

Ólafur Stephensen
Greinar eftir Ólaf Stephensen, framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda.


Ómöguleikinn og óminnishegrinn
Ýmsir forystumenn í stjórnarliðinu eru byrjaðir að viðurkenna að hörð viðbrögð almennings við þingsályktunartillögunni um að slíta viðræðunum við Evrópusambandið, án þess að spyrja þjóðina álits, hafi komið þeim á óvart. Utanríkisráðherrann sagði á Bylgjunni fyrr í vikunni að hann væri meira að segja ekki frá því að það hefðu verið mistök að æða fram með tillöguna.


Tollverndaðir vinnustaðir
Fréttablaðið sagði frá því í síðustu viku að 76 prósenta verndartollur væri lagður á innfluttar franskar kartöflur, að því er virðist til að vernda einn innlendan framleiðanda sem annar um fimm prósentum af innanlandseftirspurn – að hluta til með útlendu hráefni.

Fæðuöryggi og franskar
Þegar hinir himinháu tollar sem ríkið leggur á innfluttar búvörur eru til umræðu, grípa talsmenn landbúnaðarkerfisins oft til röksemdarinnar um fæðuöryggi. Með tollverndinni sé tryggt að samkeppnin frá útlöndum verði ekki of skæð, heldur blómstri innlend framleiðsla og séð sé til þess að Ísland geti verið sjálfu sér nógt um mat,

Kerfisbreyting er bezta tækifærið
Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra sagði í þættinum Í bítið á Bylgjunni í fyrradag að hægt væri að réttlæta að hækka laun kennara umfram almennar launabreytingar með því að breyta skólakerfinu og stytta nám til stúdentsprófs. Sambærilegar tillögur eru hluti af tilboði ríkisins til lausnar kjaradeilunni við framhaldsskólakennara.

Er EES-leið greið?
Ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku þunnt plagg sem er kallað Evrópustefna. Þar er lögð megináherzla á að samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið verði áfram þungamiðjan í samskiptum Íslands og ESB.



Fagfólkið má vita, ekki foreldrarnir
Fulltrúar Bezta flokksins, Samfylkingarinnar og Vinstri grænna í skóla- og frístundaráði felldu í síðustu viku tillögu sjálfstæðismanna um að aflétta leynd af útkomu einstakra grunnskóla í Reykjavík í PISA-könnuninni svokölluðu, sem mælir þekkingu grunnskólanema í mörgum löndum.

Prinsipp og pukur í Seðlabankanum
Undarlegt mál, sem hófst með því að fyrrverandi ríkisstjórn gekk á bak orða sinna gagnvart Má Guðmundssyni seðlabankastjóra og lét lækka laun hans, hefur orðið furðulegra eftir því sem frá líður.

Eina leiðin er að spyrja þjóðina
Ríkisstjórnin hefur enn ekki komið með neinum hætti til móts við þá víðtæku og almennu kröfu að hún standi við kosningaloforðin og efni til þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við Evrópusambandið. Hún gerir ekkert með undirskriftir rúmlega fimmtungs kjósenda. Henni er sama um að yfir 80 prósent svarenda í könnunum segist vilja þjóðaratkvæði.

Hreinleikinn reynist goðsögn
Frétt sem flaug ekki hátt í pólitískum stormi síðustu viku er engu að síður allrar athygli verð. Þetta var frétt af fyrstu vettvangsathugun Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) í íslenzkum alifuglasláturhúsum og kjúklingabúum eftir að matvælalöggjöf Evrópusambandsins varð hluti af EES-samningnum seint á árinu 2011.

Sjálfs er höndin hollust
Sumir af ráðherrum ríkisstjórnarinnar hafa látið að því liggja undanfarna daga að fjölmiðlar sýni þá í óhagstæðu ljósi í umfjöllun um hvernig eigi að halda á framhaldi viðræðna við Evrópusambandið. Staðreyndin er þó sú að það eru ráðherrarnir sjálfir og það sem þeir láta út úr sér, sem dregur mest úr trúverðugleika þeirra.

Rökleysur ráðherra
Rökleysurnar sem forystumenn ríkisstjórnarinnar hafa borið á borð fyrir almenning undanfarna daga, sem réttlætingu á að svíkja loforð sín um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið, eru með ólíkindum.

Einræði, ofríki og ofbeldi Pútíns
Hernaðaríhlutun Rússa í Úkraínu vekur upp óþægilegar minningar frá síðustu öld; um valdapólitíkina, þjóðrembuna og yfirganginn sem orsökuðu tvær heimsstyrjaldir með tilheyrandi hörmungum og mörg minni stríð. Tal rússneskra ráðamanna um að þeir séu bara að vernda hagsmuni Rússa á Krímskaga er endurómur af röksemdum Hitlers fyrir innlimun Súdetahéraðanna og Austurríkis í aðdraganda seinni heimsstyrjaldarinnar.

Skýrslutrompið
Ráðherrar og stjórnarþingmenn vísa ekki eingöngu til "ómöguleikans“ þegar þeir verja þá ákvörðun að ætla að svíkja kosningaloforðin og slíta aðildarviðræðunum við ESB án þjóðaratkvæðagreiðslu. Sumir vilja nota skýrslu Hagfræðistofnunar um stöðu viðræðnanna sem átyllu.

