„Hver fyrir sig hvað það varðar“ Einar Örn Ólafsson, forstjóri Play, segir gjaldþrot félagsins miklar sorgarfréttir fyrir starfsfólk félagsins. Margir muni tapa á gjaldþrotinu, hluthafar, kröfuhafar, birgjar og viðskiptavinir. Þá verði það til þess að Íslendingar tapi til lengri tíma vegna hærra verðs flugfara og minna framboðs. Félagið sé illu heilli ekki í neinni stöðu til að aðstoða strandaglópa erlendis. Viðskipti innlent 29. september 2025 10:49
Farþegar Play í Keflavík klóra sér í kollinum Anton Ingi Rúnarsson knattspyrnuþjálfari er einn þeirra farþega Play sem situr nú eftir á Keflavíkurflugvelli án flugs eftir gjaldþrot félagsins. Hann átti flug til Tenerife núna klukkan 10:30 og var á klósettinu þegar hann fékk tíðindin af falli félagsins. Miðann keypti hann fyrir gjafabréf sem hann fékk eftir ótrúlega seinkun á flugi félagsins í vetur. Viðskipti innlent 29. september 2025 10:36
Þetta eru réttindi þeirra sem eiga bókað með Play Það skiptir máli fyrir þá sem hyggjast fá endurgreitt frá Play vegna flugferðar sem ekki var farið í eftir gjaldþrot félagsins, hvernig greitt var fyrir ferðina. Gjafabréf enda sem kröfur í þrotabú. Neytendur 29. september 2025 10:30
Verðbólgan 4,1% og fer upp á milli mánaða Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,11% á milli mánaða samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar. Síðastliðna tólf mánuði mælist verðbólga þannig 4,1% en er 3,2% sé húsnæði tekið út fyrir sviga. Viðskipti innlent 25. september 2025 09:28
Neyslan mikil og sjá ekki að stýrivextir fari hratt lækkandi Greiningardeild Íslandsbanka telur líklegt að vaxtalækkunarferli Seðlabanka Íslands ljúki líklega með stýrivöxtum á bilinu 5,5 til 6,0 prósent árið 2027. Íslensk heimili séu neysluglöð í ferðalögum og bílkaupum án þess þó að skuldsetja sig. Kaupmáttur sé mikill og íbúðamarkaður í jafnvægi. Viðskipti innlent 24. september 2025 14:22
Gjaldeyrisforðinn nálægt billjón króna Seðlabankastjóri segir útlit fyrir að fasteignamarkaðurinn sé á leið í nokkuð jafnvægi. Ekki hefur verið slakað á lántökuskilyrðum en það kunni að verða tekið til skoðunar á árinu. Gjaldeyrisforði bankans sé vel í stakk búinn til að bregðast við ytri aðstæðum. Viðskipti innlent 24. september 2025 11:50
Ekki lengur framsal á fullveldi heldur neytendavernd Inga Sæland segist hafa skipt um skoðun á bókun 35 eftir að hafa rakið garnirnar úr sérfræðingum við stjórnarmyndun í vetur. Um sé að ræða neytendavernd sem verndi borgarana betur. Innlent 23. september 2025 13:02
Airpods allt að 40 prósent dýrari hérlendis Airpods Pro 3 kosta 28 til 65 prósent meira á Íslandi en í átta samanburðarlöndum. Verðmunurinn er mun meiri en á nýjum iPhone símum. Neytendur 22. september 2025 14:14
Einföld og skiljanleg kerfi sem virka fyrir fólk og fyrirtæki Meðal áherslumála minna sem ráðherra atvinnumála er að einfalda regluverk og stjórnsýslu, atvinnulífi og neytendum til hagsbóta. Skoðun 20. september 2025 07:00
U-beygja Metro sem komst í gegnum eftirlit án nokkurra athugasemda Eftir svarta skýrslu Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur í sumar hafa forsvarsmenn skyndibitastaðarins Metro tekið veitingastaðinn í gegn. Í sumar var slæmum aðbúnaði og almennum óþrifnaði staðarins lýst en mánuði seinna kom staðurinn út úr eftirliti án athugasemda. Neytendur 19. september 2025 11:04
„Það er erfitt að berjast fyrir eigin réttindum þegar maður er veikur“ „Mín svona fyrsta tilfinning er að við, heilbrigðisstarfsmenn, þurfum meiri þjálfun í að eiga í samskiptum,“ segir Marta Jóns Hjördísardóttir, talskona sjúklinga á Landspítalanum, um reynslu sína af starfinu. Innlent 19. september 2025 07:09
