 36-24 sigur þeirra á Stjörnunni í undanúrslitum N1-deildarinnar í handbolta. Þær náðu forskotinu strax á fyrstu mínútum leiksins og slepptu því aldrei úr hendi sér.

Umfjöllun og viðtöl: Fram - ÍBV 27-24 | 1-0 fyrir Fram í einvíginu
Framstúlkur eru komnar með 1-0 forystu gegn ÍBV í undanúrslitaeinvígi liðanna í N1-deild kvenna. Fram vann öruggan sigur í fyrsta leiknum í Safamýri í dag. Sigur Fram var öruggari en tölurnar gefa til kynna en Fram-stúlkur slökuðu vel á klónni undir lokin þegar sigurinn var í höfn. Ásta Birna Gunnarsdóttir, leikmaður Fram fór á kostum í leiknum og skoraði hún tíu mörk.

Eyjakonur komnar í undanúrslitin - mæta Fram
ÍBV tryggði sér sæti í undanúrslitum N1 deildar kvenna í handbolta eftir fimm marka sigur á Gróttu, 24-19, í oddaleik í Vestmannaeyjum í kvöld. ÍBv vann fyrsta leikinn en Gróttukonum tókst að jafna metin í öðrum leiknum á Seltjarnarnesi. ÍBV mætir Fram í undanúrslitunum sem hefjast strax á fimmtudagskvöldið.

Formaður dómaranefndar HSÍ: Þetta mál er áfall fyrir okkur
"Þetta er mjög alvarlegt mál. Alveg sama hvernig á það er litið," sagði Guðjón L. Sigurðsson, formaður dómaranefndar HSÍ, um ásakanir Svavars Vignissonar, þjálfara kvennaliðs ÍBV, um að annar dómari leiks Gróttu og ÍBV um helgina hafi angað af áfengi.

Svavar: Legg orðspor mitt og virðingu undir þessi orð
Svavar Vignisson, þjálfari kvennaliðs ÍBV, segist standa við þau orð sín að það hafi verið áfengislykt af öðrum dómara leiks Gróttu og ÍBV í úrslitakeppni N1-deildar kvenna um helgina.

Vítakastsdómarnir umdeildu í leik Gróttu og ÍBV - myndband
Eyjamenn eru allt annað en sáttir við dómgæsluna í öðrum leik kvennaliðs ÍBV gegn Gróttu. Gróttustúlkur fengu 13 víti í leiknum og þjálfari ÍBV, Svavar Vignisson, sagði að það hefði verið áfengislykt af öðrum dómara leiksins og að hann hefði dæmt eins og hann hefði verið fullur.

Þjálfari ÍBV: Dómarinn angaði af áfengisfýlu
"Þetta var mjög svekkjandi tap,“ sagði Svavar Vignisson, þjálfari ÍBV, í viðtali við vefsíðuna sport.is eftir að lið hans hafði tapað gegn Gróttu í öðrum leik liðanna um laust sæti í undanúrslitum N1-deildar kvenna í gær.

Stjarnan flaug áfram í undanúrslitin | Unnu einvígið gegn HK 2-0
Stjarnan fór nokkuð þægilega í undanúrslit N1-deildar kvenna í handknattleik en liðið bar sigur úr býtum gegn HK, 34-29, í Digranesinu í dag vann því einvígið 2-0.

Grótta sigraði ÍBV og tókst að knýja fram oddaleik
Stelpurnar í Gróttu neita að fara í sumarfrí en þeim tókst að knýja fram oddaleik þegar liðið bar sigur úr býtum gegn ÍBV, 20-19, á Seltjarnarnesinu í dag en leikið er um sæti í undanúrslitum N1-deildar kvenna í handknattleik.

Úrslitakeppni N1-deildar kvenna | ÍBV og Stjarnan unnu fyrstu leikina
Úrslitakeppni N1-deildar kvenna í handbolta hófst í kvöld með tveimur leikjum. ÍBV lagði þá Gróttu á meðan Stjarnan skellti HK.

Sólveig Lára valin best
Sólveig Lára Kjærnested, leikmaður Stjörnunnar, var valin besti leikmaður N1-deildar kvenna í umferðum 9-16. Þá var úrvalslið umferðanna einnig valið í dag.

Valskonur deildarmeistarar | Grótta komst í úrslitakeppnina
Lokaumferðin í N1-deild kvenna fór fram í dag. Valskonur tryggðu sér þá deildarmeistaratitilinn og Grótta tók lokasætið í úrslitakeppninni.

Valskonur þurfa stig fyrir norðan
Lokaumferð N1-deildar kvenna fer fram í dag og þá ræðst hvernig liðin raða sér inn í úrslitakeppnina. Valskonur þurfa stig á móti KA/Þór fyrir norðan til að tryggja sér deildarmeistaratitilinn en Akureyrarliðið er í baráttunni við Gróttu um sjötta og síðasta sætið inn í úrslitakeppnina.

Valskonur búnar að vinna sjö leiki í röð á móti Fram á Hlíðarenda - myndir
Valskonur eru komnar með níu fingur á deildarmeistaratitilinn í N1 deild kvenna eftir 19-17 sigur í toppslagnum á móti Fram í kvöld. Valur og Fram eru nú jöfn að stigum fyrir lokaumferðina á tímabilinu en Fram situr hjá í henni. Valskonum dugir því jafntefli gegn KA/Þór í lokaumferðinni til að tryggja sér titilinn.