Skýr krafa um þjóðaratkvæði
Engum sem var staddur á átta þúsund manna mótmælafundi á Austurvelli á laugardaginn gat dulizt hvílíkur hugur var í fólkinu sem þar var saman komið eða hversu mikill þungi er í kröfunni um að ríkisstjórnin dragi til baka tillögu sína um að slíta aðildarviðræðunum við Evrópusambandið og efni í staðinn til þjóðaratkvæðagreiðslu.

Þora þau ekki að hlusta á fólkið?
Niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 sýna svo ekki verður um villzt að yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar vill fá að taka sjálfur ákvörðun um framhald aðildarviðræðnanna við Evrópusambandið. Þannig vilja tæplega 82 prósent svarenda að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla um framhaldið.

Húsvernd fyrir heimakjördæmið
Sveinn Arason ríkisendurskoðandi skammaði Sigmund Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra hér í blaðinu í gær fyrir það hvernig staðið er að fjármögnun áhugamáls ráðherrans, eflingu húsverndar. Flestir ættu raunar að geta skrifað upp á að varðveizla menningararfsins sem felst í gömlum húsum sé hið bezta mál og gott að æðsti maður framkvæmdavaldsins beiti sér fyrir því. En ríkisendurskoðandi er ekki einn um að gagnrýna hvernig að húsverndarstyrkjunum er staðið.

Sérhagsmunamatið
Sjálfstæðisflokkurinn býr sig nú undir að stíga lokaskrefið í átt að markmiðinu um að festast í rúmlega fjórðungsfylgi. Með þeirri stefnu að neita þjóðinni um að greiða atkvæði um aðildarsamning við Evrópusambandið - og nú með því að svíkja kosningaloforðið um að þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna yrði haldin á kjörtímabilinu - hefur forysta flokksins fælt frá honum stóran hóp kjósenda. Það er fólk sem telur að Ísland eigi heima í ESB - eða hefur jafnvel ekki gert upp hug sinn, en vill fá að sjá aðildarsamninginn og kjósa um hann.

Óttinn við ómöguleikann
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, var í vandræðalegu viðtali í Kastljósi í fyrrakvöld. Hann var þar ítrekað beðinn að útskýra hvers vegna hann hygðist ganga á bak því kosningaloforði sínu að þjóðin fengi að kjósa á kjörtímabilinu um framhald aðildarviðræðnanna við Evrópusambandið.

Slitastjórnin
Nú er algjörlega skýrt að tal stjórnarflokkanna beggja fyrir kosningar um að þjóðin fengi að taka ákvörðun í atkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðnanna við Evrópusambandið var tómt fals, til þess ætlað að slá ryki í augu kjósenda.

Stóru spurningunum ósvarað
Skýrsla Hagfræðistofnunar um stöðu aðildarviðræðna við Evrópusambandið og þróun þess er, eins og við var að búast, ekkert tímamótaplagg. Þar kemur ekkert nýtt fram um viðfangsefnið, þótt gagnlegt sé að fyrirliggjandi fróðleikur og staðreyndir séu dregnar saman.

Vandamáli ýtt inn í framtíðina
Fréttablaðið sagði frá því fyrr í vikunni að þrátt fyrir ákvæði laga og aðalnámskrár grunnskóla fengju börn innflytjenda afar takmarkaða kennslu í eigin móðurmáli. Um sex prósent barna í íslenzkum grunnskólum hafa annað móðurmál en íslenzku. Alls konar rannsóknir sýna fram á mikilvægi þess að börn fái haldgóða kennslu í eigin móðurmáli,

Við erum í ykkar liði – vitleysingar
Klappað var í salnum á Viðskiptaþingi í gær þegar Hreggviður Jónsson, formaður Viðskiptaráðs, ítrekaði þá afstöðu ráðsins að ljúka hefði átt aðildarviðræðunum við Evrópusambandið og halda þannig opnum möguleika Íslands á að taka upp evruna tvíhliða.

Tabúið ógurlega
Meirihluti landsmanna, eða 51 prósent, er hlynntur því að skólagjöld séu innheimt í háskólum, samkvæmt könnun sem Capacent gerði fyrir Viðskiptaráð og Fréttablaðið sagði frá í gær. Aðeins rúmur þriðjungur var andvígur slíkri fjármögnun háskóla og 16 prósent tóku ekki afstöðu.

Í spennitreyju haftanna
Í Markaðnum, viðskiptablaði Fréttablaðsins, hefur undanfarnar vikur verið fjallað um áhrif gjaldeyrishaftanna á íslenzkt efnahags- og viðskiptalíf. Í síðasta blaði var sjónum beint að áhrifum haftanna á lífeyrissjóðina, umsvifamestu fjárfesta landsins, sem jafnframt gæta gríðarlegra hagsmuna nánast allra launþega í landinu.

Tollvernd fyrir buffalabændur
Markaðurinn, fylgirit Fréttablaðsins um viðskipti, sagði frá því í gær að smásölufyrirtækið Hagar hefði farið fram á við atvinnuvegaráðuneytið að það felldi niður tolla á innfluttum ostum úr geita-, buffala- og ærmjólk.

Vandi sem ekki á að þegja um
Þess eru dæmi að kennarar beiti börn ofbeldi eða leggi þau í einelti og slíkt á að sjálfsögðu ekki að líðast. Dæmin þar sem kennarar verða fyrir ofbeldi af hálfu nemenda sinna hafa hins vegar ekki fengið jafnmikla athygli og ýmislegt bendir til að slíkt sé óskaplegt feimnismál.