Helmingur nýrra íbúða óseldur í yfir 200 daga Um það bil 5.000 íbúðir voru á sölu í upphafi septembermánaðar en um er að ræða tvöföldun frá upphafi árs 2023. Þar af voru nýjar íbúðir um 2.000 en um helmingur þeirra hafði verið óseldur í meira en 200 daga. Innlent 18. september 2025 06:46
Lækkar vexti og boðar frekari innreið á lánamarkað Sparisjóðurinn indó hefur lækkað vexti og býður nú útlánsvexti sem eru með því allra lægsta sem í boði er og án bullgjalda, eins og segir í tilkynningu. Samhliða lækka vextir á veltureikningum og sparibaukum. Með lækkuninni boðar indó enn frekari innreið á lánamarkað sem fylgt verður eftir á næstunni með nýjum lánavörum. Neytendur 17. september 2025 11:13
Laganemar bjóða leigjendum áfram upp á fría ráðgjöf Laganemar við Háskóla Íslands munu áfram bjóða leigjendum upp á ókeypis ráðgjöf eftir að samkomulag náðist um áframhaldandi starfsemi Leigjendalínunnar svokölluðu. Alls leituðu um sjötíu leigjendur aðstoðar hjá Leigjendalínunni á síðasta skólaári og hafa algengustu spurningarnar um riftun leifusamninga og kröfur um tryggingafé. Viðskipti innlent 17. september 2025 10:36
„Gæti orðið til þess að þú sért látinn fara“ Wolt harmar atvik þar sem sendill á sínum vegum virðist hafa fengið sér bita af mat viðskiptavinar. Slík hegðun gæti leitt til þess að sendill missi vinnuna. Umræddur sendill hafi reyndar ekki verið látinn fara enda hafi fyrirtækinu aldrei borist formleg kvörtun vegna málsins. Neytendur 16. september 2025 22:32
Sleppur við vangreiðslugjaldið hjá Parka Eigendur Parka-appsins þurfa að lækka greiðslukröfu karlmanns sem greiddi fyrir rangt stæði um 3.500 krónur eða sem nemur vangreiðslugjaldi fyrirtækisins. Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa þótti Parka ekki upplýsa með skýrum og áberandi hætti um innheimtu vangreiðslugjalds og fjárhæð þess. Neytendur 16. september 2025 06:32
Afbókaði dýra ferð þremur dögum fyrir brottför og fær endurgreitt Ferðamaður sem bókaði pakkaferð á fjarlægar slóðir með íslenskri ferðaskrifstofu fær ferðina endurgreidda þótt hann hafi ekki óskað eftir afbókun fyrr en þremur dögum fyrir brottför. Verulegar breytingar sem ferðaskrifstofan gerði á hinni bókuðu ferð veittu ferðamanninum rétt til þess að mati kærunefndar vöru- og þjónustukaupa. Neytendur 15. september 2025 07:02
Búinn að fá sig fullsaddan af þjónustunni hjá Wolt Lögmaður í Reykjavík hefur nýtt sér heimsendingarþjónustu Wolt í síðasta skipti. Mælirinn fylltist þegar stóran hluta af pöntun vantaði í vikunni. Í fyrri pöntun hafði vantaði pítsusneið í pítsukassa. Wolt biðst afsökunar á þessum misbrestum. Neytendur 12. september 2025 19:02
Dældi dísil á bensínbíl en fær kostnaðinn endurgreiddan Bílaleigu á Íslandi hefur verið gert að endurgreiða viðskiptavini sínum tæpa hálfa milljón króna í kjölfar þess að hafa rukkað hann um ýmsan kostnað í kjölfar þess að hann hafði fyrir dælt dísil á bílaleigubílinn sem knúinn var bensíni. Ástæðan er að upplýsingar og merkingar hafi ekki verið nægilega skýrar um að bensínbíl væri að ræða. Neytendur 12. september 2025 14:05
Fær endurgreiðslu þar sem sjónvarpið í herberginu virkaði ekki Hótel á Íslandi þarf að endurgreiða viðskiptavini 22 evrur, eða rúmar þrjú þúsund krónur, þar sem sjónvarpið á hótelherberginu virkaði ekki. Neytendur 12. september 2025 06:32