Eyjakonur tryggðu sér þriðja sætið / Úrslit og markaskorarar kvöldsins
ÍBV tryggði sér 3. sætið í N1 deild kvenna eftir sex marka sigur á Stjörnunni í Eyjum í kvöld. HK náði Stjörnunni að stigum með því að vinna nauman sigur á Haukum og Grótta hélt KA/Þór fyrir neðan sig þegar liðin gerðu jafntefli á nesinu.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Fram 19-17 | Valur með titilinn í höndunum
Valur er nánast öruggt með deildarmeistaratitilinn í N1-deild kvenna eftir sigur á Fram í uppgjöri toppliðanna í kvöld. Liðinu dugir stig gegn KA/Þór í lokaumferðinni til að tryggja sér titilinn.

Titill í boði á Hlíðarenda í kvöld
Valur og Fram mætast í kvöld í hreinum úrslitaleik um deildarmeistaratitilinn í N1 deild kvenna en leikurinn fer fram í Vodafonehöllinni á Hlíðarenda og hefst klukkan 19.30.

Ágúst: Vil sjá fullt hús á leiknum
Stelpurnar okkar mæta Sviss öðru sinni á nokkrum dögum á morgun. Leikurinn er liður í undankeppni EM og þarf íslenska liðið sárlega á sigri að halda. Stelpurnar töpuðu fyrstu tveimur leikjum sínum í riðlinum en komust á sigurbraut fyrir helgi er þær lögðu svissneska liðið ytra.

Framkonur náðu aftur tveggja stiga forystu á toppnum | Fjórtán sigrar í röð
Fram náði tveggja stiga forskoti á Val á toppi N1 deildar kvenna eftir sjö marka sigur á Gróttu, 25-18, í Safamýrinni í dag. Gróttuliðið hefur vaxið mikið eftir áramót en náði aðeins að halda í við Framliðið í fyrri hálfleik.

Valsskonur skoruðu 22 mörk í fyrri hálfleik og unnu með 14 | Úrslitin í dag
Valskonur komust upp að hlið Fram á toppi N1 deildar kvenna í handbolta eftir öruggan fjórtán marka sigur á FH í Kaplakrika, 36-22. Valur og Fram er bæði með 26 stig á toppnum en Fram er með betri árangur í innbyrðisleikjum liðanna.

Naumur sigur Eyjakvenna á Akureyri
ÍBV vann tveggja marka sigur á KA/Þór, 24-22, í N1 deild kvenna í dag en leikurinn fór fram í KA-heimilinu á Akureyri. ÍBV styrkti stöðu sína í þriðja sæti deildarinnar en KA/Þór átti með sigri möguleika á því að komast upp í sjötta sætið sem er síðasta sætið sem gefur þátttökurétt í úrslitakeppninni.

Framkonur unnu tveggja marka sigur í Eyjum
Fram náði aftur tveggja stiga forskoti á Val á toppi N1 deildar kvenna eftir tveggja marka sigur á ÍBV, 19-17, í Vestmannaeyjum í kvöld. Framliðið hefur þar með unnið 13 af 14 deildarleikjum sínum á tímabilinu en Eyjakonur eru áfram í þriðja sæti deildarinnar.

Öruggt hjá Stjörnunni gegn KA/Þór
Stjarnan komst í dag upp að hlið HK í fjórða sæti N1-deildar kvenna er það vann öruggan sex marka sigur á KA/Þór sem er í sjöunda sæti.

Gróttustúlkur í sjötta sætið | Leik Fram og ÍBV frestað
Alls voru 168 áhorfendur mættir á Nesið í dag er Grótta tók á móti FH í mikilvægum leik í N1-deild kvenna. Leikurinn var jafn og spennandi en Grótta þó alltaf skrefi á undan og vann að lokum góðan þriggja marka sigur. Sunna María Einarsdóttir fór hamförum og skoraði tíu mörk.

Valskonur unnu 19 marka sigur á HK í kvöld
Íslands- og bikarmeistarar Vals unnu 19 marka sigur á HK, 41-22, í Vodfone-höllinni í kvöld og komust með því upp að hlið Fram á toppi N1 deildar kvenna. Valsliðið er búið að vinna alla sjö heimaleiki sína í vetur.

Ágúst velur landsliðið fyrir leiki gegn Sviss
Ágúst Þór Jóhannsson, landsliðsþjálfar A-landsliðs kvenna í handbolta, tilkynnti í dag 19 manna landsliðshóp fyrir tvo leiki við Sviss í undankeppni EM 2012.

Tíu marka sigur Fram á Stjörnunni
Fram er með tveggja stiga forystu á toppi N1-deildar kvenna eftir öruggan sigur á Stjörnunni, 27-17, í Safamýrinni í dag.

Óvæntur sigur Gróttu á HK | KA/Þór vann Hauka
Gróttukonur gerðu sér lítið fyrir og unnu óvæntan útisigur á HK í N1-deild kvenna í dag. Lokatölur 25-23 fyrir Seltirninga.

Valskonur höfðu betur gegn Eyjakonum | Myndasyrpa úr Laugardalshöll
Valskonur urðu í dag bikarmeistarar í handknattleik þegar þær lögðu Eyjakonur að velli 18-27. Sigur Valskvenna var öruggur og langþráður en liðið hafði ekki unnið bikarinn í tólf ár.

Hrafnhildur Ósk: Ætluðum ekki að grenja hérna þriðja árið í röð
"Þetta var eiginlega alltof auðvelt. Við vorum að búast við hörkuleik en hernaðaráætlun okkar tókst fullkomlega. Við ætluðum að koma þeim á óvart með framliggjandi vörn og þær voru ekkert að komast framhjá okkur,” sagði Hrafnhildur.