Sýnishornið of ólíkt borðplötunni sem skilaði sér heim Viðskiptavinur sem keypti borðplötu úr svokölluðum náttúrusteini skal vera heimilt að rifta kaupunum þar sem sýnishornið sem kaupin byggðu á hafi verið of ólíkt borðplötunni sem skilaði sér heim. Í borðplötunni hafi verið fjöldi áberandi ryðbrúnna slikja. Neytendur 11. september 2025 14:04
Breytingar á tollskrá megi ekki grafa undan íslenskri framleiðslu Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði segir mikilvægt að íslensk stjórnvöld gæti þess að boðaðar breytingar á tollflokkun á pítsaosti með íblandaðri jurtaolíu grafi ekki undan samkeppnishæfni íslenskra bænda og framleiðenda. Viðskipti innlent 9. september 2025 21:58
Breytir tollflokkun pitsaosts eftir allt saman Fjármálaráðherra hefur ákveðið að leggja fram frumvarp um að breyta tollflokkun á pitsuosti með íblandaðri jurtaolíu til samræmis við ákvörðun Alþjóðatollastofnunarinnar um flokkun vörunnar. Ráðherra hefur áður boðað slíka lagasetningu en dregið áformin til baka eftir hávær mótmæli hagaðila. Viðskipti innlent 9. september 2025 13:48
Óttast verðhækkanir sem bitni á konum og barnafjölskyldum Umhverfisráðherra óttast að Evrópureglur um íslenskar merkingar á plastvörum muni leiða til verðhækkana og bitna á konum og barnafjölskyldum. Hann muni gæti hagsmuna Íslands og segir mögulegt að reglurnar verði ekki innleiddar að fullu. Innlent 8. september 2025 13:02
„Óhóflegt gjald“ fyrir símanotkun í Bretlandi heyri fljótt sögunni til Íslenskir farsímanotendur munu frá og með 1. október greiða sömu gjöld fyrir farsímaþjónustu í Bretlandi og í öðrum ríkjum innan EES og ESB. Reglugerð þess efnis hefur verið birt í Stjórnartíðindum en henni er ætlað að tryggja að farsímanotendur, sem eru í viðskiptum við íslensk fyrirtæki á þeim markaði, greiði sömu gjöld í Bretlandi og víðast hvar annars staðar í Evrópu. Viðskipti innlent 8. september 2025 12:36
Pakkarnir séu langt frá því að vera sambærilegir Sýn segir að niðurstaða úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála um að stytta verulega gildistíma bráðabirgðaákvörðunar Fjarskiptastofu í máli félagsins og Símans mikilvægan áfanga í málinu. Fallist var á kröfu félagsins að hluta og leggur Sýn áherslu á að pakkarnir sem Sýn býður upp á annars vegar og Síminn hins vegar séu langt frá því að vera sambærilegir. Viðskipti innlent 5. september 2025 14:37
Ellefu prósent þjóðarinnar eiga ísvél Samkvæmt niðurstöðum könnunar Prósent í júlí eiga ellefu prósent þjóðarinnar ísvél. Tekið var fram í spurningunni að átt væri við vélar á borð við Ninja Creami en ekki klakavélar. Samkvæmt svörum Prósents eiga ellefu prósent svarenda slíka vél á meðan 30 prósent hafa áhuga á að eignast slíka vél. Neytendur 5. september 2025 12:49
Opnunarhátíð í Ríteil Kids „við erum að drukkna í fötum“ Á morgun laugardag verður blásið til opnunarhátíðar í versluninni Ríteil Kids í Holtagörðum, splunkunýrri hringrásarverslun með barnaföt sem hóf starfsemi í sumar. Dagskráin byrjar klukkan 13 með pompi og prakt. Lífið samstarf 5. september 2025 08:47
Innkalla Ashwagandha vegna mögulegs jarðhnetusmits Heilsa ehf. hefur innkallað Ashwagandha sem selt er undir vörumerkinu Guli miðinn, þar sem varan inniheldur mögulega jarðhnetur. Ákvörðunin var tekin í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur. Innlent 4. september 2025 11:41
Segir „vanstilltan“ starfsmann Icelandair kominn úr skotgröfunum „Ég er almennt ekki vanur að svara einhverju svona sem fólk segir um félagið okkar út um bæinn. Maður hefði þá ekki annað að gera. En þetta tal í þessum manni var svo yfirgengilegt að það var nú ekki hjá því komist að bregðast við.“ Viðskipti innlent 3. september 2025 09:37